Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2019, Side 4
4 28. júní 2019FRÉTTIR
Ég fitna bara þegar ég vil
Þ
að er tvennt sem Svarthöfði er með
bráðaofnæmi fyrir í þessu lífi; sólbaði og
forræðishyggju. Svarthöfði hefur því eytt
bróðurpartinum af þessu vori og sumri í
andnauð, með bólgin augu og í hreint út sagt af-
leitu skapi.
Það var ekki nóg að fylgjast með manni og
öðrum rífa sig úr fötunum um leið og fyrstu sól-
arglæturnar létu sjá sig heldur þurfti Svarthöfði
að umbera hálfnakið, illa lyktandi og óaðlað-
andi fólk hvar sem hann kom. Loksins þegar að
fallega silfurgráu skýin létu sjá sig með tilheyr-
andi vætu og melankólískri fegurð dundi ann-
að áfall yfir.
Bévítans forræðishyggjan lét á sér kræla og
reis eins og Ketos upp úr sjónum. Allt í einu
fannst forræðispésunum sniðugt að setja á
sykurskatt, því það hafði virkað svo svakalega
vel fyrir nokkrum árum. Svarthöfði er kannski
ekki í besta forminu en þarf enga póli-
tíkusa til að segja sér að grennast.
Svarthöfði grennist bara ef hann nenn-
ir. Svarthöfði var líka alinn upp á kandís
og kókópöffs og lifir enn ágætislífi.
Svarthöfði sér bara eitt í stöðunni – að
hamstra hvers lags lakkrísdrullu, gelatín-
gums og súkkulaðisull sem hann finn-
ur og selja á svarta markaðinum. Ekki má
gleyma kolsvörtum drykki Guðanna sem
Svarthöfði getur alls ekki verið án.
Svarthöfði veltir fyrir sér hvenær
fyrrnefndir forræðispésar ætla að fatta að
þetta plan þeirra gengur bara alls ekki upp,
ekki frekar en borgarlína og ísbjörn í Hús-
dýragarðinn. Þegar þú bannar Svarthöfða
að gera eitthvað þá streitist hann á móti. Gerir
uppreisn. Og í þessu tilfelli – verður
spikfeitur. n Svarthöfði
Það er
staðreynd að…
Íslendingar drekka mest allra þjóða af
Coca Cola miðað við höfðatölu.
Mánuðir sem hefjast á sunnudegi inni-
halda föstudaginn þrettánda.
Meðalmanneskjan sofnar á sjö
mínútum.
Elvis Presley lék í einni sjónvarps-
auglýsingu.
Plastflöskur voru fyrst notaðar undir
drykki árið 1970.
Hver er
hann
n Fæddur á þessum
degi á Nesi við Seltjörn
á Seltjarnarnesi, lést
árið 1927.
n Faðir hans var
dómari.
n Hann lærði bæði í Kaupmanna-
höfn og Leipzig og menntaði sig
langt umfram það sem þá þekktist
á Íslandi.
n Hann var kennari og tónskáld.
n Hann samdi Ó, Guð vors lands,
sem síðar varð þjóðsöngur
Íslendinga.
SVAR: SVEINBJÖRN SVEINBJÖRNSSON TÓNSKÁLD.
É
g kem úr fjölskyldu sem stólaði
mikið á þessa aðstoð og sömuleið-
is þurfti ég mikið á því að halda
fyrir þremur árum þegar ég var
nýbyrjuð að búa sjálf. Því veit ég hvað
þetta er mikilvægt fyrir þá sem þurfa á
þessu að halda,“ segir Kristjana Hákon-
ía Hlynsdóttir, en hún hrundi af stað
söfnun á vefsíðu Gofundme fyrir Fjöl-
skylduhjálp Íslands.
Fjölskylduhjálp Íslands mun verða
lokuð í júlí og ágúst í sumar og er þetta
í fyrsta skipti í sögu samtakanna sem
gripið er til sumarlokunar.
„Ég hef verið með mánaðarlegar
greiðslur til þeirra síðan ég þurfti ekki
lengur á þessari aðstoð að halda en ein
manneskja getur bara stutt málefnið
svo mikið,“ segir Kristjana í samtali við
DV. „Eftir því hvernig ég hef upplifað
þetta, þá eru tvær gerðir af fjölskyldum
hér á landi. Það eru þær sem þurfa á
þessari aðstoð að halda og geta því ekki
styrkt þetta málefni, og svo þeir sem
hafa alltaf lifað svo vel að þessi málefni
ná ekki inn fyrir þeirra sjónarsvið.“
Húsaleigan fer síhækkandi
Í samtali við DV hafði Ásgerður Jóna
Flosadóttir ekki heyrt af téðri söfnun.
Hún þvertekur fyrir að Fjölskylduhjálp-
in sé að loka fyrir fullt og allt. Staðan sé
þó óvenju slæm um þessar mundir þar
sem leiguverð hefur snarhækkað.
„Við erum ekkert að fara að loka. Við
ætlum að vera í önnur 16 ár til viðbót-
ar. En það er á hreinu að við verðum að
vera ábyrgar í fjármálum af því að við
getum ekki leitað í þessa stóru sjóði,
öfugt við önnur hjálparsamtök.
Fólk þarf að gera sér grein fyrir
því að við erum að borga 1.200 þús-
und á mánuði í húsaleigu, hér í höf-
uðborginni og á Reykjanesi. Við það
bætist hiti og rafmagn. Það er ein-
faldlega þannig að þegar við borgum
svona mikið í húsaleigu þá getum við
ekki leyft okkur að kaupa matvörur í
júlí og ágúst, vegna þess að við verðum
að standa vaktina í september. Við vilj-
um geta staðið skil á húsaleigu. Þetta er
þess vegna algjört neyðarúrræði.“
Ásgerður tekur fram að nytjamark-
aðir Fjölskylduhjálparinnar verði
áfram opnir í júlí og ágúst. Hún segir
marga skjólstæðinga Fjölskylduhjálp-
arinnar örvæntingarfulla vegna sum-
arlokunarinnar og hafa stofnuninni
borist ófá símtöl undanfarið frá fólki í
neyð. „Ég er búin að vera í þessu í 25 ár
og staðan er alltaf jafn slæm.“
Fjölskylduhjálpin fær eina millj-
ón á ári frá ríkinu og aðra milljón frá
borginni. Ásgerður segir frjáls framlög
halda starfseminni að mestu leyti uppi.
„Miðað við allan þennan rekstrar-
kostnað þá er það í rauninni krafta-
verk að það sé búið að halda þessu
gangandi í 16 ár. Við stöndum einar og
höfum gert það alveg frá upphafi. Hér
er sparað við hverja nögl og við þurf-
um að rýna í hverja einustu krónu. Við
þurfum að borga fyrir allt og við skuld-
um ekki neitt. Ef við hefðum úr millj-
ónum að moða, eins og Hjálparstarf
kirkjunnar og Rauði krossinn, þá væri
ástandið ekki svona.“ n
„Ég væri ekki á lífi í dag ef það væri ekki fyrir Fjölskylduhjálp-
ina,“ segir fjögurra barna einstæð móðir á höfuðborgarsvæð-
inu, en hún hefur reitt sig á matargjafir Fjölskylduhjálpar-
innar undanfarna mánuði. Konan treysti sér ekki til að koma
fram undir nafni en verður hér kölluð Lilja. Lilja er öryrki og
einstæð móðir fjögurra barna á aldrinum sex til fimmtán ára.
Hún greiðir 220 þúsund krónur í húsaleigu á mánuði og
þá er lítið eftir aflögu.
„Eins og staðan er þá er allur peningurinn búinn um miðj-
an mánuðinn. Ég hef farið mánaðarlega í Fjölskylduhjálpina
í rúmlega hálft ár og fengið þar ómetanlega hjálp, brauð og
mat og meira að segja sjampó.“
Lilja segist ekki hafa hugmynd um hvernig hún eigi að
geta fætt fjölskylduna á meðan sumarlokuninni stendur.
„Ég veit ekkert hvert ég á að snúa mér annað. Þetta er
rosalega erfitt. Það er bara allt svo dýrt í dag. Auðvitað líður
manni ekki vel með að þurfa að leita sér hjálpar. En ég verð
að geta gefið börnunum mínum að borða. Ég veit ekki hvað
ég get gert, kanski reynt að lifa á jógúrt? Maður reynir bara
að spara hverja einustu krónu,“ segir Lilja, en hún sá sig til-
neydda til að taka yngstu börnin sín tvö úr leikskólanum í
síðasta mánuði þar sem leikskólagjöldin kosta sitt.
„Ég er ofboðslega sár og svekkt að það skuli ekki vera hægt
að hafa þetta opið. Ég er þakklát fyrir Fjölskylduhjálpina.“
„Sár og svekkt“
„Ég verð að geta gefið
börnunum mínum að borða“
n Sumarlokun Fjölskylduhjálpar n Móðir getur ekki fætt börnin
Auður Ösp Guðmundsdóttir
audur@dv.is