Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2019, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2019, Qupperneq 20
Fiskur og veiði 2019 28. júní 2019KYNNINGARBLAÐ Spriklandi ferskur fiskur beint á veitingastaði Ferskir þorskhnakkar og þorskbitar eru vinsæl afurð frá okkur, sem við sækjum nú daglega í ferskfiskvinnslu Skinn- eyjar Þinganess í Þorlákshöfn. Þar veiða menn og vinna hágæða ferskan fisk alla daga frá bátum útgerðarinnar. Humarsalan býður viðskiptavinum sínum upp á þessa brakandi fersku afurð sem við dreifum daglega inn á veitingastaði og mötuneyti um allt land,“ seg- ir Jakob Hermannsson, sölustjóri Humarsölunnar. Spriklandi ferskur fiskur Humarsalan sérhæfir sig í sölu á spriklandi ferskum fiski, humri og öðrum skelfiski fyrir verslanir, veitingahús, veisluþjónustur og einstaklinga. „Humarinn og fersku þorskhnakkarnir eru langvinsæl- astir en við erum sérfræðingar í sjávarfangi og bjóðum aðeins upp á hágæða hráefni,“ segir Jakob. Fyrsta flokks hágæðahumar Humarsalan var stofnuð í janúar 2004. „Markmið okkar hefur ávallt verið að bjóða upp á fyrsta flokks fisk allt árið um kring og veita fyrirtaks þjónustu,“ segir Jakob. Fljótlega eftir stofnun fyrirtækisins var viðskipta- vinum einnig boðið upp á steinbíts- og skötuselskinnar, sem njóta gríðar- legra vinsælda. „Orðstír fyrirtækisins hefur vaxið jafnt og þétt og má með sanni segja að merki Humarsölunnar sé tákn um gæði,“ segir Jakob. Íslenskt hráefni í hæsta klassa „Við bjóðum aðeins upp á hráefni í hæsta klassa frá öflugustu humar- útgerð landsins, en það hefur löng- um loðað við Hornafjörð að þar sé besta humarinn að fá,“ segir Jakob. Humarsalan selur einnig aðrar af- urðir Skinneyjar –Þinganess. „Stein- bítskinnar og léttsaltaðar þorsklundir njóta orðið sífellt aukinna vinsælda og finnum við fyrir miklum áhuga á íslensku sjávarfangi jafnt hjá veitingastöðum og hinum almenna neytanda.“ Mikið af nýjungum í gegnum árin Humarsalan býður upp á mjög mikið úrval af humri með skel og án skeljar og hefur skelfletti humarinn orðið sífellt vinsælli. „Fólk er farið að nota skelfletta humarinn í ótrúlegustu matargerð eins og t.d. ommelettur, pitsur, samlokur og margt fleira. Einnig hafa aðrar íslenskar sjáv- arafurðir eins og steinbítskinnar, skötuselskinnar, léttsaltaðar þorsk- lundir, ásamt innfluttu sjávarfangi eins og risarækju, hörpuskel, tún- fiski og fleiru verið mjög vinsælar. Á vörulista Humarsölunnar hafa verið að bætast við nýjungar í gegnum árin og koma viðskiptavinir Humar- sölunnar víða að. Við erum því bjart- sýn og sjáum mikið af tækifærum,“ segir Jakob að lokum. Í vefverslun fyrirtækisins, www. humarsalan.is, er að finna gott yfirlit yfir vöruúrvalið. Einnig má finna þar fjölmargar uppskriftir af humar- og fiskréttum. Sími: 867-6677 Netfang: humarsalan@humar- salan.is n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.