Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2019, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2019, Blaðsíða 6
6 28. júní 2019FRÉTTIR BITLAUS STJÓRNARANDSTAÐA Í SKUGGA TÆPS MEIRIHLUTA Lilja Katrín Gunnarsdóttir lilja@dv.is n Horft yfir þingveturinn n Ríkisstjórnin siglir lygnan sjó Sóknarfæri fyrir Sjálfstæðisflokk M ikið hefur verið rætt um ólgu innan Sjálfstæðis- flokksins vegna þriðja orkupakkans og að Mið- flokkurinn hafi náð að fresta af- greiðslu málsins þar til eftir sum- arfrí. Stefanía telur allar líkur á því að málið verði afgreitt strax eft- ir sumarfrí, enda því gefinn tak- markaður tími á dagskrá þingsins. Hún telur ekki ljóst hvort málið dragi dilk á eftir sér þegar litið er til vinsælda Sjálfstæðisflokksins. „Það getur orðið til þess að stuðningur Sjálfstæðisflokks fær- ist á Miðflokkinn, en ég gæti jafn- vel átt von á því að það hafi þegar gerst, líkt og við sáum í kosn- ingunum árið 2017. Þetta skapar nýja stöðu fyrir Sjálfstæðisflokk- inn hvað varðar miðjufylgi og frjálslynt fylgi. Þannig að það eru kostir og gallar í þessari stöðu.“ Málþófið mikilvægt vopn T íðrætt hefur verið um að breyta þingsköpum til að takmarka tíma þingmanna í ræðustóli til að koma í veg fyrir málþóf, líkt og það sem skap- aðist í kringum orkupakkann. Stefanía telur litlar líkur á að þeim reglum verði breytt á næstunni. „Þessi aðferð, að beita mál- þófi, skilar ákveðnum árangri fyrir stjórnarandstöðuflokkana. Það er alveg augljóst. Allir flokkar á þingi hafa einhvern tímann verið í stjórnarandstöðu og notað þetta vopn til að hafa áhrif á lok þing- starfa. Þeir eru því ragir við að breyta þingsköpum og ræðutíma nema um það sé sátt. Þetta byggir allt á einhvers konar málamiðl- un á milli stjórnarmeirihluta og -minnihluta. Það er möguleiki að festa í sessi ákvæði í stjórnarskrá um að tiltekinn fjöldi kjósenda eða tiltekinn fjöldi þingmanna geti farið fram á þjóðaratkvæða- greiðslu. Það er ekki auðvelt að breyta þessu og hangir að ein- hverju leyti saman við breytingar á stjórnarskrá.“ Þingvetur í tölum Þ ingið var að störfum frá 11. september til 14. des- ember 2018 og frá 21. janúar til 20. júní 2019. H eilt yfir finnst mér ágæt samstaða í ríkisstjórn. Stjórnarflokkarnir eru sammála um að vera ósammála í ýmsu. Sjálfstæðis- flokkur hefur þurft að gefa eft- ir varðandi einkaframtök í heil- brigðisgeiranum og Vinstri græn hafa þurft að gefa eft- ir þegar kemur að afstöðu til NATO og slíks. Gagnrýni frá hægri á Sjálfstæðisflokkinn er að hann sé alltof eftirgefanleg- ur þegar kemur að ríkisútgjöld- um og sköttum. Það er prísinn fyrir að vera í ríkisstjórn en mér finnst þessar málamiðlanir hafa gengið ágætlega hingað til,“ seg- ir Stefanía Óskarsdóttir, dósent í stjórnmálafræðideild við Há- skóla Íslands. Óvenju löngum þingvetri er nú lokið þar sem heildarlengd þingfunda fór í rétt rúmlega 865 klukkustundir. Leita þarf aft- ur til hrunáranna, 2009 til 2010, til að finna lengri heildarlengd þingfunda, en þá voru þeir 886 klukkustundir. Stefanía telur ríkisstjórnina standa sterka en vegna tæps meirihluta stjórn- arinnar verði stjórnarandstöð- uflokkarnir, fyrir utan Miðflokk- inn, bitlausir. „Mér finnst ríkisstjórnin hafa siglt tiltölulega lygnan sjó og náð að halda dambi. Ríkisstjórnar- flokkarnir halda nokkuð vel í kjörfylgi í skoðanakönnunum og það hefur ekki staðið mikill styr um ráðherra í ríkisstjórn, fyrir utan Sigríði Andersen sem neyddist til að segja af sér,“ seg- ir Stefanía og vísar þar í ráðn- ingar dómara við Landsrétt sem Mannréttindadómstóll Evrópu taldi brjóta gegn 6. grein Mann- réttindasáttmálans. „Hún virtist segja af sér vegna þrýstings frá Katrínu Jakobsdóttur og Bjarna Benediktssyni. Málið er dautt í bili en það á svo eftir að koma í ljós hvort Sigríður kemur aft- ur inn í ríkisstjórn. Það er ekkert loku fyrir það skotið að Sigríður komi aftur og verði jafnvel ráð- herra í öðru ráðuneyti.“ Þurfa að finna sína fjöl Stefanía segir að stjórnarand- staðan sé að vissu leyti í ba- sli vegna tæps meirihluta ríkis- stjórnarinnar. „Það liggur í hlutarins eðli að ríkisstjórn með tæp- an meirihluta og sem nær yfir hægri til vinstri, að það byggir allt á málamiðlunum og slík ríkisstjórn er ekki líkleg til að hrinda í framkvæmd mjög umdeildum stefnumálum. Stjórnarandstaðan verð- ur þá bitlausari. Stjórnar- andstaðan er í basli með að finna sína fjöl, fyr- ir utan Miðflokkinn í þessu orkupakka- máli, enda hefur ekki verið fljúgandi sigl- ing á stjórnarand- stöðuflokkunum í skoðanakönnun- um. Það er ekki gef- ið að stjórnarand- stöðunni gefist mikið færi á að ná flugi. Mið- flokkurinn hefur verið í fókus út af andstöð- unni við orkupakk- ann. Á móti kem- ur að flokkurinn var í miklum fókus fyrir jól í Klausturmálinu. Þá héldu sumir að þessi flokk- ur væri búinn að vera, en það mál hefur fall- ið í skuggann á þessari hörðu stjórnarandstöðu sem hefur verið haldið uppi í þinginu.“ „Ef samdráttur heldur áfram fer gamanið að kárna“ Eitt af stóru málunum sem blöstu við ríkisstjórninni var að ná góðum kjarasamningum svo átök á vinnumarkaði myndu ekki blossa upp. Það náðist með lífskjarasamningnum svokall- aða. Enn standa eftir samningar við opinbera starfsmenn og ekki alveg í hendi að þeir samn- ingar takist jafn vel. Það sé þó eitt af stærri málunum sem taka við eftir sumarfrí þingmanna, að mati Stefaníu, sem og jafn- vægi í þjóðarbúskapnum og að halda verðbólgu og atvinnuleysi í skefjum. „Ef samdráttur held- ur áfram fer gamanið að kárna,“ segir Stefanía. Aðspurð hvort þetta séu sérstaklega spennandi tímar í pólitík segir hún það í raun bæði og. „Það er ágætt að fá tímabil þar sem allt er ekki í brjálæðis- legum látum. Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi þannig að mað- ur veit aldrei hvenær allt verð- ur brjálað. Ég er ekki örugg með stöðugleikann, sérstaklega ekki í ljósi þess hvernig pólitíkin hef- ur verið síðustu tíu árin. En það er ákveðin ró um mál sem mér persónulega líkar.“ n „ Þetta skapar nýja stöðu fyrir Sjálf- stæðisflokkinn hvað varðar miðjufylgi og frjálslynt fylgi. Þingfundardagar: 113 Fjöldi þingfunda: 129 Heildarlengd þingfunda: 865 klst. Meðallengd þingfunda: 6 klst. og 42 mín. Lengsti þingfundurinn: 24 klst. og 16 mín. Lengsta umræðan: 138 klst. um þriðja orkupakkann Af 262 frumvörpum urðu 120 að lögum. Af 151 þingsályktunartillögu voru 47 samþykktar. Miðflokksmenn í miðju málþófi. Katrín Jakobsdóttir Sigríður Andersen Stefanía Óskarsdóttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.