Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 21.10.2015, Qupperneq 12

Fréttir - Eyjafréttir - 21.10.2015, Qupperneq 12
12 Eyjafréttir / Miðvikudagur 21. október 2015 til að losna við gasið. Bað um ryksugu, leiddi svo slöngu út um glugga á kjallaranum og notaði öfugan blástur til að soga gasið út. Reyndar ákváðum við að flytja búferlum skömmu síðar. En Þorkell stóð aldrei á gati, ef eitthvað kom upp á þá reddaði hann því.“ Allt sem tilheyrir manntali og íbúaskráningu Upphaf þess að Áki hóf störf hjá Vestmannaeyjabæ segir hann hafa verið það að hann hafi hálfvegis verið „sjanghæjaður“ þangað af Páli Zóphóníasssyni, sem þá var tæknifræðingur bæjarins. „Hann kom að máli við mig í nóvemberlok 1973 og spurði hvort ég vildi koma og ræða við sig og Magnús bæjarstjóra um að koma til starfa hjá bænum. Ég fór til þessa fundar og niðurstaðan varð sú að ég byrjaði sem bæjarstarfsmaður þann 1. desember 1973 og hef verið það síðan.“ Áki segir að hann hafi byrjað í almennum skrifstofustörfum og innheimtu ásamt því að annast hvers kyns upplýsingaöflun og halda henni til haga. „Sá hluti starfsins hefur síðan loðað við mig. Ég hef verið svo heppinn að fá borgað fyrir að sinna áhugamáli mínu en þessi áhugi hefur loðað við mig allt frá því að ég man eftir mér. Líklega á ég ekki langt að sækja það, faðir minn hafði sama áhugamál, að afla sér upplýsinga um hvaðeina sem tengist Eyjum og íbúum þar.“ Starfsheiti Áka hjá Vestmanna- eyjabæ var „manntals- og upplýs- ingafulltrúi“ en hann segir að einhvern tíma á ferlinum hafi einhverjum dottið í hug að breyta því starfsheiti í „þjónustufulltrúi 4“. „Ég kunni einhvern veginn betur við hitt heitið, fannst það ríma betur við mitt starfssvið. Eins og starfsheitið ber með sér hef ég séð um allt sem tilheyrir manntalinu og íbúaskráningu og upplýsingum vegna þess. Þá hafa kosningar einnig verið á minni könnu, bæði sveitarstjórnarkosningar, þingkosn- ingar og forsetakosningar, ég hef séð um undirbúning þeirra, það sem snýr að kjörstjórnum og starfsliði og allt það sem til þarf, matföng og annað sem þarf að vera í lagi á kjördegi. Frá árinu 1975, þegar farið var að greiða svokallaðan olíustyrk til þeirra sem ekki nutu hitaveitunnar, sá ég um greiðslu hans og þá var oft mikið að gera, stundum biðröð að útidyrunum í Ráðhúsinu. Auk þessa hef ég gengið í ýmis önnur störf í Ráðhúsinu en hin síðari ár hefur það eins og áður segir verið mest í alls kyns upplýsingaöflun.“ Þá er ótalið að hann hefur séð um „Bæjartrompið“ í 40 ár en það er happdrættisfélag starfsmanna Ráðhússins. „Ég var að skila af mér möppu um þá starfsemi en þar er m.a. að finna skrá yfir alla happ- drættisfélaga Ráðhússins frá 1975 til 2015 og er mjög góð heimild. Ég eftirlét fjármálastjóra bæjarins möppuna með öllum gögnum og ósk um að einhver myndi áfram sjá um þessa skráningu.“ Eins og áður segir er Bæjartromp happdrættisfélag starfsmanna en Áki segir að það hafi ekki skilað verulegum upphæðum til félags- manna, utan eitt árið þegar ein milljón króna skilaði sér í einum drættinum. „Þá var greidd út góð summa og glöddust margir,“ segir Áki. Samstarfsmennirnir eru líka margir eftir þessa rúma fjóra áratugi og margir minnisstæðir. „Fyrstu árin unnum við saman frændsyst- kinin, ég og Fríða Hjálmarsdóttir en amma hennar og langamma mín voru hálfsystur. Hún átti sama afmælisdag og ég, 4. febrúar, og einhverju sinni sagði hún mér að þegar hún var lítil hafi alltaf verið haldið upp á afmælið hennar, að undanskildum deginum þegar hún varð tólf ára. Þann dag lenti móðir hennar, Jóna ljósa, í mjög erfiðri fæðingu á Fífilgötu 5 og af þeim sökum var ekki haldið upp á afmælið. Það var sem sagt mér að kenna að afmælisveislan féll niður þann dag.“ Hálfur vörubílsfarmur af bréfsefnum Alls hafa fimmtán manns gegnt embætti bæjarstjóra í Vestmanna- eyjum, frá 1919 til 2015, sam- kvæmt töflu úr upplýsingasaman- tekt Áka og föður hans. Hann hefur starfað með níu þeirra og ber þeim vel söguna. „Þeir voru hver með sín sérkenni og mismunandi stjórnunar- stíl og ég kunni vel við þá alla. Líklega er Páll Zóphóníasson þó minnisstæðastur. Hann var ákaflega röggsamur og maður vissi vel af honum. Sigfinnur Sigurðsson staldraði hér stutt við en ég man að í hans bæjarstjóratíð var keypt bifreið af Cortinu-gerð til afnota fyrir bæjarskrifstofurnar. Einn daginn var ég sendur niður á Eimskip til að sækja pappírssend- ingu sem hann hafði pantað, bréfsefni og umslög fyrir Vest- mannaeyjabæ. En þegar ég mætti á staðinn kom í ljós að Cortínan dugði ekki til að rúma þá sendingu. Þarna var um að ræða hálfan bílfarm og varð að panta vörubíl til að koma henni á áfangastað. Það var mikill burður, man ég, að koma því öllu upp á þriðju hæð í Útvegsbankanum þar sem bæjar- skrifstofurnar voru þá. Þetta voru feiknarlega vönduð bréfsefni og umslög, með upphleyptu letri, prentað í Englandi og þetta dugði árum saman.“ Áki hefur lengst af ævinni verið einhleypur. „Skömmu eftir gos kynntist ég stúlku frá Selfossi, Kristínu Gísladóttur, og við giftum okkur 1975. Það hjónaband varð ekki langlíft, við skildum árið 1982 en eigum saman dótturina Sigríði sem býr í Reykjavík með fjölskyldu sinni. Og barnabörnin eru orðin fjögur, þannig að ættboginn helst gangandi hjá mér eins og Torfa bróður,“ segir Áki og brosir breitt. Aðaláhugamálið enn til staðar Aldursins vegna hefði Áki Heinz mátt halda áfram störfum í rúmt ár til viðbótar. En hann ákvað sjálfur að hætta um síðustu mánaðamót. „Ég átti við slæm veikindi að stríða árið 2012 en komst nokkuð klakklaust frá því. Í fyrra langaði mig hins vegar til að minnka við mig starfshlutfallið og ákvað að færa mig í 50% starf um síðustu áramót en með því er unnt að hefja töku lífeyris. Svo í sumar taldi ég rétt að taka skrefið til fulls og fara að njóta þess að vera engum háður og geta alfarið tekið að sinna áhugamálunum. Sagði upp og hætti um mánaðamótin september - októ- ber. En mér var ljóst að menn hætta ekki bara allt í einu að vinna og sitja með hendur í skauti, það getur haft slæmar afleiðingar. Menn verða að hafa eitthvað fyrir stafni og ekki gleyma að hugsa um líkamlegt ástand. Einu sinni til tvisvar í viku fer ég í vatnsleikfimi í sundlauginni, er þar eini karlinn með fimmtán konum og fer vel á með okkur. Svo fer ég í þrek í sjúkraþjálfuninni uppi á spítala tvisvar í viku auk þess að ganga mikið. Þar með er líkamlegu hliðinni prýðilega sinnt.“ Aðaláhugamálið hans Áka, grúsk og upplýsingaöflun, hvarf ekki með starfslokum í Ráðhúsinu. Áki Heinz er enn á fullu við þá iðju, núna heima við fyrir framan tölvuna. Hann er mjög virkur inni á fésbókarsíðunni Heimakletti, þar sem er að finna urmul af gömlum myndum og upplýsingum um Vestmannaeyjar og mannlífið þar. Oft birtast þar myndir af fólki sem viðkomandi vita ekki deili á. Þá er Áki Heinz oftar en ekki bjargvætt- urinn, í flestum tilfellum er hann kominn með nöfn og upplýsingar samdægurs. Sannarlega ómetanlegt að hafa slíkan viskubrunn á meðal vor. Og þó svo að Áki Heinz vinni ekki lengur hjá bænum sem slíkur, þá hefur hann ekki alveg slitið tengslin. „Við komum nokkur saman sem höfum áhuga á ljósmyndum úr Eyjum og sækjum myndasýningar í Safnahúsinu á fimmtudögum. Þar hafa verið myndasýningar, og öllum er frjálst að koma á þær sýningar. Þar reynum við að bæta inn í það sem skortir á upplýsingar með mynd- unum og skapa þar með gleggri og skýrari mynd af liðinni tíð. Þetta er og hefur verið mitt aðaláhugamál hingað til og ég vona að mér gefist núna enn betra tækifæri til að sinna því á komandi árum,“ sagði Áki Heinz Haraldsson að lokum. Starfsfélagar í Ráðhúsinu kvaddir. Myndin tekin á síðasta starfsdegi Áka hjá bænum, 30. september sl., afmælisdegi föður hans, Haraldar Guðnasonar. Bæjarstjóratal í Vestmannaeyjum er meðal gagna, sem þeir feðgar Haraldur Guðnason og Áki tóku saman Bæjarstjórar í Vestmannaeyjum Karl Júlíus Einarsson 1919 – 1924, oddviti bæjarstjórnar Kristinn Ólafsson 1924 – ág.1928 kosinn almennri kosningu Jóhann Gunnar Ólafsson jan 1929 (settur) 1930 – 1939 Hinrik Guðmundur Jónsson 1939 – 1946 Ólafur Ágúst Kristjánsson 1946 – 1954 Guðlaugur Gíslason 1954 – 1966 Magnús Helgi Magnússon 1966 – 1975 Sigfinnur Sigurðsson 1.8 1975 – 1.2. 1976 Páll Zóphóníasson 1976 – 1982 Ólafur Elísson 1982 – 1986 Arnaldur Bjarnason 1986 – 1990 Guðjón Hjörleifsson 1990 – 2002 Ingi Sigurðsson 2002 – 2003 Bergur Elías Ágústsson 2003 – 2006 Elliði Vignisson 2006 – Þessi útsaumsmynd eftir Ille, móður Áka, hangir í stofunni í í íbúð hans í Hásteinsblokkinni og nefnist Burgundardans, unnin með Kelimspori

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.