Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.07.2019, Qupperneq 28

Fréttablaðið - 10.07.2019, Qupperneq 28
Stjórnar- maðurinn 03.07.2019 MARKAÐURINN Instagram fréttablaðsins@frettabladidfrettabladid.is Miðvikudagur 10. júlí 2019FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS UM VIÐSKIPTI OG FJÁRMÁL | PwC | Sími 550 5300 | www.pwc.is PwC á Íslandi er framsækið og traust fyrirtæki sem veitir sérfræðiþjónustu á sviði fyrirtækja- skatta- og lögfræðiráðgjafar, endurskoðunar og reikningsskila. Fyrirtækið er íslenskt og er hluti af alþjóðlegu neti sjálfstæðra fyrirtækja sem aðstoðar viðskiptavini sína við að auka verðmæti, stjórna áhættu og bæta árangur sinn. Hafðu samband því þinn árangur er mikils virði. Hámarkaðu árangurinn þinn og verðmæti með því að nýta þér fjölbreytta þekkingu og víðtæka reynslu PwC á öllum sviðum rekstrar Verðmæti Reykjavík | Akureyri | Reykjanesbær | Húsavík | Selfoss | Hvolsvöllur | Vestmannaeyjar Ég veit ekki hvort það endurspeglar eignarhaldið eða hvort þetta er gömul stofnana- menning. Hitt veit ég að slíkt myndi ekki viðgang- ast í einkafyrirtæki. Það hefði ekki efni á því. Birgir Jónsson, forstjóri Íslandspósts Kaffitár tapaði 115 milljónum króna á síðasta ári samkvæmt nýlegum ársreikningi kaffi- húsakeðjunnar, en til samanburðar varð 40 milljóna króna tap á rekstri keðjunnar árið 2017. Kaffihúsakeðjan, sem rekur sjö kaffihús á höfuðborgarsvæðinu auk tveggja handverks- bakaría undir nafni Kruðerís, skilaði rekstrar- tekjum upp á alls 1.073 milljónir króna á síðasta ári og drógust tekjurnar saman um 8,3 prósent frá fyrra ári þegar þær voru um 1.170 milljónir króna. Rekstrartap Kaffitárs nam tæplega 18 milljónum króna í fyrra, að því er fram kemur í ársreikn- ingnum, borið saman við rekstrarhagnað upp á 25 milljónir króna árið 2017. Eignir keðjunnar voru 1.338 milljónir króna í lok síðasta árs en á sama tíma var eigið fé hennar um 483 milljónir króna og eiginfjárhlutfallið því 36 prósent. Samkeppniseftirlitið samþykkti sem kunnugt er í lok mars síðastliðins kaup Nýju kaffibrennslunnar, systurfyrirtækis heildsölu Ó. Johnson & Kaaber, á Kaffitári en seljandi var Aðalheiður Héðinsdóttir sem stofnaði kaffihúsakeðjuna árið 1990. – kij Kaffitár tapaði 115 milljónum Hlutabréf í streymiþjónustunni Netflix hafa hækkað 8.500-falt í verði undanfarinn áratug. Þrátt fyrir gríðarlega fjölgun áskrifenda og almenna velgengni hefur verð- matið á engan hátt endurspeglað afkomu eða aðrar kennitölur Netflix. Verðlagning hefur byggst á framtíðarvæntingum, og hugmynd um að Netflix sé framtíð sjónvarps. Auðvitað er rétt að Netflix hefur náð undraverðri útbreiðslu. Áskrif- endur eru um 140 milljónir talsins. Það er ekki nema brot af þeim heimilum sem bitist er um, enda heimurinn undir. Þrátt fyrir þessa ótvíræðu vaxtarmöguleika eru nú ýmsir sem spá því að erfiðir tímar séu fram undan. Verð á bréfum félagsins er eilítið lægra en fyrir ári. En hver er ástæðan? Velgengni Netflix byggðist á því að hafa verið fyrstir til að kveikja á streymismód- elinu. Netflix framleiddi ekki neitt í fyrstu heldur keypti sýningarrétt á efni sem aðrir framleiddu. Þar leituðu þeir í smiðju stóru stúdíó- anna í Hollywood, Warner, Disney, Fox og svo mætti áfram telja. Smám saman kveiktu stóru kapparnir á perunni. Hvers vegna að búa til risa- keppinaut þegar þú getur skapað eigin streymiþjónustu. Það var fyrst reynt með Hulu, síðar HBO, og nú síðast Warner og Disney. Þjónustu þess síðastnefnda, Disney+, er beðið með eftirvæntingu en ýta á henni úr vör með haustinu. Allir þessir stóru selja Netflix ekki lengur efni eða eru að vinda ofan af samningum. Netf lix hefur löngu séð þennan möguleika fyrir. Þeirra krókur á móti bragði var að hefja fram- leiðslu eigin efnis. Þótt ýmislegt hafi tekist vel í þeim efnum er ekki nægileg dýpt að baki til að eigið efni standi undir Netflix í þeirri mynd sem við þekkjum. Framleiðsla á eigin efni er dýrt spaug og engar líkur á að fjárstreymi og efnahags- reikningur Netflix standi undir mikilli aukningu frá því sem nú er. Það gerir hins vegar bakland inter- netrisanna Apple og Amazon. Hinn síðarnefndi rekur Amazon Prime og Apple ýtir Apple + úr vör í haust. Þar bætist því enn ein risahindr- unin við á vegferð Netflix. Vasarnir verða ekki dýpri. Einhver sagði að sjaldnast nytu þeir eldanna sem fyrstir kveiktu þá. Spennandi verður að sjá hver verður hlutskarpastur í streymis- baráttunni. Gömlu Hollywood- risarnir hafa allavega hvergi nærri sagt sitt síðasta. Nýrri risar eins og Apple og Amazon munu heldur ekki skjóta neinum púðurskotum. Streymisbarátta  1 0 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :1 1 F B 0 4 0 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 6 5 -D 1 2 0 2 3 6 5 -C F E 4 2 3 6 5 -C E A 8 2 3 6 5 -C D 6 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 0 s _ 9 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.