Fréttir - Eyjafréttir - 06.04.2016, Side 8
8 Eyjafréttir / Miðvikudagur 6. apríl 2016
Bærinn hefur samið við
Hjallastefnuna um að taka allt
að 15 börn til viðbótar inn á
leikskólann Sóla á næstu
dögum. Ný leikskóldeild tekur til
starfa um næstu áramót.
Grunnskólanum verður tryggt
fjármagn til að fylgja eftir
framtíðarsýn í námi og tekin
verða upp svokölluð frístunda-
kort sem hefur verið eitt helsta
baráttumál Eyjalistans. Þetta er
meðal atriða í tillögu fulltrúa
Sjálfstæðismanna í bæjarstjórn
sem samþykkt var samhljóða á
fundi síðasta fimmtudag. Er þar
tekið stórt skref til að mæta
kröfum foreldra ungra barna
um fleiri leikskólapláss. Á
fundinum lá fyrir minnisblað
vegna reksturs bæjarsjóðs
áranna 2015 til 2016. Í framhaldi
af því var samþykkt að fela
bæjarstjóra að undirbúa viðauka
við fjárhagsáætlun þar sem gert
verði ráð fyrir aukinni þjónustu
fyrir börn.
Frá og með næstu mánaðamótum
mun Vestmannaeyjabær taka upp
heimagreiðslur fyrir fjölskyldur
með börn frá níu mánaða aldri og til
þess tíma þar sem barnið hefur
leikskólagöngu. Bærinn hefur
samið við Hjallastefnuna um að
taka allt að 15 börn til viðbótar inn
á leikskólann Sóla á næstu dögum.
Ný leikskóldeild tekur til starfa um
næstu áramót. Grunnskólanum
verður tryggt fjármagn til að fylgja
eftir framtíðarsýn í námi og tekin
verða upp svokölluð frístundakort
sem hefur verið eitt helsta baráttu-
mál Eyjalistans. Þetta er meðal
atriða í tillögu fulltrúa Sjálfstæðis-
manna í bæjarstjórn sem samþykkt
var samhljóða á fundi síðasta
fimmtudag. Er þar tekið stórt skref
til að mæta kröfum foreldra ungra
barna um fleiri leikskólapláss. Á
fundinum lá fyrir minnisblað vegna
reksturs bæjarsjóðs áranna 2015 til
2016. Í framhaldi af því var
samþykkt að fela bæjarstjóra að
undirbúa viðauka við fjárhags-
áætlun þar sem gert verði ráð fyrir
aukinni þjónustu fyrir börn.
Í dag er þjónusta dagforeldra
niðurgreidd frá tólf mánaða aldri.
„Mjög gjarnan hafa foreldrar
hinsvegar þörf fyrir slíka niður-
greiðslu fyrr, sérstaklega í ljósi þess
að fæðingarorlof íslenskra foreldra
spannar einungis níu mánuði. Þar
sem íslenska ríkið hefur ekki staðið
við boðuð loforð um lengingu
fæðingarorlofs í tólf mánuði eða
ráðist í aðgerðir til að brúa bilið
milli fæðingarorlofs og leikskóla-
dvalar hyggst bæjarstjórn hefja
niðurgreiðslu þjónustu dagforeldra
við níu mánaða aldur frá og með 1.
maí nk.,“ segir í tillögunni og var
samþykkt að fela fræðsluráði að
útfæra reglur þar að lútandi.
Teknar verða upp heimagreiðslur
til foreldra sem nýta sér ekki
þjónustu dagforeldra frá því að börn
þeirra verða níu mánaða og þar til
þeim stendur til boða leikskóla-
pláss.
Barni fylgir kostnaður
„Fæðing barns er ein stærsta
gleðistund í ævi hverrar fjölskyldu.
Hjá því verður þó ekki litið að
kostnaður nýbakaðra foreldra er
nokkur og það á þeim tíma sem
atvinnutækifæri eru skert. Illu heilli
hefur myndast óþægilegt þjónustu-
bil á milli fæðingarorlofs ríkisins og
þjónustu sveitarfélaga.
Þetta bil hefur að hluta til verið
brúað með þjónustu dagmæðra sem
síðan er niðurgreidd af sveitar-
félaginu. Það er mat bæjarstjórnar
að það eigi að vera val foreldra
hvort þeir velja heldur að þiggja
heimagreiðslur og dvelja lengur
heima hjá börnum sínum eða nota
niðurgreidda þjónustu dagmæðra.
Þess vegna mun sveitarfélagið frá
og með 1. maí nk. taka upp
heimagreiðslur frá níu mánaða aldri
og til þess tíma þar sem barnið
hefur leikskólagöngu. Bæjarstjórn
felur fræðsluráði að útfæra reglur
hér að lútandi,“ segir í tillögunni.
15 til 20 leikskólapláss strax
Fram kom að töluverð eftirspurn
hefur verið eftir daggæsluúrræðum í
Vestmannaeyjum og skortur á
þjónustu dagforeldra. Vestmanna-
eyjabær hafi ráðist í aðgerðir til að
mæta þeim vanda m.a. með opnun
daggæsluúrræðis á Strönd.
„Nauðsynlegt er þó að finna lausn á
þessum vanda til lengri tíma litið.
Vestmannaeyjabær hefur þegar
lokið samningum við Hjallastefn-
una um að taka allt að 15 börn til
viðbótar inn á leikskólann Sóla og
ætti inntaka að geta hafist á næstu
dögum.
Þar að auki verði leikskólanum
Kirkjugerði tryggt fjármagn til að
mæta kostnaði við þau auknu
dvalargildi sem ef til vill er hægt að
nýta þar. Með því móti ættu elstu
börnunum sem í dag nýta þjónustu
dagforeldra að verða boðin
leikskólapláss og því skapast
svigrúm hjá dagforeldrum að taka á
móti nýjum börnum. Bæjarstjórn
felur fræðsluráði framkvæmd og
eftirfylgni vegna þessa.“
Ný leikskóladeild
Bent er á að ein mikilvægasta
þjónusta hvers sveitarfélags sé
rekstur leikskóla. Ekki einungis sé
þar um að ræða stuðning við
foreldra til að fara á ný út á
vinnumarkaðinn heldur skipti ekki
minna máli að leikskólar eru fyrsta
skólastigið. „Stefna Vestmannaeyja-
bæjar er að öllum börnum 18
mánaða og eldri standi til boða
leikskólapláss frá og með 1.
september ár hvert.
Sú ákvörðun að bæta tafarlaust við
15 til 20 leikskólaplássum tryggir
að lengra verði gengið. Eftir sem
áður liggur fyrir að það úrræði
dugar ekki nema fram að næstu
áramótum, þá fer á ný að safnast
upp biðlisti ef ekkert verður að gert.
Með það í huga samþykkir
bæjarstjórn að opna nýja leikskóla-
deild um næstu áramót. Með rekstri
hennar vill bæjarstjórn stefna að því
að inntaka barna á leikskóla verði
oftar en nú er,“ segir í tillögunni og
var fræðsluráði falið að fylgja
málinu eftir.
Framtíðarsýnar
í menntamálum
Á undanförnum misserum hefur
GRV verið að innleiða framtíðarsýn
í menntamálum með áherslu á
bættan árangur nemenda í lestri og
stærðfræði. Með það að leiðarljósi
samþykkti bæjarstjórn að gera ráð
fyrir sérstöku 2 milljóna króna
viðbótarframlagi vegna þessa á
næsta skólaári. Bæjarstjórn fól
fræðsluráði framgöngu málsins og
eftirfylgni.
Frístundaheimili er starfrækt af
Vestmannaeyjabæ og á seinustu
árum hefur það verið rekið í
Þórsheimilinu. Þar er sex til níu ára
börnum boðið upp á fjölbreytt
tómstundastarf eftir að skóladegi
lýkur. „Leitast er við að bjóða upp á
spennandi viðfangsefni sem veita
börnum útrás fyrir leik- og
sköpunarþörf. Leiðarljós frístunda-
heimilisins er að hver einstaklingur
fái að njóta sín og þroskist í
umhverfi sem einkennist af hlýju,
öryggi og virðingu. Hingað til hefur
þessi þjónusta einungis verið veitt á
veturna og skapar það oft röskun á
högum barnsins og foreldrum þeirra
þegar frístundaheimilið lokar.
Til að auka þjónustu við þennan
aldurshóp samþykkir bæjarstjórn að
gera ráð fyrir að þjónusta frístunda-
heimilis verði einnig veitt fram á
sumar,“ segir í tillögunn.
Fól bæjarstjórn fræðslu-, fjöl-
skyldu- og tómstundaráði að sjá um
framkvæmdina.
Frístundakort
„Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar
hefur minnihluti bæjarstjórnar vakið
máls á þörfinni fyrir svokölluð
frístundakort þar sem börnum á
aldrinum 6 til 16 ára er lagður til
styrkur til að mæta kostnaði við
íþrótta- og tómstundaiðkun.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks
hafa ætíð lýst stuðningi við
hugmyndina og talið hana allra
góðra gjalda verða enda kostnaður
foreldra af íþrótta- og tómstunda-
starfi verulegur,“ segir í tillögu
sjálfstæðismanna sem hafa borið
við auknum kostnaði en nú sé lag.
„Eins og komið hefur fram telja
bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks að
rekstrarárangur hafi nú skilað
svigrúmi til að ráðast í aukna
þjónustu og þá eðlilegt og sann-
gjarnt að frístundastyrkir séu þar
hluti af. Þess vegna samþykkir
bæjarstjórn að gera ráð fyrir því að
1. janúar 2017 verði slíkir styrkir að
upphæð 25.000 krónur fyrir hvert
barn teknir upp. Bæjarstjórn felur
fjölskyldu- og tómstundaráði
framgöngu málsins og eftirfylgni
þess.“
Bæjarstjórn fól bæjarstjóra og
öðrum embættismönnum að gera
ráð fyrir útgjöldum vegna ofantal-
inna liða við gerð viðauka við
núverandi fjárhagsáætlun og
undirbúning fjárhagsáætlunar fyrir
árið 2017.
Undir þetta skrifuðu Hildur
Sólveig Sigurðardóttir, Elliði
Vignisson, Páll Marvin Jónsson,
Trausti Hjaltason og Birna
Þórsdóttir.
Tillagan var samþykkt með sjö
samhljóða atkvæðum þeirra og
Stefáns Óskars Jónassonar og
Auðar Óskar Vilhjálmsdóttur
fulltrúa Eyjalistans.
Bæjarstjórn :: Samþykkir átak til að mæta kröfum barnafólks:
Heimagreiðslur, fleiri börn
á Sóla og tómstundakort
:: Gert í ljósi góðrar stöðu :: Viðauki við fjárhagsáætlun þar sem gert verði ráð fyrir aukinni
þjónustu fyrir börn
ómar garðarSSon
omar@eyjafrettir.is
Kennarar, starfsfólk og börn á leikskóla klædd í blátt. Í tilefni af alþjóðlegum degi einhverfu klæddumst við bláu á föstudaginn.
StarfSfólk óSkaSt
Póstur í Vestmannaeyjum óskar
eftir að ráða starfsfólk í sumarafleysingar.
Óskað er eftir jákvæðum einstaklingum með ríka
þjónustulund sem eiga auðvelt með samskipti.
Nánari upplýsingar veitir Soffía Valdimarsdóttir
fulltrúi á staðnum og í síma: 481-1000
Íslandspóstur hf