Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2019, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2019, Blaðsíða 38
38 FÓKUS 28. júní 2019 MANITOU MLT 625-75 H Nett fjölnotatæki Pétur O. Nikulásson ehf. • Melabraut 23, Hafnarfjörður • Símar: 552 2650 / 552 0110 • pon@pon.is 6.800.000 kr. + VSK „Svona ferð lifir lengi í minningunni“ A nna Kristín Ásbjörnsdótt- ir kynntist fjallahjólum þegar hún var meðlimur í Hjálparsveit skáta, í dag skipuleggur hún fjallahjólaferðir um hálendi Íslands fyrir erlenda ferðamenn. Nýlega hjólaði hún með hóp íslenskra kvenna um ótroðnar slóðir á hálendi Íslands í ferð sem heitir Fjallahjólarokk. „Þetta er sjötta árið í röð sem ég býð íslenskum konum upp á Fjallahjólarokk sem gengur út á að kynna sér fjallahjólamennsk- una á fjöllum. Inga Dagmar Karls- dóttir sá um fyrstu tvær ferðirn- ar með mér en nú vinn ég þetta eingöngu gegnum fyrirtækið mitt, Bike Company.“ Ferðirnar og hópinn notar Anna Stína til að prófa nýjar leið- ir. „Það vita konurnar og koma með því hugarfari að stundum hef ég ekki farið leiðina sjálf. Þetta er orðinn þægilegur kjarni góðra kvenna sem þekkja konseptið mjög vel og svo eru aðrar sem eru að koma í fyrsta sinn. Það er alltaf gaman að kynna fjallahjól fyrir fólki í fyrsta sinn. Á hjóli upplifir maður hálendið með allt öðrum hætti.“ Konurnar voru þrjátíu tals- ins, sumar hafa mætt í allar Fjallahjólarokkferðirnar, aðrar eru að koma í fyrsta sinn. Sumar þekkja enga og mæta einar, á með- an aðrar koma nokkrar saman. „Þetta er það allra skemmti- legasta sem ég hef gert á ævinni,“ sagði Anna Ragnhildur Halldórs- dóttir, sem var í sinni fyrstu ferð. „Ég held að þetta sé það allra besta hrós sem þú getur fengið og sýnir hvað þetta er gaman,“ segir Anna Stína. „Nokkrar kvennanna fóru langt fram úr þægindarammanum, þetta er erfitt og sérstaklega fyrir óvanar, en svona ferð lifir lengi í minningunni. Þessar konur eru mjög fjörugar.“ Hvaða leið hjóluðuð þið í ár? „Þetta er algjör leynileið,“ svar- ar Anna Stína og hlær, „þær hafa áður farið með mér frá Háafossi niður á Spöng, upp á Reynisfjall, allt Fjallabak nyrðra, núna vorum við meira að Fjallabaki syðra. Við hjóluðum í heild níutíu kílómetra, þar af fimmtíu kílómetra annan daginn, en ferðin var þrír dagar í heildina.“ Frakklandsreynsla nýtt fyrir fjallahjólaferðir Árið 1996 bjó Anna Stína í Frakk- landi og rak ferðaskrifstofu sem sérhæfði sig í göngu- og skíða- ferðum um Norðurlöndin fyr- ir frönskumælandi ferðamenn. „Þegar ég flutti aftur heim tók ég mér smá pásu frá öllu sem heit- ir skipulagning eða leiðsögn. Svo bara dregst maður aftur að því sem maður þekkir best og hef- ur ástríðu fyrir,“ segir Anna Stína, sem bjó að mikilli reynslu frá Frakklandi í sölu ferða til Íslands, Færeyja, Grænlands og Noregs, auk þess sem hún vann sem leið- sögumaður í ferðunum. „Eftir að ég flutti aftur heim tók ég þrjú ár í að leita að næsta tækifæri og var leiðsögumað- ur í alls konar ferðum; norð- urljósaferðum, klassískum dagsferðum, vetrarferðum með skólahópa, Græn- landsferðum og erfiðum tjaldferðum fyrir fjallaleið- sögumenn,“ en Anna Stína lauk leiðsögunámi árið 2016 frá Háskóla Íslands.“ Anna Stína á fyrirtækið Bike Company, sem sérhæfir sig í fjallahjólreiðum á Íslandi. Fyrir- tækið var stofnað af fjórum strák- um og vinum sem voru alltaf með fjallahjólaferðir fyrir strákahópa. „Ég kem síðan inn með þeim árið 2015 og kaupi fyrirtækið árið 2017 og hef verið með það ein síðan. Ég byggi fyrirtækið út frá minni reynslu frá Frakklandi. Ég tók út dagsferðir og fór að skipuleggja lengri ferðir og er með sérhæfð- ar ferðaskrifstofur erlendis sem sjá um að selja ferðirnar fyrir mig. Þetta er bara að byggjast upp hægt og rólega. Þýska sjónvarpsstöð- in Arte var með mér og sex öðr- um konum í ferð í fyrrasumar og í myndbandi frá þeirri ferð sést mjög vel hvernig ferðirnar fara fram.“ Að sögn Önnu Stínu koma flestir þeirra sem hjóla í ferðum hjá henni frá Norður-Ameríku, en í sumar hafa Frakkar og Spán- verjar komið sterkt inn. „Í boði eru mjög erfiðar ferðir fyrir mjög vana hjólara og svo auðveldari ferðir fyrir þá sem vilja meira njóta en þjóta. Jóga er blandað inn í sum- ar ferðirnar. Í flestum ferðum gist- um við í fjallaskálum og á hostel- um. Ég er mikið með sérhópa og sérferðir þannig að ég aðlaga mig að hverjum hópi fyrir sig.“ Anna Stína leggur mikla áherslu á mataræði og egótúrisma í öllum ferðum. „Að við förum vel með landið og hvernig við hjólum um það.“ Ferðirnar sem Anna Stína býð- ur upp á eru ekki auglýstar fyr- ir Íslendinga. „En þeir eru vel- komnir með og nú stendur til að bjóða upp á ferðir sem heita „Ride with the locals“ þar sem blandað væri saman erlendum og íslensk- um ferðalöngum. Ég veit ekki um neinn sem býður upp á slíkar ferð- ir.“ Auk þess að hjóla með ferða- menn um landið á fjallafjólum tilheyrir Anna Stína tíu kvenna ævintýrahópi sem kallar sig Kríurnar. „Við ferðumst saman minnst tvisvar á ári, annars vegar á fjallahjólum og hins vegar á fjallaskíðum. Kríurnar eru 10 ára en árið 2009 fórum við í fyrstu alvöru fjallahjólaferðina þegar við hjóluðum Laugaveginn. Að vera í svona hópi og þvælast um landið gefur manni einnig heil- mikla reynslu sem ég nýti fyrir fjallahjólaferðirnar mínar.“ n Ragna Gestsdóttir ragna@dv.is Farar- stjórinn Anna Stína nýt- ur sín í náttúrunni. Hressar Konurnar voru allar ánægðar með ferðina.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.