Fréttablaðið - 10.07.2019, Side 18

Fréttablaðið - 10.07.2019, Side 18
lóns um hagkvæma uppbyggingu. „Þeir hafa verið að byggja fyrir okkur fyrsta fjölbýlishúsið í Urr- iðaholti með íslenskum undirverk- tökum til að koma sér fyrir og læra á það sem er séríslenskt eins og reglu- gerðir. Það er margslungið verk og f lókið að byggja gott og vandað íbúðarhúsnæði fyrir íslenskar aðstæður og fyrir íslenskar reglu- gerðir. Nú eru þeir farnir að f lytja inn undirverktaka frá Ítalíu fyrir f lísalagningu, múrverk og f leira,“ segir Jónas Þór. Þið sjáið fram á að þetta samstarf muni verða til þess að lækka bygg- ingarkostnað? „Já, samstarfið býður upp á fleiri möguleika til að lækka kostnaðinn. Það er ekkert nýtt að allir á bygg- ingamarkaðinum leiti leiða til þess að draga úr kostnaði og láta dæmið ganga upp en með þessu erum við að skapa okkur sterkt samkeppnis- forskot. Það er vegna þess að ítalska fyrirtækið býr yfir ýmiss konar tækni og þekkingu sem íslenskir verktakar búa ekki yfir og eins sjáum við fram á sparnað í inn- kaupum á byggingarefni. Við erum að nýta okkur þeirra sambönd til að kaupa flísar, hellur og alls kyns byggingarefni,“ segir Jónas. Spurður hvernig samstarfið hafi komið til svarar hann að það megi rekja til persónulegra tengsla eins eiganda Kaldalóns og eigenda ítalska fyrir- tækisins. Þannig hafi boltinn byrjað að rúlla fyrir um einu og hálfu ári síðan. Eru f leiri tækifæri fólgin í sam- starfinu? „Já, við væntum mikils af þessu samstarfi. Það er rétt að hefjast en hefur átt sér langan aðdraganda. Þeir eru búnir að klára þessar 90 íbúðir í Urriðaholti og næsta mál á dagskrá er að semja við þá um fyrstu íbúðablokkina í Vogabyggð- inni. Svo eru þeir sjálfir að vinna í verkefnum á Kef lavíkurf lugvelli og að leita að f leiri verkefnum. Ef svona fyrirtæki kemur til landsins á annað borð þá ætlar það sér stóra hluti vegna þess að fyrst um sinn er þetta ekkert nema kostnaður. Það er mikil skuldbinding fólgin í því að mæta á svæðið,“ segir Jónas. Hann bætir við að ítalska fyrirtækið hafi stofnað íslenskt félag til að halda Þorsteinn Friðrik Halldórsson tfh@frettabladid.is Jónas Þór Þorvaldsson, framkvæmdastjóri Kaldalóns, segist vænta þess að skráning félagsins á First North markaðinn muni auðvelda því fjármögnun fyrir framtíðarvöxt. Félagið muni vaxa umtalsvert eftir skráninguna. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Þróunarfélagið Kalda-lón er í sóknarhug. Handan við hornið er skráning á First North markaðinn sem mun auðvelda fjármögnun fyrir framtíðarvöxt að sögn Jón- asar Þórs Þorvaldssonar, nýráðins framkvæmdastjóra Kaldalóns, en hann segir að fjármálastofnanir hafi á síðustu misserum dregið úr útlánum til uppbyggingar. Jónas Þór telur að nýtt samstarf Kalda- lóns við reynslumikinn alþjóðlegan verktaka skapi félaginu sérstöðu í hagkvæmri uppbyggingu íbúða og tækifæri til að taka virkan þátt í þeirri innviðauppbyggingu sem fram undan er. Kaldalón er ungt félag, stofnað árið 2017, og sérhæfir sig í byggingu hagkvæms íbúðarhúsnæðis. Félagið hefur fjárfest í lóðum á höfuðborg- arsvæðinu þar sem gert er ráð fyrir að byggðar verði hátt í 900 íbúðir en þær koma inn á markaðinn á næstu tveimur til sjö árum. Um er að ræða lóðir á Kársnesi í Kópavogi, Vestur- bugtinni í miðbænum, Urriðaholti í Garðabæ, Hnoðraholti í Garðabæ, Vogabyggð og á Steindórsreitnum í vesturbæ Reykjavíkur. „Metnaðurinn stendur til þess að svara eftirspurn stærsta hluta markaðarins eftir gæðahúsnæði á góðum staðsetningum og á sam- keppnishæfu verði. Við vitum að til þess þarf að leita allra leiða til að hagræða,“ segir Jónas Þór en Kaldalón hefur samið við alþjóð- legt verktakafyrirtæki, Rizzani De Eccher, sem er 100 ára gamalt ítalskt fjölskyldufyrirtæki með yfir milljarð evra í árlega veltu og starf- semi í f leiri en 100 löndum. Jónas Þór segir að samstarfið sé lykil- þáttur í að ná markmiðum Kalda- Hefja samstarf við alþjóðlegan verktaka Kaldalón hefur hafið samstarf við alþjóðlegan verktaka sem mun lækka byggingarkostnað félagsins að sögn Jónasar Þórs Þorvaldssonar fram- kvæmdastjóra. Hann reiknar með umtalsverðum vexti eftir skráningu á First North markaðinn. Félagið horfir til uppbyggingar á innviðum. utan um starfsemina hér á landi. Kaldalón sé eigandi að litlum hlut í félaginu og Ítalirnir muni kaupa lítinn hlut í Kaldalóni þegar fram í sækir. Hafa Ítalirnir furðað sig á íslensk- um byggingarreglugerðum? „Já, þeir hafa gert það en aftur á móti eru þeir ýmsu vanir enda með verkefni um allan heim. Ég held að hluti af háum byggingarkostnaði og háu fasteignaverði hér á landi sé fólginn í því að byggingarreglu- gerðirnar eru og hafa verið óþarf- lega íþyngjandi. Þær eru að mörgu leyti úreltar, sérstaklega í saman- burði við hin Norðurlöndin sem við eigum hiklaust að miða okkur við. Þar er búið að fara í gegnum reglu- gerðirnar og taka út það sem er ekki að skila neinu til íbúðareiganda nema hærra verði. Hér erum við með alls konar algildar kröfur og lítinn sveigjan- leika. Brunareglugerðir hafa til dæmis ekki breyst í áratugi þó svo að þær séu gjörbreyttar í Noregi, Svíþjóð og Danmörku. Það eru ekki nema nokkur ár síðan opnað var fyrir möguleikann á því að byggja undir 40 fermetrum. Sjáðu til, einn þriðji af allri íbúðaþörfinni í dag er fyrir einstaklinga sem þurfa ekki meira en stúdíóíbúðir eða litlar tveggja herbergja íbúðir. Svo standa menn gapandi og skilja ekki af hverju það er svona erfitt fyrir ungt fólk að komast úr foreldrahúsum.“ Kaldalón greindi frá áformum sínum um skráningu á First North markaðinn í byrjun júní. Tillagan var samþykkt á aðalfundi félagsins en undirbúningsvinnan hefur þó staðið yfir í nokkra mánuði. Jónas Þór segir að verið sé að ganga frá formsatriðunum og að stefnt sé að því að skráningin gangi í gegn öðru hvoru megin við næstu mánaða- mót. Þá er einnig verið að ganga frá um 400 milljóna króna hluta- fjáraukningu frá bæði nýjum og núverandi hluthöfum til þess að Hluthafarnir í Kaldalóni Í lok árs 2018 var stærsti hluthafi byggingafélagsins Kaldalóns einkahlutafélagið RES með tæplega 18,6 prósenta hlut í eigu hjónanna Nönnu Bjarkar Ásgrímsdóttur og Sigurðar Bollasonar. Þá eiga Gunnar Henrik B. Gunnarsson og Lovísa Ólafsdóttir 16,2 prósenta hlut í gegnum Investar. Viðskiptafélagarnir Þórarinn Arnar Sævarsson og Gunn- ar Sverrir Harðarson, sem eru meðal annars eigendur fast- eignasölunnar RE/MAX á Íslandi, eiga alls 26,4 prósenta hlut í gegnum tvö félög; Loran og Premier eignarhaldsfélag. Ingibjörg Pálmadóttir, sem á Torg, útgáfufélag Fréttablaðsins, og Jón Ásgeir Jóhannesson, eiga 7 prósenta hlut í gegnum 24 Development Holding. Þá á Gunnar Þór Benjamínsson 3,5 prósenta hlut í gegnum GG optics, sem og Eiríkur Ingvar Þorgeirsson í gegnum ET sjón, Linda Björk Ólafsdóttir í gegnum Sindrandi og Davíð Freyr Al- bertsson í gegnum DFT. Kvika banki fór með 9,9 pró- senta hlut í Kaldalóni, sam- kvæmt ársreikningi bygginga- félagsins. 1 0 . J Ú L Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R6 MARKAÐURINN 1 0 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :1 1 F B 0 4 0 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 6 5 -E 4 E 0 2 3 6 5 -E 3 A 4 2 3 6 5 -E 2 6 8 2 3 6 5 -E 1 2 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 0 s _ 9 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.