Fréttablaðið - 23.08.2019, Síða 8

Fréttablaðið - 23.08.2019, Síða 8
En hvað gerist í framtíðinni er háð aðstæðum. Rajnath Singh, varnarmálaráðherra Indlands INDLAND Nýleg ummæli Rajnaths Singh, varnarmálaráðherra Ind- lands, þykja benda til þess að stjórn- völd þar í landi séu opin fyrir því að beita kjarnorkuvopnum sínum án þess að skotið sé á Indverja fyrst (e. no first use). „Í dag er kjarnorku- stefnan sú að beita vopnunum ekki að fyrra bragði. En hvað gerist í framtíðinni er háð aðstæðum,“ sagði Singh á sunnudag er hann var staddur í Pokhran, þar sem Ind- verjar gerðu kjarnorkutilraunir árið 1998. Blaðamönnum Hindustan Times þóttu ummælin ekki til marks um að stefnan, sem tekin var upp árið 2003, hafi verið felld úr gildi. Hún þykir hins vegar ekki jafnhelg nú og áður. „Þarna var ekki um formlega stefnubreytingu að ræða,“ sagði í frétt blaðsins. Hins vegar væru ummælin afar mikilvæg. Þótt ýmsir indverskir stjórnmála- menn hafi í gegnum tíðina lýst yfir efasemdum um ágæti stefnunnar um að beita kjarnorkuvopnum ekki að fyrra bragði hefur enginn þeirra verið jafnháttsettur og Singh. Í umfjöllun Asíumálaritsins The Diplomat segir að með yfirlýsing- unni sé Singh í rauninni að sanna það sem stjórnvöld í bæði Pakistan og Kína, ríkjum sem eiga í lang- varandi deilum við Indland, hafa alla tíð haldið fram. Að Indverjum sé ekki alvara með stefnunni. Ind- verjar hafa varpað fram sams konar efasemdum um að Kínverjar hafi þessa sömu stefnu, líkt og kínversk stjórnvöld lýstu yfir árið 1964. En hversu slæmar þurfa aðstæður að vera svo Indverjar geti hugsað sér að beita kjarnorkuvopni? Deilan við Pakistana, einnig kjarnorku- veldi, um Kasmír hefur harðnað mjög á undanförnum mánuðum. Eftir meinta hryðjuverkaárás sam- takanna JeM í Pulwama í indverska hluta Kasmír fyrr á árinu sögðust Indverjar til að mynda hafa gert árásir á hryðjuverkasamtökin á pakistanskri grundu og voru Pakist- anar afar ósáttir. Hermenn ríkjanna skiptust á skotum en ekki kom til alvarlegri átaka. Þá er vert að nefna að ástandið í indverska hluta Kasmír núna, sem Indverjar hafa svipt sjálfs- stjórn, hefur kallað fram afar hörð viðbrögð í Pakistan, sem líkt og Ind- land gerir tilkall til alls héraðsins. „Kjarnorkuvopn Pakistans hafa þrengt að möguleikum Indverja í hefðbundnum hernaði og valdið stjórnvöldum í Nýju-Delí erfið- leikum,“ skrifaði blaðamaður The Diplomat og hélt áfram: „Árásin á JeM, sem kom f lestum á óvart, sýndi Pakistönum að hefðbundinn hernaður er enn mögulegur þrátt fyrir þann háa þröskuld sem er fyrir notkun kjarnorkuvopna. Pakist- anar gætu ekki lengur falið sig á bak við kjarnorkuvopnin og hagnast á frekari árásum annarra á Indland.“ thorgnyr@frettabladid.is Gætu vikið frá stefnu sinni um beitingu kjarnorkuvopna Varnarmálaráðherra Indlands talar nú með öðrum hætti um notkun kjarnorkuvopna. NORDICPHOTOS/GETTY Hátíðahöld á Indlandi Nemendur í SNDT-háskólanum í Mumbai á Indlandi klæddu sig upp sem hindúaguðinn Krishna og tóku sjálfu í tilefni af Janmashtami-hátíðinni sem hófst í landinu á miðvikudaginn. Hátíðin stendur yfir í tvo daga og er tileinkuð fæðingu Krishna sem er einn vinsælasti guð hindúa. Mikill undirbúningur er lagður í hátíðina og fasta margir hindúar á fyrri degi hennar og snerta ekki mat fyrr en á miðnætti. NORDICPHOTOS/GETTY Varnarmálaráðherra Indlands gefur til kynna að Indverjar gætu vikið frá stefnu sinni um að beita kjarnorku- vopnum ekki fyrr en á þá er skotið fyrst. Ekki formleg stefnubreyting. Deilan við Pakistana hefur harðnað til muna. BRASILÍA Jair Bolsonaro, forseti Bras- ilíu, segir að brasilíska ríkið skorti mátt til að berjast við hina miklu skógarelda í Amazon. „Við höfum ekki nægilegt bol- magn. Hér ríkir ringulreið,“ sagði Bolsonaro í gær. Meira en 70 þúsund skógareldar hafa geisað í Amazon á þessu ári, sem er umtalsvert meira en árin á undan. Bolsonaro kenndi náttúru- verndarsamtökum um eldana en hefur síðan viðurkennt að hafa ekki sannanir fyrir þeim kenningum sínum. Hefur hann fyrirskipað rann- sókn á upptökum eldanna. – khg Bolsonaro viðurkennir vanmátt Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu. NORDICPHOTOS/GETTY BRETLAND Angela Merkel Þýska- landskanslari tilk y nnti Boris Johnson, forsætisráðherra Bret- lands, að hann hefði 70 daga til að ná nýju samkomulagi um útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu. Áður hafði hún sagt að fresturinn væri 30 dagar. Johnson fundaði með leiðtogum Evrópu í París í gær um stöðuna en eins og málin standa fara Bretar út án samnings þann 31. október. Emmanuel Macron Frakklands- forseti þrýsti á Johnson að sýna fram á heilsteypta áætlun sem fyrst því að ekki væri hægt að semja á síðustu stundu. Eitt helsta málið á dagskrá voru landamærin við Írland. Fullvissaði Johnson kollega sína um að þegar hefði verið unnið að „tæknilegri útfærslu“ til að koma í veg fyrir upp- setningu landamærastöðva án þess að skýra það nánar. – khg Bretar sýni heilsteypta áætlun sem fyrst Johnson og Merkel ræddu saman í gær. NORDICPHOTOS/GETTY SPÁNN Vinahópur á Spáni keypti eyðiþorp í Galisíuhéraði fyrir aðeins 140 þúsund evrur, eða rúmar 19 milljónir króna. Þorpið hefur verið mannlaust í hálfa öld og öll húsin því í niðurníðslu en vinirnir hyggjast byggja þau upp og dvelja þar í ellinni. Alls eru um 3.000 eyðiþorp á Spáni, f lest í norður og norðvestur- héruðunum. Mörg hús í eyðiþorp- um eru auglýst hjá fasteignasölum og útlendingar hafa sýnt þeim áhuga á undanförnum árum. – khg Keyptu þorp á 19 milljónir 2 3 . Á G Ú S T 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 3 -0 8 -2 0 1 9 0 5 :1 5 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 A 0 -E C 1 8 2 3 A 0 -E A D C 2 3 A 0 -E 9 A 0 2 3 A 0 -E 8 6 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 2 2 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.