Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2019, Page 23

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2019, Page 23
Fiskur og veiði 2019 28. júní 2019 KYNNINGARBLAÐ FISH PARTNER: Ástríða fyrir veiði Þingvallavatn – Svörtuklettar „Mögnuð kvöld við Svörtukletta“ Svörtuklettar eru í landi Heiðar- bæjar 2 við norðvesturhluta Þingvallavatns. Móakotsá á ós á svæðinu og leitar urriðinn oft í ósinn til að melta og í fæðuleit. Svæðið er þekkt fyrir stóran urriða en þeir ferðast í torfum með ströndinni. Þingvallavatn – Kárastaðir „Sennilega stórbrotnasta svæði Þingvallavatns“ Kárastaðir eru við norðanvert Þingvallavatn, skammt frá ósum Öx- arár sem er helsta hrygningarstöð Þingvallavatns-urriðans. Urriðinn sveimar um svæðið í torfum á vorin og getur veiðin orðið ævintýraleg ef menn hitta á eina slíka. Eigendur Fish Partner, Gunn-ar Örn Petersen, Kristján Páll Rafnsson og Sindri Hlíðar Jónsson, hafa áratuga reynslu af stangveiði, leiðsögn og skipulagn- ingu veiðiferða. Það er ástríða fyrir veiði sem rekur þá félaga áfram og er óhætt að segja að þeir séu í draumastarfinu. Þeir þreytast aldrei á því að kanna nýjar veiðilendur og kynna ný svæði fyrir veiðimönnum. Þau svæði sem Fish Partner býður upp á eru rjóminn af því sem þeir félagar hafa uppgötvað. Þingvallavatn – Villingavatnsárós „Eitt magnaðasta urriðasvæði í veröldinni“ Villingavatnsárós er magnaðasta urriðasvæði Þingvallavatns. Eins og nafnið gefur til kynna á Villinga- vatnsá ós á svæðinu og urriðinn leit- ar í ósinn til að melta fæðu. Svæðið getur gefið ótrúlega veiði og mikið er af stórum fiski. Villingavatn (Tjörnin) „Lítið en leynir verulega á sér“ Villingavatn, eða Tjörnin, læt- ur ekki mikið yfir sér en geymir þó mikið af urriða sem margir hverjir eru mjög stórir. Þingvallavatn – Kaldárhöfði „Spennandi kostur í urriða og bleikju“ Kaldárhöfði er syðsta veiði- svæðið í Þingvallavatni og nyrsta svæðið í Úlfljótsvatni. Um er að ræða mjög fjölbreytt svæði sem bæði býður upp á urriða- og bleikjuveiði. Kaldakvísl „Leynd perla á hálendinu“ Kaldakvísl geymir ótrúlegan bleikjustofn og geta stærstu bleikjurnar orðið allt að 10 pund- um. Ekki er óalgengt að menn setji í 5–6 punda fiska. Í Köldukvísl er einnig að finna urriða sem líka getur orðið mjög stór. Tungnaá „Sjónveiði í kristaltærri hálendisá“ Tungnaá er frekar lítil á og um- hverfi hennar er mjög sérstakt þar sem hún liðast kristaltær niður stór- brotinn jökulfarveg. Mögnuð bleikju- veiði getur verið í ánni. Blöndukvíslar „Víðáttur óbyggðanna“ Vatnasvæðið ofan Blöndulóns samanstendur af sjö ám og ótal lækjum sem renna í lónið eða Blöndu. Krefjandi svæði fyrir æv- intýragjarna veiðimenn. Syðra-Fjall í Laxá í Aðaldal „Paradís þurrfluguveiðimannsins“ Syðra-Fjall í Laxá í Aðaldal er skemmtilegt silungasvæði með laxavon. Árbót í Laxá í Aðaldal „Drottningin“ Laxá í Aðaldal, eða Drottningin eins og hún er gjarnan kölluð, er öllum íslenskum veiðimönnum kunn. Áin er þekkt fyrir að geyma stóra laxa og ógrynni af vænum urriða. Árbót er stórskemmtilegt laxa- og urriðasvæði á austur- bakka Laxár, gegnt Nessvæðinu og Laxárfélagssvæðinu. LAXVEIÐI ÞÓ SVO AÐ SILUNGSVEIÐI SÉ SÉRSVIÐ FISH PARTNER ÞÁ BÝÐUR FÉLAGIÐ EINNIG UPP Á SPENNANDI KOSTI Í LAXVEIÐI. Gljúfurá „Skemmtileg laxveiði“ Gljúfurá er nett og falleg þriggja stanga á í Húnavatns- sýslu. Veiðistaðir í Gljúfurá eru hver öðrum fallegri og mjög fjöl- breyttir. Lax, bleikja og sjóbirtingur gengur í Gljúfurá og þar er einnig staðbundinn urriði. Sandá í Þjórsárdal „Haustveiði í stórbrotnu um- hverfi“ Þessi tveggja stanga perla rennur í gríðarlega fallegu, skógi vöxnu, umhverfi í Þjórsárdal. Áin er hliðará Þjórsár og er ein af aðal hrygningarstöðvum laxins í efri Þjórsá. ÖNNUR SVÆÐI: Sporðöldulón. Kvíslarveita. Geldingatjörn. Hamrar í Hvítá. SILUNGSVEIÐI FISH PARTNER BÝÐUR UPP Á ÚRVAL VEIÐISVÆÐA MEÐ URRIÐA OG BLEIKJU. SILUNGSVEIÐI ER SÉRSVIÐ FÉLAGSINS. BOÐIÐ ER UPPÁ VEIÐI Á NOKKRUM AF FALLEGUSTU SVÆÐUM LANDSINS.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.