Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2019, Qupperneq 38
38 FÓKUS 28. júní 2019
MANITOU MLT 625-75 H
Nett
fjölnotatæki
Pétur O. Nikulásson ehf. • Melabraut 23, Hafnarfjörður • Símar: 552 2650 / 552 0110 • pon@pon.is
6.800.000 kr. + VSK
„Svona ferð lifir lengi í minningunni“
A
nna Kristín Ásbjörnsdótt-
ir kynntist fjallahjólum
þegar hún var meðlimur
í Hjálparsveit skáta, í dag
skipuleggur hún fjallahjólaferðir
um hálendi Íslands fyrir erlenda
ferðamenn. Nýlega hjólaði hún
með hóp íslenskra kvenna um
ótroðnar slóðir á hálendi Íslands í
ferð sem heitir Fjallahjólarokk.
„Þetta er sjötta árið í röð sem
ég býð íslenskum konum upp á
Fjallahjólarokk sem gengur út á
að kynna sér fjallahjólamennsk-
una á fjöllum. Inga Dagmar Karls-
dóttir sá um fyrstu tvær ferðirn-
ar með mér en nú vinn ég þetta
eingöngu gegnum fyrirtækið mitt,
Bike Company.“
Ferðirnar og hópinn notar
Anna Stína til að prófa nýjar leið-
ir. „Það vita konurnar og koma
með því hugarfari að stundum
hef ég ekki farið leiðina sjálf. Þetta
er orðinn þægilegur kjarni góðra
kvenna sem þekkja konseptið
mjög vel og svo eru aðrar sem eru
að koma í fyrsta sinn. Það er alltaf
gaman að kynna fjallahjól fyrir
fólki í fyrsta sinn. Á hjóli upplifir
maður hálendið með allt öðrum
hætti.“
Konurnar voru þrjátíu tals-
ins, sumar hafa mætt í allar
Fjallahjólarokkferðirnar, aðrar
eru að koma í fyrsta sinn. Sumar
þekkja enga og mæta einar, á með-
an aðrar koma nokkrar saman.
„Þetta er það allra skemmti-
legasta sem ég hef gert á ævinni,“
sagði Anna Ragnhildur Halldórs-
dóttir, sem var í sinni fyrstu ferð.
„Ég held að þetta sé það allra besta
hrós sem þú getur fengið og sýnir
hvað þetta er gaman,“ segir Anna
Stína. „Nokkrar kvennanna fóru
langt fram úr þægindarammanum,
þetta er
erfitt og
sérstaklega fyrir óvanar, en svona
ferð lifir lengi í minningunni.
Þessar konur eru mjög fjörugar.“
Hvaða leið hjóluðuð þið í ár?
„Þetta er algjör leynileið,“ svar-
ar Anna Stína og hlær, „þær hafa
áður farið með mér frá Háafossi
niður á Spöng, upp á Reynisfjall,
allt Fjallabak nyrðra, núna vorum
við meira að Fjallabaki syðra. Við
hjóluðum í heild níutíu kílómetra,
þar af fimmtíu kílómetra annan
daginn, en ferðin var þrír dagar í
heildina.“
Frakklandsreynsla nýtt fyrir
fjallahjólaferðir
Árið 1996 bjó Anna Stína í Frakk-
landi og rak ferðaskrifstofu sem
sérhæfði sig í göngu- og skíða-
ferðum um Norðurlöndin fyr-
ir frönskumælandi ferðamenn.
„Þegar ég flutti aftur heim tók ég
mér smá pásu frá öllu sem heit-
ir skipulagning eða leiðsögn. Svo
bara dregst maður aftur að því
sem maður þekkir best og hef-
ur ástríðu fyrir,“ segir Anna Stína,
sem bjó að mikilli reynslu frá
Frakklandi í sölu ferða til Íslands,
Færeyja, Grænlands og Noregs,
auk þess sem hún vann sem leið-
sögumaður í ferðunum.
„Eftir að ég flutti aftur heim
tók ég þrjú ár í að leita að næsta
tækifæri og var leiðsögumað-
ur í alls konar ferðum; norð-
urljósaferðum, klassískum
dagsferðum, vetrarferðum
með skólahópa, Græn-
landsferðum og erfiðum
tjaldferðum fyrir fjallaleið-
sögumenn,“ en Anna Stína
lauk leiðsögunámi árið
2016 frá Háskóla Íslands.“
Anna Stína á fyrirtækið
Bike Company, sem sérhæfir sig
í fjallahjólreiðum á Íslandi. Fyrir-
tækið var stofnað af fjórum strák-
um og vinum sem voru alltaf með
fjallahjólaferðir fyrir strákahópa.
„Ég kem síðan inn með þeim árið
2015 og kaupi fyrirtækið árið 2017
og hef verið með það ein síðan.
Ég byggi fyrirtækið út frá minni
reynslu frá Frakklandi. Ég tók út
dagsferðir og fór að skipuleggja
lengri ferðir og er með sérhæfð-
ar ferðaskrifstofur erlendis sem
sjá um að selja ferðirnar fyrir mig.
Þetta er bara að byggjast upp hægt
og rólega. Þýska sjónvarpsstöð-
in Arte var með mér og sex öðr-
um konum í ferð í fyrrasumar og
í myndbandi frá þeirri ferð sést
mjög vel hvernig ferðirnar fara
fram.“
Að sögn Önnu Stínu koma
flestir þeirra sem hjóla í ferðum
hjá henni frá Norður-Ameríku,
en í sumar hafa Frakkar og Spán-
verjar komið sterkt inn. „Í boði eru
mjög erfiðar ferðir fyrir mjög vana
hjólara og svo auðveldari ferðir
fyrir þá sem vilja meira njóta en
þjóta. Jóga er blandað inn í sum-
ar ferðirnar. Í flestum ferðum gist-
um við í fjallaskálum og á hostel-
um. Ég er mikið með sérhópa og
sérferðir þannig að ég aðlaga mig
að hverjum hópi fyrir sig.“
Anna Stína leggur mikla
áherslu á mataræði og egótúrisma
í öllum ferðum. „Að við förum vel
með landið og hvernig við hjólum
um það.“
Ferðirnar sem Anna Stína býð-
ur upp á eru ekki auglýstar fyr-
ir Íslendinga. „En þeir eru vel-
komnir með og nú stendur til að
bjóða upp á ferðir sem heita „Ride
with the locals“ þar sem blandað
væri saman erlendum og íslensk-
um ferðalöngum. Ég veit ekki um
neinn sem býður upp á slíkar ferð-
ir.“
Auk þess að hjóla með ferða-
menn um landið á fjallafjólum
tilheyrir Anna Stína tíu kvenna
ævintýrahópi sem kallar sig
Kríurnar. „Við ferðumst saman
minnst tvisvar á ári, annars vegar
á fjallahjólum og hins vegar á
fjallaskíðum. Kríurnar eru 10 ára
en árið 2009 fórum við í fyrstu
alvöru fjallahjólaferðina þegar
við hjóluðum Laugaveginn. Að
vera í svona hópi og þvælast um
landið gefur manni einnig heil-
mikla reynslu sem ég nýti fyrir
fjallahjólaferðirnar mínar.“ n
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is
Farar-
stjórinn
Anna Stína nýt-
ur sín í náttúrunni.
Hressar
Konurnar voru
allar ánægðar
með ferðina.