Fréttablaðið - 23.08.2019, Page 12

Fréttablaðið - 23.08.2019, Page 12
KÖRFUBOLTI „Það er stutt á milli í þessu, nokkrum dögum áður leikur liðið gegn Portúgal senni- lega sinn besta leik í mörg ár en svo gerist þetta í Sviss. Þetta eru allt of mörg stig sem Sviss setur á okkur,“ segir Friðrik Ingi Rúnarsson, fyrr- verandi landsliðsþjálfari, spurður út í frammistöðu Íslands gegn Sviss. „Þetta byrjar vel en fer svo að hiksta, menn verða staðir og menn missa augnablikið. Það er hættulegt að spila á þessu kalíberi að vita það aftast í hausnum að þú megir tapa með einhverjum mun þó að menn hafi auðvitað komið í leikinn til að vinna,“ segir Friðrik og heldur áfram: „Sviss óx ásmegin eftir því sem leið á leikinn á sama tíma og spila- mennska Íslands molnaði niður. Sviss var að setja stórar körfur og fá augnablikið með sér og við það grípur um sig smá örvænting hjá Íslandi sem er mannlegt og eðlilegt á sama tíma og Sviss fær blóð á tenn- urnar og gengur á lagið.“ Hann finnur til með þjálfara- teyminu. „Þeim var enginn greiði gerður með að fá enga æfingaleiki í sumar. Þetta voru risavaxnir leikir fyrir framtíðaráform Íslands og þeir fengu ekki leikina sem til þurfti. Kannski var það þetta litla sem vantaði upp á gegn Portúgal úti. Að menn væru búnir að hlaupa af sér hornin.“ kristinnpall@frettabladid.is Íslenska karlalandsliðið féll úr leik í undankeppni EM eftir 24 stiga tap fyrir Sviss í vikunni. Íslenska liðið mátti tapa með nítján stigum en eftir fína byrjun hrundi spilamennska Íslands. Við það fékk Sviss blóð á tenn- urnar gegn örvæntingar- fullum Íslendingum. Þeim var enginn greiði gerður með að fá enga æfingaleiki í sumar. Friðrik Ingi Rúnarsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari 2 3 . Á G Ú S T 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R12 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT 1 sókn Sviss endaði ekki með körfu á síðustu sex mínútum leiksins, þegar skref var dæmt á mið- herjann Clint Capela. Vörn Íslands var í molum þegar á reyndi undir lok leiksins. Þegar íslenska vörnin þurfti að stöðva Sviss átti hún engin svör. 42% stiga Íslands í seinni hálfleik komu af vítalínunni eða sextán samtals í tuttugu tilraunum. 2 ár hið minnsta eru í að Ísland leiki næsta leik sinn í undankeppni fyrir stórmót. Ljóst er að Ísland missir af EuroBasket 2021 og er undankeppni HM 2023 næst á dagskrá landsliðsins. Fram að því mun liðið leika æfingaleiki og á Smáþjóða- leikunum. 8 fráköstum munaði á liðunum undir körfu Ís- lands. Ísland réð ekkert við Sviss í baráttunni um frá- köstin undir körfu Íslands og fékk Sviss allt of oft fleiri tilraunir í sömu sókninni. 102 stigum munaði á úrslitum íslenska liðsins á heima- og útivelli í undankeppni EuroBasket 2021. Ísland vann þrjá af fjórum heimaleikjunum og var 46 stigum yfir á heima- velli í undankeppninni en á útivelli töpuðust allir Pavel Ermolinskij var einn fárra sem þorðu að taka af skarið í sóknarleik Íslands í seinni hálfleik gegn Sviss áður en hann fór af velli með fimm villur skömmu fyrir leikslok. NORDICPHOTOS/EPA Ísland molnaði niður í Sviss Óvíst er með framhald landsliðsþjálfarans Craigs Pedersen með landsliðið en samningur hans við KKÍ rennur út um áramótin. MYND/FIBA EUROPE leikirnir með samanlagt 56 stiga mun. 5 stig fékk Ísland úr opn-um leik á mikilvægum kafla frá því að Tryggvi Snær kom Íslandi fjórum stigum yfir í upphafi annars leik- hluta þar til Martin minnk- aði forskot Sviss niður í níu stig tæpum ellefu mínútum síðar. Tólf stig af vítalínunni héldu lífi í Íslandi á þessum tímapunkti. 6 þrista setti Ísland niður í átta tilraunum í fyrsta leikhluta. Í næstu þremur leikhlutum hitti Ísland úr þremur af átján skotum sínum fyrir utan þriggja stiga línuna. 29 stigum skilaði Ro-berto Kovac, nýjasti leikmaður ÍR, gegn Íslandi. Á átta ára ferli með félags- liðum hefur Roberto þrisvar verið með þrjátíu stig eða meira í leik. 109 stig setti Sviss í leiknum. Þetta var í fyrsta sinn sem Sviss brýtur hundrað stiga múrinn í opinberum keppnisleik í undankeppni HM eða EM. 9 leikjum í röð er Ísland búið að tapa á útivelli í undankeppni EM/HM eða síðan Ísland vann ellefu stiga sigur á Kýpur árið 2016. 2 3 -0 8 -2 0 1 9 0 5 :1 5 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 A 0 -C 4 9 8 2 3 A 0 -C 3 5 C 2 3 A 0 -C 2 2 0 2 3 A 0 -C 0 E 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 2 2 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.