Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2019, Síða 2
2 28. júní 2019FRÉTTIR
Á þessum degi,
28. júní
1838 – Krýning Viktoríu drottningar í
Westminster Abbey í London.
1914 – Franz Ferdinand, erkihertogi
og ríkisarfi Austurríkis, og kona hans,
Sophia, myrt í Sarajevo. Fyrri heims-
styrjöldin hefst.
1919 – Versalasamningurinn,
friðarsáttmáli Bandaríkjamanna og
Þjóðverja, undirritaður í Versölum.
1928 – Louis Armstrong tekur upp 78
upptökur af West End Blues.
2010 – Óskarsverðlaunaleikkonan
Sandra Bullock skilur við eiginmann
sinn, Jesse James, eftir nærri fimm ára
hjónaband.
Síðustu orðin
„Hvaða þýðingu hafa
ræður þínar? Ég heimsæki
Sarajevo og sprengjum
er varpað á mig. Það er
svívirðilegt.“
– Franz Ferdinand erkihertogi við
borgarstjóra Sarajevo 1914.
F
élagarnir Davíð Ingi Þor-
steinsson og Steinar Stef-
ánsson hafa verið heimil-
islausir í fjöldamörg ár og
hafa ítrekað þurft að leita á náð-
ir Gistiskýlisins á Lindargötu um
næturgistingu. Þeir eru tveir af sí-
stækkandi hópi útigangsmanna
í Reykjavík, hópi sem mörg okk-
ar vilja ekki vita af en þurfa þó á
aðstoð samfélagsins að halda svo
þeir og félagar þeirra geti öðlast
von um mannsæmandi líf.
Blaðamaður og ljósmyndari DV
fóru og hittu Davíð Inga og Steinar
fyrir framan Gistiskýlið. Auk þeirra
voru þar nokkrir aðrir félagar
þeirra í mjög misjöfnu ástandi
og einn þeirra skólaus og í hjóla-
stól. Menn sem væru betur komn-
ir í húsnæði, meðferð eða annarri
umsjón, en á götunni.
„Við erum með hústökuhús og
ég sef þar frekar en hér. Það er ekki
af því að þetta sé svo slæmur stað-
ur heldur af því ég vil ekki vera
hérna,“ segir Davíð Ingi, en bætir
við að hann hafi ekki fengið inni
í Gistiskýlinu í tvo mánuði vegna
hegðunarvanda.
Þeir eru sammála um að starfs-
menn séu góðir og vilji allt fyrir
skjólstæðinga sína gera, eða það
sem þeim er heimilt að gera sam-
kvæmt lögum og reglum. „Þetta er
yndislegt fólk, þau gera allt fyrir
okkur,“ segir Steinar. „Þetta er erfitt
fyrir starfsfólkið sem er að gera sitt
besta, þau fá reglur sem þau vinna
eftir, það er líka mannekla hérna.
Þeir eru að reyna að gera sitt besta
og eru allir af vilja gerðir en starfs-
reglurnar eru þannig að þeir mega
ekki hjálpa okkur meira,“ segir
Davíð.
Á götunni í 20 ár
Davíð er búinn að vera á götunni
síðan árið 1998 og segist orðinn
þreyttur á sínum aðstæðum og vilji
komast í húsnæði. „Mig langar bara
í húsnæði og vera ég. Ég er 43 ára
Vestmannaeyingur, missti móður
mína og allt mitt líf og átti erfitt.“
Davíð kom ásamt fleirum fram
í viðtali í Ísland í dag í júní árið
2018. „Tveimur dögum eftir að ég
fór í sjónvarpið var ég handtekinn
og sendur á Hólmsheiði, þá talaði
einhver ráðherrann um að það
þyrfti að gera eitthvað. Það voru
keyptir 22 skúrar, heyrðu, það hafa
tveir skúrar verið lausir allan tím-
ann úti á Granda. Við þurfum að
redda þessu. Það er komið heilt ár
og ég er ennþá hérna. Ég hef verið
stóran hluta af ævi minni í fangelsi
fyrir að vera fullur. Veistu hvað ég
er búinn að vera í fangelsi lengi?
Bara bull, sjö og hálft ár í fangelsi.“
Í sama viðtali í Ísland í dag
sagði Þór Gíslason: „Ef einstak-
lingur hefur engan stað til að fara
á nema götuna eftir meðferð eða
fangelsisvist má segja að sú fjár-
festing sé unnin fyrir gýg sem búið
er að setja í varðandi meðferðir.“
Þór hefur verið forstöðumaður í
Gistiskýlinu síðan haustið 2017,
en hefur áður unnið með utan-
garðsfólki á einn eða annan hátt í
áraraðir.
Engin þjónusta er veitt í Gisti-
skýlinu milli kl. 10 og 16. Karl-
mennirnir mæta í röðina fyrir utan
kl. 15 og gildir reglan, fyrstir koma
fyrstir fá, en 29 manns geta gist þar
í einu. „Við búum í tjaldi og skúr-
um sem við brjótumst inn í, þegar
ekki er pláss hér.“
Orðnir þreyttir á hlutskipti sínu
„Það eru allir veikir hérna,“ segir
Davíð Ingi og benda þeir Steinar á
einn félaga sinn, ungan mann, og
segja hann hafa beðið um að fara
inn til að sprauta sig en fékk ekki.
Notaði hann því poll á götunni til
að hreinsa nálina áður en hann
sprautaði sig. „Ég hef misst tvo vini
mína á síðustu þremur mánuðum.
Veistu hvað ég er þreyttur? Ég er
bara búinn á því og ég græt af því
ég var að missa besta vin minn og
fyrir viku missti ég annan vin minn
úr heilablóðfalli.“
„Ég vil að fólk hjálpi þessum
manni hérna. Ég vil bara húsnæði
fyrir þennan mann hérna, hús-
næði fyrir þennan og húsnæði fyr-
ir okkur alla,“ segir Davíð og bend-
ir í kringum sig. „Hvað er ég að
gera hérna? 20 ár á götunni! Hús-
næði er fokking málið og ef að Ís-
lendingar geta ekki reddað því
núna skilurðu, þá kveiki ég í fokk-
ing Alþingishúsinu og sit inni fyr-
ir það glaður,“ segir Davíð reiðum
rómi.
„Ég er ekki reiður við þig, ég er
bara brjálaður,“ bætir hann við við
blaðamann DV. „Má ég segja þér
eitt, ég er öryrki og ég var settur á
örorku út af óeðlilegum og hættu-
legum lifnaðarháttum. Ég var á
féló, svo var ég á örorku, síðan
lenti ég í slysi og er lappalaus, ég er
búinn að vera jönker í 27 eða 28 ár,
ég er hættur því núna, eða þú veist.
Við erum ákveðið fólk sem
erum veik, við drekkum og dóp-
um, en á Íslandi þá megum við
bara fokking gera það löglega. Þó
svo við drekkum, ríkið leyfir okkur
að drekka, við megum fara í Ríkið
og kaupa áfengi. Síðan fáum við
sekt fyrir að drekka á almannafæri
og förum svo í fangelsi fyrir það.
Ég er rosalega veikur maður,
ég vil að Íslendingar hjálpi okkur
fokking núna!“ n
Fyrr í mánuðinum birtu Davíð
og Steinar ákall á Facebook þar
sem þeir óskuðu eftir fötum á
sig og félaga sína og skákborði.
Hvernig voru viðtökurnar?
„Það er búið að rigna inn svört-
um ruslapokum, fólk er búið að
taka vel í þetta,“ svarar Steinar
brosandi. „Það eru komin sex
taflborð,“ bætir Davíð við.
„Það eru allir veikir hérna“
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is
MYNDIR: EYÞÓR ÁRNASON/DV
Steinar hefur verið á götunni í tólf ár. Lokað. Davíð og Steinar stilla sér
upp við inngang Gistiskýlisins.
n Neyðarkall útigangsmanna n Þreyttir á hlutskipti sínu
„Við erum
með hús-
tökuhús og ég sef
þar frekar en hér.