Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2019, Blaðsíða 20
Fiskur og veiði 2019 28. júní 2019KYNNINGARBLAÐ
Spriklandi ferskur fiskur
beint á veitingastaði
Ferskir þorskhnakkar og þorskbitar eru vinsæl afurð frá okkur, sem við sækjum nú
daglega í ferskfiskvinnslu Skinn-
eyjar Þinganess í Þorlákshöfn.
Þar veiða menn og vinna hágæða
ferskan fisk alla daga frá bátum
útgerðarinnar. Humarsalan býður
viðskiptavinum sínum upp á þessa
brakandi fersku afurð sem við
dreifum daglega inn á veitingastaði
og mötuneyti um allt land,“ seg-
ir Jakob Hermannsson, sölustjóri
Humarsölunnar.
Spriklandi ferskur fiskur
Humarsalan sérhæfir sig í sölu
á spriklandi ferskum fiski, humri
og öðrum skelfiski fyrir verslanir,
veitingahús, veisluþjónustur og
einstaklinga. „Humarinn og fersku
þorskhnakkarnir eru langvinsæl-
astir en við erum sérfræðingar í
sjávarfangi og bjóðum aðeins upp
á hágæða hráefni,“ segir Jakob.
Fyrsta flokks hágæðahumar
Humarsalan var stofnuð í janúar
2004. „Markmið okkar hefur ávallt
verið að bjóða upp á fyrsta flokks fisk
allt árið um kring og veita fyrirtaks
þjónustu,“ segir Jakob. Fljótlega eftir
stofnun fyrirtækisins var viðskipta-
vinum einnig boðið upp á steinbíts-
og skötuselskinnar, sem njóta gríðar-
legra vinsælda. „Orðstír fyrirtækisins
hefur vaxið jafnt og þétt og má með
sanni segja að merki Humarsölunnar
sé tákn um gæði,“ segir Jakob.
Íslenskt hráefni í hæsta klassa
„Við bjóðum aðeins upp á hráefni í
hæsta klassa frá öflugustu humar-
útgerð landsins, en það hefur löng-
um loðað við Hornafjörð að þar sé
besta humarinn að fá,“ segir Jakob.
Humarsalan selur einnig aðrar af-
urðir Skinneyjar –Þinganess. „Stein-
bítskinnar og léttsaltaðar þorsklundir
njóta orðið sífellt aukinna vinsælda
og finnum við fyrir miklum áhuga
á íslensku sjávarfangi jafnt hjá
veitingastöðum og hinum almenna
neytanda.“
Mikið af nýjungum í gegnum árin
Humarsalan býður upp á mjög mikið
úrval af humri með skel og án skeljar
og hefur skelfletti humarinn orðið
sífellt vinsælli. „Fólk er farið að nota
skelfletta humarinn í ótrúlegustu
matargerð eins og t.d. ommelettur,
pitsur, samlokur og margt fleira.
Einnig hafa aðrar íslenskar sjáv-
arafurðir eins og steinbítskinnar,
skötuselskinnar, léttsaltaðar þorsk-
lundir, ásamt innfluttu sjávarfangi
eins og risarækju, hörpuskel, tún-
fiski og fleiru verið mjög vinsælar. Á
vörulista Humarsölunnar hafa verið
að bætast við nýjungar í gegnum
árin og koma viðskiptavinir Humar-
sölunnar víða að. Við erum því bjart-
sýn og sjáum mikið af tækifærum,“
segir Jakob að lokum.
Í vefverslun fyrirtækisins, www.
humarsalan.is, er að finna gott yfirlit
yfir vöruúrvalið. Einnig má finna þar
fjölmargar uppskriftir af humar- og
fiskréttum.
Sími: 867-6677
Netfang: humarsalan@humar-
salan.is n