Fréttablaðið - 23.08.2019, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 23.08.2019, Blaðsíða 16
Viltu birta minningargrein á frettabladid.is? Minningargreinar skal senda á timamot@frettabladid.is. Birting er endurgjaldslaus og opin öllum á frettabladid.is/timamot Konan mín fékk hugmyndina að þessum tónleikum og ég greip hana á lofti. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Margrét Sveinsdóttir Baldursgötu 26, sem andaðist á Hrafnistu Laugarási 15. ágúst, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 26. ágúst kl. 13.00. Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Gigtarfélagið. Gunnar V. Guðmundsson Pétrína Ó. Þorsteinsdóttir Karl B. Guðmundsson Guðrún Vilhjálmsdóttir Björgvin G. Guðmundsson Hildur Pálmadóttir Þórir B. Guðmundsson Hafdís Ingimundardóttir barnabörn og langömmubörn. Ástkær faðir okkar, afi og langafi, Birgir Hólm Helgason tónlistarmaður og kennari, lést á hjúkrunarheimilinu Hlíð, föstudaginn 16. ágúst. Útför fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 26. ágúst kl. 13.30. Jóhanna Kristín Birgisdóttir Konráð Jón Birgisson Guðbjörg Margrét Birgisdóttir Ásdís Inga Birgisdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn og vinur, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Örn Helgason prófessor emeritus, Norðurbakka 17a, lést 19. ágúst sl. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðar- kirkju, miðvikudaginn 28. ágúst kl. 13. Bjarney Kristjánsdóttir Ívar Örn Arnarson Guðný Ævarsdóttir Hörður Hinrik Arnarson Emelía Victorsdóttir Lúðvík Arnarson Nína Hrönn Sigurðardóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, Svala Markúsdóttir læknaritari, Berjavöllum 6, Hafnarfirði, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 17. ágúst. Jarðarför fer fram frá Hafnarfjarðar- kirkju í dag, föstudag, klukkan 15.00. Fyrir hönd aðstandenda, Markús Bergmann Leifsson Sonja Leifsdóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Ragnar S. Halldórsson verkfræðingur og fyrrverandi forstjóri, lést á Landspítalanum í Fossvogi miðvikudaginn 7. ágúst. Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju mánudaginn 2. september kl. 13. Margrét K. Sigurðardóttir Kristín Vala Ragnarsdóttir Halldór Páll Ragnarsson Jóhanna H. Jónsdóttir Sigurður R. Ragnarsson Þórdís Kjartansdóttir Margrét Dóra Ragnarsdóttir Hjálmar Gíslason og barnabörn. Ármann Guðmundsson, sem þekktastur er fyrir að vera einn af Ljótu hálf-vitunum, stendur fyrir tónlistarhátíðinni Rauða-ge r ði s br ek k a n 2019 síðdegis á morgun, laugardag, og auð- vitað er ókeypis „inn“. Hann segir fimm hljómsveitir koma fram á svölum efstu hæðar Rauðagerðis 16. Þær eigi það sam- eiginlegt að einn eða fleiri hljómsveitar- meðlima búi í íbúðinni. Sveitirnar eru: Refur, Góða fólkið, Shockmonkey, A Band on stage og Down & Out. Athygli vekur að Ljótu hálfvitarnir eru ekki meðal þátttakenda þarna á svölunum. Ármann segir það vera af burðarþolstengdum ástæðum. „Þetta eru ekki níu manna svalir og auk þess áttu ekki allir heimangengt.“ Þegar nánar er grennslast fyrir er Ármann sjálfur í fjórum sveitanna sem fram koma og Loftur Loftsson er með honum í þremur þeirra. Dóttir Ármanns og tengdasonur, sem einnig búa í húsinu, eru með honum í Shockmonkey. Spurð- ur hvort hann hafi haldið tónleika þarna áður svarar Ármann: „Nei, ég er tiltölulega nýf luttur hingað í Rauðagerðið. Ég bjó í nokkur ár við Sogaveginn og þá var brekkan fyrir neðan mig en nú er ég kominn niður fyrir brekkuna og hún hentar vel sem áheyrendasvæði. Konan mín fékk hugmyndina að þessum tónleikum og ég greip hana á lofti, ekki síst af því að þegar ég varð fimmtugur á síðasta ári setti ég mér það markmið að halda fimmtíu og tvö gigg á þessu ári og skulda mér dálítið af þeim enn.“ Ármann kveðst einmitt hafa notað fimmtugsafmælið til að smala saman þeim hljómsveitum sem hann hafði spilað með gegnum tíðina. „Sumar þeirra voru ekki starfandi en lifnuðu aftur við. Dúettinn Down & Out er elsta sveitin af þessum fimm, hún var stofnuð fyrir 30 árum. Í henni erum við Þorgeir Tryggvason, æskuvinur minn. Hún er fyrsti vísirinn að Ljótu hálfvitunum sem við erum báðir í.“ Ármann spilar á gítar og syngur líka í Down & Out, þar er pínu súrrealismi í gangi, að hans sögn. „Hin böndin eru popp/rokk-kennd, nema Góða fólkið sem er aðallega í þjóðlagatónlist.“ Sér hann fyrir sér að ná markmiðinu um fimmtíu og tvenna tónleika á árinu? „Það er dálítið bókað hjá mér í sept- ember en ég þarf samt að spýta í lófana. Er heimalningur á ágætum tónleikastað, Djúpinu undir Horninu í Hafnarstræti. Það hentar mér vel.“ gun@frettabladid.is Heldur tónleika á svölum Rauðagerðisbrekkan 2019 er nýr viðburður á Menningarnótt. Milli klukkan 15 og 18 koma fram fimm hljómsveitir á svölum Rauðagerðis 16, áheyrendur sitja í brekkunni. Ármann á svölunum með hundinum Bono sem verður yfir öryggismálum á tónleikunum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Félagarnir Einar Kári Ólafsson, sex ára, og Bjartur Hálfdanarson, fimm ára, vilja leggja sitt af mörkum til að gera heiminn betri fyrir börn. Þeir ætla því að opna búð á Hólatorgi 6 í Reykjavík á morgun, Menningarnótt, og safna peningum handa samtökunum Barnaheillum. Hvað skyldu þeir ætla að selja? „Við ætlum að selja dót,“ upplýsir Bjartur, „og límonaði og popp,“ segir Einar Kári. „Líka snúða og svo kannski líka svona brauðhorn sem eru svakalega góð,“ botnar Bjartur. Þeir segjast ætla að safna fyrir fátæku börnin í Ameríku og Afríku. „Til að börnin fái nógu mikinn pening,“ útskýr- ir Bjartur. „Mat og föt og hús,“ bætir Einar Kári við. Drengirnir ætla að vera fyrir utan húsið á Hólatorgi 6. „Það er fugl á hús- inu,“ segir Einar Kári til að auðvelda fólki að finna það og Bjartur segir alla velkomna í búðina. „Nema vondir,“ tekur Einar Kári fram og Bjartur tekur undir það. „Já, vondir og þjófar, þeir stela kannski bara öllu.“ Drengirnir segja búðina verða alveg pottþétt opna milli klukkan 14 og 16 og kannski lengur. – gun Opna búð og styrkja Barnaheill Einar Kári og Bjartur með límonaðiaug- lýsingu sem þeir voru að búa til fyrir morgundaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Þeir segjast ætla að safna fyrir fátæku börnin í Ameríku og Afríku. „Til að börnin fái nógu mikinn pen- ing,“ útskýrir Bjartur. „Mat og föt og hús,“ bætir Einar Kári við. 2 3 . Á G Ú S T 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R16 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT 2 3 -0 8 -2 0 1 9 0 5 :1 5 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 A 0 -E 7 2 8 2 3 A 0 -E 5 E C 2 3 A 0 -E 4 B 0 2 3 A 0 -E 3 7 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 2 2 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.