Víkurfréttir - 18.07.2019, Page 16
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Auglýsingasími: 421 0001 Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00
facebook.com/vikurfrettirehf
twitter.com/vikurfrettir
instagram.com/vikurfrettir
MUNDI
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
Hótel í skipi?
Er það ekki bara
skemmtiferðaskip?
SANDGERÐI
GARÐUR
Framtíð Suðurnesjabæjar
Hugmyndasamkeppni
um nýtt aðalskipulag
Suðurnesjabær er yngsta sveitarfélag landsins
og efnir til opinnar hugmyndasamkeppni um
mótun nýs aðalskipulags.Við erum að leita
að spennandi og framsæknum hugmyndum
en keppnin er einnig liður í vali á ráðgjafa til
að vinna að gerð aðalskipulagsins.
Þú finnur keppnislýsingu og öll gögn á
sudurnesjabaer.is/is/hugmyndasamkeppni.
Skilafrestur er til 4. október nk.
Mótaðu framtíðina með okkur.
SUNNUDAGSKVÖLD KL. 20:30 Á HRINGBRAUT OG VF.IS
SUÐUR MEÐ SJÓ
NOW Air
Hver fjárfestahópurinn á fætur
öðrum er þessa dagana að míga utan
í þrotaeignir WOW air eða snusa af
holunni sem þrot flugfélagsins skildi
eftir sig í leit að skjótfengnum gróða.
Ekki nema von að menn sjái tækifæri
í stöðunni þegar flugfargjöld eftirlif-
andi samkeppnisaðila stórhækkuðu
yfir nótt - engum til neinnar gleði,
nema hluthöfum.
Kaffistofur landsmanna eru uppfullar
af sjálfskipuðum flugrekstrarsér-
fræðingum og um fátt annað talað,
nema kannski hversu gott sumarið
hefur verið, amk. hér á suðvestur-
horninu.
Skal engan undra.
Fall WOW air hafði nefnilega ekki
bara djúpstæðari áhrif á hagkerfið
Ísland en nokkurn hefði órað heldur
líka þjóðarsálina. Nýjustu tölur sýna
20% samdrátt í fjölda ferðamanna
til Íslands milli ára. 2018 var vissu-
lega metár en svona gríðarlegar
sveiflur eru mjög erfiðar, sér í lagi
eftir miklar fjárfestingar í uppbygg-
ingu á ferðaþjónustu, hvort sem um
ræðir einkaaðila eða hið opinbera.
Áhrifin eru víða, en helst þó á ferða-
þjónustuna og tengdar greinar.
Tengdar greinar eru ekki bara flug-
þjónustuaðilar, bílaleigur, afþrey-
ingarfyrirtæki, lundabúðir, hótel og
veitingastaðir. Það verða allir fyrir
áhrifum, hvort sem þau eru bein eða
óbein. Sem dæmi verður ríkið (lesist:
við þjóðin) af miklum tekjum í formi
virðisaukaskatts og afkoma ríkissjóðs
versnar.
Atvinnuleysi hefur aukist. Atvinnu-
leysi er sérstakt fyrirbæri. Það er
mælt sem % af vinnuaflinu en fyrir
einstakling þá upplifir hann ekki at-
vinnuleysi sem %. Annað hvort er
hann með vinnu (0% atvinnuleysi)
eða ekki (100% atvinnuleysi). Að
vera ekki með vinnu skapar mikla
streitu og setur allar áætlanir í upp-
nám. Aukið atvinnuleysi veldur
sömuleiðis óvissu í hagkerfinu og
óvissa hefur alltaf neikvæð áhrif á
fólk. Það frestar fjárfestingum og
dregur úr neyslu. Fyrirtæki draga úr
ráðningum á starfsfólki, fækka jafn-
vel fólki og fresta fjárfestingum. Allt
þetta hægir enn frekar á hagkerfinu.
Seðlabankinn er meira að segja farinn
að taka upp á því að lækka vexti - svo
alvarlegt er ástandið.
Íslenska hagkerfið byggir á þremur
meginstoðum: Orku, sjávarafurðum
og ferðaþjónustu. Svo mikil sveifla
í einni af þessum grunnstoðum ís-
lenska hagkerfisins hefur einfald-
lega of alvarleg og of víðtæk áhrif á
þetta litla hagkerfi til að láta hana
afskiptalausa.
Í ljósi síðustu talna af samdrætti í
fjölda ferðamanna til landsins þá
er það einfaldlega ábyrgðarleysi að
láta það í hendur eins lögfræðings
og leyfa honum að maka krókinn af
því að selja aðgöngumiða að þessari
ferðamannaperlu sem Ísland er. Ég
skora því á stjórnvöld að taka yfir
þetta ferli og koma planinu NOW air
í gang, núna.
LOKAORÐ
Ingu Birnu Ragnarsdóttur