Fréttir - Eyjafréttir - 22.04.2015, Page 6
6 Eyjafréttir / Miðvikudagur 22. apríl 2015
Sagan berst okkur í eftirlifandi
munum og minjum, rituðum og
munnlegum heimildum, skjölum og
myndum. Sé komið við í Safnahúsi
Vestmannaeyja eða haldið upp á
loft í rými Sagnheima, byggðasafns,
sést víða efni stakra söguþátta sem
saman sett segir ævintýrið um
Eyjarnar öld fram af öld, mann
fram af manni. En hversu rétt getur
sagan verið ef aðeins um 20-25%
efnisins er úr fórum kvenna og að
minnsta kosti þrír fjórðu er búinn til
af körlum og jafnvel að mestu um
þeirra eigin veruleika?
„Árið 2015 eru rétt 100 ár liðin frá
því konur fengu fyrst kosningarétt
til alþingis. Af því tilefni hefur
starfsfólk Safnahúss og Sagnheima,
byggðasafns, ákveðið að nýta árið
til að kalla eftir efni úr fórum
kvenna til að rétta af hlutfallið. Í
skápinn sem sést hér að baki
munum við setja ýmis handarverk
kvenna sem varðveitt eru í húsinu
og um leið kalla eftir samstarfi við
lesendur Eyjafrétta um söfnun slíks
efnis. Í september næstkomandi
mun Kvenréttindafélag Íslands setja
upp farandsýningu í Einarsstofu og
þann mánuð allan munum við sýna
það efni sem afhent hefur verið til
að rétta af hlutfallið,“ segir Kári
Bjarnason, forstöðumaður Safna-
húss um framtakið.
„Því biðjum við lesendur að leita
uppi og koma með bréf eða
dagbækur, ljósmyndir eða handrit,
muni eða hvað nú annað úr fórum
frænku, systur, móður, ömmu,
langömmu o.s.frv. Veltið fyrir ykkur
hvort þið sitjið hugsanlega á efni
sem getur sagt skýrar sögu
Safnahús :: 100 ár frá því konur fengu fyrst kosningarétt:
Úr fórum kvenna er átaks-
verkefni um söfnun heimilda
vestmannaeyskra kvenna fyrir
samtíma og framtíð. Sá góði
bókavörður, Haraldur Guðnason,
auglýsti eitt sinn í blöðum með
þessum orðum: „Athygli skal
vakin á því að gulnaður og
rykfallinn blaða- og bréfabunki
getur geymt ómetanlegar sögulegar
heimildir.“
Beggja kynja
Kári vill benda fólki á hve mikil-
vægt það sé að huga að hversu
mikilvægt það er að bæði karlar og
konur segi jöfnum höndum sögu
sína, að söfnin geymi og miðli
handarverki og hugarverki beggja
kynja sem jafnast, þannig að sagan
sé í raun sönn endurspeglun
fortíðar.
„Slíkt tekst aldrei nema að einnig
þú, lesandi góður, athugir hvort
ekki muni í þínum fórum vera
eitthvað það sem er og verður
fjársjóður fyrir komandi kynslóðir.
Það skiptir svo miklu máli að jafna
hlutfall karla og kvenna. Í Ljós-
myndasafni Vestmannaeyja er að
finna ljósmyndasöfn 84 einstak-
linga, þar af einungis 7 kvenna; á
Skjalasafni er innan við 20%
efnisins ritað af konum og hlutfallið
er aðeins litlu betra í varðveittum
munum Byggðasafns. Þessu þarf að
breyta til þess að við getum sagt
söguna betur og réttar.
Af þessum ástæðum biðja
starfsmenn Safnahúss og Sagn-
heima, byggðasafns alla þá sem
geyma hvers kyns efni sem segir
sögu kvenna í Vestmannaeyjum
með þeirra eigin orðum eða verkum
að hafa samband og leyfa okkur að
skoða og meta og eftir atvikum
varðveita og miðla fyrir nútíð og
framtíð,“ sagði Kári.
Margrét Guðmundsdóttir Ásdís Jónsdóttir í Stakkagerði Jónína N. K. Brynjólfsdóttir
Á morgun, sumardaginn fyrsta,
er jafnframt haldinn hátíðlegur
Dagur bókarinnar víða um
heim. Sameinuðu þjóðirnar
völdu þennan dag sem alþjóð-
legan dag bókarinnar og
höfundarréttar árið 1995 og var
þá einkum haft í huga að
dagurinn er dánardægur
Cervantes og Shakespare. Svo
skemmtilega vill til fyrir okkur
Íslendinga að eina nóbels-
skáldið okkar, Halldór Kiljan
Laxness, er fæddur þennan
sama dag og dagurinn því
merkilegur einnig fyrir bóka-
þjóðina Ísland.
Í Safnahúsinu verður þessa dags
minnst með metnaðarfullri dagskrá
undir yfirskriftinni Bók Íslands,
sagnaarfurinn í nútímanum. Það er
óhætt að lofa góðri skemmtun þar
sem þrír valinkunnir fræði- og
sagnamenn munu fjalla um
bókmenntaarfinn okkar á lifandi
hátt.
Vésteinn Ólason, prófessor, hefur
nýlega lokið við að gefa út
Eddukvæðin í vandaðri útgáfu á
vegum Fornritafélagsins og mun
fjalla um kvenhetjur Eddukvæðanna
og bera þær saman við kvenhetjur
Íslendingasagnanna.
Þá mun Einar Kárason fjalla um
átök sín við Sturlungu undir
fyrirsögninni: Að kljást við
klassíkina. Einar lauk nýverið við
þríleik sinn um átök þrettándu aldar,
í bókunum Óvinafagnaður (2001),
Ofsi (2008) og Skáld (2012). Á sinn
einstaka hátt skilar hann til lesenda
átökum þessa tíma með lifandi
mannlýsingum. Einar mun fjalla um
hvernig hann vann á sinn persónu-
lega hátt úr þessum mikla efniviði
sem Sturlunga er.
Að lokum mun Guðni Ágústsson,
sem sumir fullyrða að hafi verið
uppi sjálfur á tíma Íslendingasagn-
anna, ræða um ástríðuna til
sagnaarfsins, hvers virði bókmenn-
ingararfurinn er hverri kynslóð og
hvað það er sem gerir sögurnar
svona ómótstæðilegar hverjum
Íslendingi sem gefur sig á vald
töfrum þeirra.
Málþingið er haldið í Einarsstofu í
Safnahúsinu í dag, fimmtudag 23.
apríl og stendur kl. 13-15.
Dagskrá í Safnahúsi á Degi bókarinnar:
Vésteinn Ólason,
Einar Kárason og
Guðni Ágústsson
mæta
Orlofsferð húsmæðra
Farið verður til Grindavíkur helgina 29. - 31. maí.
Þar verður gist á glænýju hóteli. Grindavík er gott að heimsækja, þar eru skemmtilegar
gönguleiðir, kaffihús, sundlaug, söfn, verslanir og fleira.
Athugið að allar konur í Vestmannaeyjum hafa rétt á að koma með í þessa ferð.
Pantanir þurfa að berast fyrir 15. maí
Upplýsingar og skráning hjá eftirtöldum konum:
Guðbjörg Ósk Jónsdóttir 481-1500 /864-1847
Ágústa H. Árnadóttir 481-2990/891-9606
Sigurlín Árnadóttir 481-2161/897-7524
Orlofsnefnd húsmæðra
Föstudaginn 24. apríl (daginn eftir
sumardaginn fyrsta) munu Vest-
mannaeyingar sem starfa við ýmis
fyrirtæki og stofnanir í Eyjum
kynna sín störf fyrir nemendum í 9.
og 10. bekk Grunnskólans í
Vestmannaeyjum, nemendum í
Framhaldsskólanum í Vestmanna-
eyjum og fyrir almenningi.
Þessi kynning er samstarfsverkefni
GRV, FÍV og Visku, fræðslu- og
símenntunarmiðstöðvar Vestmanna-
eyja. Markmiðið með henni er að
kynna störf hér í Eyjum þar sem
krafist er menntunar, og styrkja með
því nemendur og fólk í atvinnuleit í
að velja sér nám og störf við hæfi.
Kynningin verður í Framhaldsskól-
anum í Vestmannaeyjum. Þar verður
lifandi starfatorg í salnum, í anddyri
og fyrir framan bókasafnið.
Kynningin verður opin fyrir
nemendur frá kl. 8:30-15:00 og svo
fyrir gesti og gangandi frá kl.
15-16. Lögð verður áhersla á lifandi
kynningar, þar sem veitt verður
innsýn í það sem felst í starfi og
tækifæri gefst til að ræða við
starfsmennina.
Starfakynning fyrir
grunnskólanema
í FÍV