Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2019, Side 33
SAKAMÁL 3328. júní 2019
áhrifin sem morð hennar hefur
haft á börnin hennar tvö sem hafa
verið móðurlaus meirihluta ævi
sinnar,“ segir Barnston.
Trúnaður og sambönd breytast
„Ég vil hvetja alla sem hafa upplýs-
ingar, hversu léttvægar sem þær eru,
að stíga fram. Trúnaður og sam-
bönd breytast með tímanum og það
gæti verið að það sé einhver sem gat
ekki talað við okkur á sínum tima,
en er í aðstöðu til þess í dag.“
Holle Brian, systir Morgan, seg-
ir: „Í 35 ár hef ég horft á atburði ger-
ast án hennar. Þetta hafa verið 35 ár
af þögn og lífi sem hún fékk ekki að
lifa.
„Á meðan við höldum minn-
ingu hennar í hjarta okkar þá er
hún á meðal okkar. Við erum að
eldast og það mun koma sá tími að
málið verður ekki leyst.
Við skorum á þig ef þú hefur
einhverjar upplýsingar um þenn-
an dag í júní 1984. Gerðu það,
farðu til lögreglunnar, kannski
varstu hrædd/ur við að tala þá,
en að staða þín hafi breyst í dag.
Vegna minningar systur minnar
og ástar okkar á henni þá viljum
við vita hvað gerðist og vera viss
um að sá sem valdur var að dauða
hennar muni aldrei særa aðra
manneskju aftur.“ n
fjölgaði um 6%, en skráð tilvik eru 40.829 talsins og hafa ekki verið fleiri síðan árið 2011. Einn
þriðji hnífaárása átti sér stað í London og flestar þeirra í úthverfum borgarinnar. Alvarlegum
glæpum fjölgar: tilkynningum vegna nauðgana um 11%, ránum um 11%, svikum um 12% og
þjófnaði um 8%.
BBC tók saman yfirlit yfir 100 fyrstu morðmál ársins 2019 í máli og myndum, til að sýna
fólkið á bak við fyrirsagnirnar, um er að ræða mál til og með 8. mars. Hnífur var notaður í 40
tilvikum af 100. Aldur fórnarlamba er dreifður, einn fimmti var undir tvítugu, en flest á þrí-
tugs- og fertugsaldri. Yngsta fórnarlambið var eins mánaðar gamall drengur og elstu 84 ára
gamlir tvíburar, bræður myrtir í Exeter. 22 morðanna voru framin í London. 72 fórnarlamb-
anna voru karlmenn og flestir þeirra á fertugsaldri.
Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202
Ryðga ekki
Brotna ekki
HAGBLIKK
Álþakrennur & niðurföll
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt
PÓSTKORT ERU MIKILVÆG SÖNNUNARGÖGN ÓLEYSTS MORÐS FRÁ 1984
Lögreglan telur að póstkort af St
Andrew’s kirkju frá sjónarhorni Backwell-
hæðar séu mikilvæg í rannsókn þeirra
á hvert Morgan var að fara daginn sem
hún var myrt. Mynd: Press Association.
Þetta póstkort sýnir ána Avon í Bristol, myndin er
tekin frá Bower Ashton rétt fyrir neðan Clifton-
brúna, bæði póstkortin voru seld á níunda og
tíunda áratugnum. Mynd: Press Association.
Mynd tekin á vettvangi 1984.
Mynd: Press Association.
Morgan var á leiðinni til
Leigh-skógar nálægt
Ashton Court daginn sem
hún hvarf. Mynd: Press
Association.
Long Lane í Backwell Hill, þar sem líkamsleifar
Morgan fundust. Mynd: Press Association.