Víkurfréttir - 18.07.2019, Page 10
HJÁLPARSTARF Í AFRÍKU
Langaði að hjálpa öðrum
„Þegar ég var átta ára þá langaði
mig að hjálpa hungruðum börnum
í Afríku að veiða fisk en ég vildi
frekar gera það en að senda þeim
fisk. Svona hugsaði ég sem lítið
barn og var ósköp eðlilegur krakki
en beit þetta í mig og nú mörgum
árum seinna snýst líf mitt að
mörgu leyti um að hjálpa mun-
aðarlausum börnum í Keníu og
styðja þau meðal annars til mennta
og margt fleira,“ segir Húni sem
spilaði körfubolta með Keflavíkur-
liðinu og ÍR á árum áður. Hann fór
í háskólanám til Bandaríkjanna á
fullum styrk og nam viðskiptafræði
og kenndi síðan viðskiptafræði í
nokkur ár við Háskólann á Akur-
eyri. Í dag er hann með meistara-
próf í alþjóðaviðskiptum en allt
þetta nýtist honum þegar hann er
að byggja upp líf munaðarlausra
barna í Afríku, verkefni sem hann
langar að fari á flug núna með að-
stoð fleiri aðila.
Hvernig fannstu þetta þorp í
Afríku?
„Það var árið 2016 sem ungur
maður skrifar mér á facebook. Við
áttum sameiginlega vini en ég á
nokkuð marga erlenda vini vegna
veru minnar í Bandaríkjunum og á
ferðalögum mínum um allan heim
undarfarin ár til að sækja nám-
skeið og fá þjálfun af ýmsum toga.
Þessi maður segir mér að hann og
kristin fjölskylda hans séu með tíu
börn á munaðarleysingjahæli sem
þau reka heima hjá sér en foreldrar
hans eru bæði prestar. Ég var tor-
trygginn í fyrstu og ákvað að prófa
hann til að athuga hvort hann væri
að segja mér satt. Hann spurði
mig hvort ég gæti sent peninga
svo hann gæti keypt úlpu handa
þessum tíu börnum en þarna
kólnar mjög yfir veturinn. Ég sagði
honum að ég myndi aldrei senda
honum pening heldur vildi ég
frekar senda það sem hann vantaði
og í þessu tilfelli voru það úlpur en
sagðist vilja sjá ljósmyndir af börn-
unum í úlpunum. Ég var nú ekki
alveg á því að senda honum pening
strax að óreyndu enda með varann
á mér og ákvað að prófa hann. Svo
sendi ég honum skilaboð eftir tvo
mánuði og spurði hvort hann væri
búinn að fá úlpurnar sem ég sagði
honum að ég hafði sent en ég var
ekki búinn að senda neitt frá mér.
Ef hann hefði sagt já þá hefði ég
lokað á þennan mann því þá vissi
ég að hann væri svikari en hann
svaraði nei og sagðist ekki vera
búinn að fá neitt frá mér. Þá ákvað
ég að senda honum pening fyrir tíu
úlpum að andvirði 10.000 krónur.
Stuttu seinna fékk ég senda ljós-
mynd af börnunum í úlpunum og
miklar þakkir fyrir gjafirnar. Eftir
þetta hef ég fætt og klætt barna-
hópinn sem nú eru orðin 35 talsins
en allt eru þetta munaðarlaus
börn. Foreldrar stráksins
eru með honum í
þessu verkefni
en ég ákvað að
koma að þessu
verkefni með
þeim og fór
í heimsókn
í nóvember
2018 í þetta
litla þorp í
Keníu, skoðaði
allar aðstæður
og leist vel á. Mér
fannst mjög gaman
að koma og hitta
fólkið og krakkana sem ég
hafði verið að styðja. Börnin voru
nánast mállaus á ensku en samt
gátum við náð saman. Sú heimsókn
kveikti enn frekar á áhuga mínum,“
segir Húni.
Vill gera heiminn betri
Húni Húnfjörð hefur mikinn áhuga
á manneskjunni og hvernig hægt
sé að byggja upp sjálfstraust og
styrk. Hann hefur sjálfur sótt alls-
konar námskeið í gegnum árin á
sviði jákvæðs hugarfars og fengið
uppbyggjandi þjálfun hjá erlendum
andlegum leiðbeinendum. Hann
langar að miðla þessu til barnanna
í Afríku svo þau geti hjálpað sér
sjálf í framtíðinni.
„Ég vil gera heiminn betri
og veit að við getum
gert betur. Staðan
er þannig að ég
vinn í samstarfi
við þessa fjöl-
skyldu að
uppbyggingu
á svæðinu.
Ég keypti
jörðina við
hliðina á þeirra
en það er mjög
sjaldgæft að út-
lendingar fái að
kaupa land þarna en
mér var treyst. Munaðar-
leysingjahæli er til staðar þarna,
þar sem börnin eiga heima núna
en það er þröngt enda eru þau inni
á heimili fjölskyldunnar sem ég er
í samstarfi við. Við viljum byggja
sér húsnæði fyrir þau og skóla. Það
er mun meira frelsi þarna til þess
að skapa það skólaumhverfi sem
við viljum. Í Keníu má ég byggja
eins og ég vil og kenna eins og ég
vil. Skólaganga fyrir þessi börn er
möguleg vegna verkefnis okkar. Ég
vil þjálfa börnin í að verða sterkir
einstaklingar, frumkvöðlar og leið-
togar í framtíðinni. Ég vil kenna
þeim á þann hátt að það verði. Þau
munu læra allt sem hefðbundnir
skólar kenna nema þau fá einnig
einstaklings valdeflingu svo þau
verði sterkir einstaklingar,“ segir
Húni.
Skólinn mun efla
nemendur á margan hátt
„Ég er hugsuður og veit ég er á
undan samtíð minni en ég brenn
fyrir þessu verkefni, að fá að hjálpa
þessum börnum og langar að fá
fleiri til liðs við okkur. Ég vil planta
fræi sem verður að tré fyrir næstu
kynslóð. Mig langar að vekja at-
hygli á verkefninu og bjóða fólki
og fyrirtækjum að taka þátt. Við
erum byrjuð að búa til múrsteina
fyrir fyrstu bygginguna sem verður
með baðherbergi, þvottahúsi, einu
herbergi fyrir kennara og svefnloft
fyrir krakkana. Í stóra rýminu í
fyrstu byggingunni verður aðstaða
til að kenna á tölvur og vinna alls
konar verkefni og horfa á skjá-
varpa. Stórt eldhús verður til að
elda ofan í alla krakkana og mat-
salur. Í dag er allt eldað á moldar-
gólfi og engin matsalur. Við erum
einnig búin að setja saman söfnun
til að bora fyrir vatni fyrir skólann
og ætlum að gefa öllum vatn sem
þurfa á að halda í umhverfinu í
kringum skólann, því það er eitt af
þeirri hugmyndfræði sem skólinn
okkar stendur fyrir, að gefa aftur
til samfélagsins. Vegna viðskipta-
fræðimenntunar minnar geri ég
áætlanir og veit hvað þetta kostar
allt saman. Foreldrar vinar míns
segja að ég sé bænasvar þeirra
því verkefnið fór verulega á skrið
eftir að ég kom að því. Í skólanum
sem við erum að byggja munum
Það er ekki á hverjum degi
sem maður hittir ungan
mann eins og Húna Hún-
fjörð, sem brennur fyrir því
að hjálpa munaðarlausum
börnum í Afríku. Hann fékk
löngun, aðeins átta ára
gamall, til að hjálpa hungr-
uðum börnum. Við hittum
unga manninn að máli
sem lætur sig ekki aðeins
dreyma um að framkvæma
hlutina heldur lætur verkin
tala og leitar nú eftir
fleirum sem vilja hjálpa til í
litlu þorpi í Kenía.
Mar ta Eiríksdóttir
marta@vf.is
VIÐTAL
Úr körfuboltanum í
Af hverju er þetta ekki kennt í skólum?
Í bæklingi frá Húna vegna verkefnisins stendur eftirfarandi:
„Þekkir þú einhvern sem hefur klárað skólagönguna og þá fyrst hefur við-
komandi farið að læra eitthvað sem skiptir máli í lífinu? Ég er einn af þeim.
Ég, Húni Húnfjörð, kláraði viðskiptafræðinám í Bandaríkjunum árið 2002
og tók svo meistaragráðu við Háskólann á Akureyri í alþjóðaviðskiptum árið
2009. Það var nú samt ekki fyrr en árið 2012 þegar ég fór að læra frá þjálfurum
um allan heim, sem voru búnir að áorka merkilegum hlutum í lífinu, að ég
fór að læra eitthvað að gagni. Þegar ég læri eitthvað nýtt í dag sem nýtist mér
í lífinu, þá spyr ég alltaf ; Af hverju er þetta ekki kennt í skólum?“
Húni ásamt
dóttur sinni, sem
heitir Evey Eydal
Húnfjörð.
10 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 18. júlí 2019 // 28. tbl. // 40. árg.