Skessuhorn - 25.02.1999, Side 4
FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1999
i>K£saunu.^
4
Fasteignamarkaöur
Líflegur markabur og bjarf útlit
Rætt vib fasteignasala á Vesturlandi
Það var ágætt hljóðið í fasteigna-
sölunum á Vesturlandi sem Skessu-
horn hafði samband við í síðustu
viku til að hlera hvernig ástandið
væri á markaðnum.
Fasteignaviðskipti jukust verulega
á síðasta ári, og það sem af er þessu
ári hafa viðskiptin verið óvenju lífleg
en tíminn frá desember og fram í
febrúar er jafnan mjög rólegur.
Margir bundu vonir við að opnun
ganganna undir Hvalfjörð og aðrar
framkvæmdir á Vesturlandi myndu
hleypa lífi í fasteignamarkaðinn og
segjast fasteignasalar það hafa geng-
ið eftir að mörgu leyti. Töluvert hefur
verið um nýbyggingar f Borgamesi
og á Akranesi, meira er um beinar
sölur en áður sem bendir til að fleiri
fjárfesti í húsnæði innan svæðisins og
fasteignasalar eru sammála um útlitið
sé bjartara en það hafi verið um langt
skeið.
Borgarnes
Ingi Tryggvason, sem tók við fast-
eignasölunni af Gísla Kjartanssyni
um síðustu mánaðamót, vildi fara
varlega í yfirlýsingamar og sagði að í
sjálfu sér hefðu kannski engin stórtíð-
indi gerst. Þó hefði verið mikil sala á
síðasta ári og greinilegt að fólk væri
að spá í hlutina. Hann sagði að mesta
ásóknin væri í blokkaríbúðir og þær
seldust yfirleitt um leið. Einnig væri
mikil eftirspum eftir landi og hrein-
lega rifist um það sem byðist.
Þónokkuð hefur verið byggt af nýj-
um íbúðum í Borgamesi sem hefði
ekki verið gert um langa hríð og fleiri
nýbyggingar em fyrirhugaðar. Ingi
Ingi Tryggvason.
sagði engar umtalsverðar breytingar
hafa orðið á verði fasteigna en búast
mætti við að aukin eftirspum hefði
þar áhrif á. Hann sagði að það væri
áberandi að dýrari eignir væm erfiðar
í sölu og þegar komið væri yfir 10
milljóna múrinn þyngdist róðurinn
vemlega. „En árið fer vel af stað og
og horfumar eru nokkuð góðar,“
sagði Ingi að síðustu.
Akranes
Soffía S. Magnúsdóttir hjá Fast-
eignamiðlun Akraness sagði að
vissulega hefðu göngin haft áhrif en
það yrði að skoða það í samhengi við
aðra hluti. Sjálf opnunin hefði ekki
skipt sköpum en merkja hefði mátt
breytingar strax og ákvörðunin um
framkvæmdina hefði verið tekin.
Þróunin hafi verið hæg en nokkuð ör-
ugg. Hún sagði markaðinn hafa
breyst, áður hafi um sjötíu og fimm
prósent af öllum sölum verið skipti
en það hafi algjörlega snúist við og
Soffía S. Magnúsdóttir.
nú séu beinar sölur í miklum meiri-
hluta. „Fólk er að setjast að héma og
eftirspumin er að aukast. Það vantar
eignir á skrá og framboðið er engan
veginn nægjanlegt. Þetta er seljenda-
markaður eins og það er kallað - það
er gott að selja um þessar mundir,"
sagði Soffía. Með tilkomu nýbygg-
inganna inn á markaðinn dró úr eftir-
spum eftir öðm húsnæði um tíma en
hún hefur aukist aftur, sérstaklega ný-
legu húsnæði og eldra húsnæði sem
hefur verið endumýjað.
Soffía sagði verð á sumum tegund-
um eigna hafa hækkað og tilgreinir í
því sambandi til 110 - 130 fermetra
íbúðir sem stoppi stutt við þegar þær
komi á söluskrá.
Daníel Rúnar Elíasson hjá Fast-
eignasölunni HAKOT segir að opnun
ganganna og nýlegt álver á Gmndar-
tanga hafi haft minni áhrif á fast-
eignamarkaðinn en margur hafi hald-
ið, hann segir umræðuna hafa vaxið
Daníel Rúnar Elíasson.
og fleiri fyrirspumir borist. Viðskipti
vegna þessara nýju þátta hafa þó ekki
aukist að marki.
„Margir héldu að það yrði einhvers
konar sprenging þegar gatið opnaðist
og fólkið myndi streyma í gegn en
það gerðist ekki, þetta mun taka
lengri tíma, hægt og sígandi mun
þetta skila okkur auknum íbúafjölda.
En fólk er að skila sér heim aftur,
brottfluttir Skagamenn hafa verið að
snúa aftur og fleiri væntanlegir.“
Daníel segir skipti innan bæjarins
einkenna markaðinn, fólk fari úr
stærra í minna og öfugt. Mikill meiri-
hluti viðskiptavinanna er búsettur
innan svæðisins en hann telur að
yngra fólk sem er að byrja að búa
kaupi frekar hér en t.d. í Reykjavík
þar sem fasteignaverð er vemlega
hærra. Hann segist vita til þess að
fólk sæki vinnu til höfuðborgarsvæð-
isins en kjósi að búa á Akranesi. Dan-
íel segir reyndar mestu breytinguna
vera í nýbyggingunum, í heil fimmt-
án ár hafi verktakar ekki selt íbúð en
á síðustu missemm hafi verið seldar á
þriðja tug nýrra eigna, bæði sérhæðir,
einbýli og parhús. „Mesta eftirspum-
in er í blokkaríbúðum en notuð ein-
býlishús koma sterkt inn núna í byrj-
un árs, sem höfðu verið í lægð vegna
mikillar sölu á nýbyggingum. Vöntun
er á góðum sérhæðum, blokkaríbúð-
um og jafnvel stærri einbýlishúsum.
Þetta ár byrjar óvenju kröftuglega á
fasteignamarkaðnum og það gefur
góð fyrirheit og ekki skemmir fyrir
að yfirverð er á húsbréfum sem er
stór hluti af greiðslum við kaup á
eignum.
Snæfellsbær
Pétur Kristinsson fasteignasali í
Stykkishólmi sagði að ástandið væri
ósköp svipað og undanfarin ár og
hann merkti ekki teljandi breytingu á
fasteignamarkaði. „Þetta er svona
frekar friðsælt eins og venjulega,“
sagði Pétur. Hann vill meina að
bylgjan sem menn tengja við göngin
hafi ekki náð að berast vestur á Snæ-
fellsnes, nema þá í formi aukins
ferðamannastraums. Pétur sagði að
jafnaði seldist um tuttugu til þrjátíu
eignir á ári í Hóminum. Oft væri ró-
legt svo tæki þetta kippi inn á milli.
Hann var þó ekki frá því að fleiri
fyrirspumir hefðu borist og þá helst í
sambandi við litlar eignir sem fólk og
félagasamtök vildi nýta sem sumar-
bústaði. Sagði hann að dálítið væri
um slík hús á svæðinu og seldust þau
yfirleitt fljótt þegar þau kæmu á sölu.
-KK
Hvalfjarðargöngin
Tæplega hálf milljón bíla um
göngin síöasta ár!
Samkvæmt upplýsingum frá Stef-
áni Reyni Kristinssyni fram-
kvæmdarstjóra Spalar fór tæplega
hálf milljón bifreiða um Hvalfjarð-
argöngin á síðasta ári. 428.198 bif-
reiðar fóru um göngin frá 20. júlí
þegar gjaldheimtan hófst en frá
opnuninni 11. júlí til 20. júlí fóru
um 50 þúsund bifreiðar undir
fjörð. Dagsumferðin var því að
meðaltali á milli 2500 og 2600 bflar
á liðnu ári.
Meðaltalsumferð í janúar síðast-
liðnum reyndist vera tæplega tvö þús-
und bflar á dag (nákvæmlega 1964)
en fyrirfram var gert ráð fyrir að
minnsta umferðin yrði í vetrarmán-
uðunum janúar og febrúar. Vitað var
að vetrarumferð ykist við opnun
ganganna en það er talið að áhrifin á
sumarumferðina verða trúlega minni.
Mikil umferb
Síðustu áætlanir áður en göngin
voru opnuð fyrir umferð gerðu ráð
fyrir 1770 bflum að meðaltali á dag
og var áætlað að sú tala yrði komin í
um 2000 bfla í lok borgunartímabils
árið 2018. Það er því ljóst að umferð-
in um göngin er langt umfram það
sem áætlanir gerðu ráð fyrir. Stjórn
Spalar hyggst á næstunni leggja það
til við aðalfjárfesta fyrirtækisins að
gjaldskráin verði endurskoðuð en í
samningunum um fjármögnun gang-
anna eru ákvæði um að verðskrá
megi ekki breyta nema með sam-
þykki þeirra.
Stefán Reynir sagði ákveðin atriði
hafa komið öðruvísi út en reiknað
hafði verið með. Til að mynda var
gert ráð fyrir að 2/3 af minni bílum
færu um göngin en reyndin væri sú
að yfir 90% ökumanna kjósa að aka
göngin. Eins hefðu menn ekki séð
fyrir þá miklu veglyklanotkun sem
kom á daginn og fyrir vikið væru
meðaltekjur af hverjum bfl heldur
lægri en áætlanir miðuðust við. Með-
altekjur af bfl eru nú um 8oo krónur
og hafa farið lækkandi því veglykla-
notkun eykst jafnt og þétt.
Spurður um hraðakstur í göngun-
um sagði Stefán Reynir að þau mál
væru Spalarmönnum mikið áhyggju-
efni. „Við leggjum mikið upp úr því
að halda hraðanum innan leyfilegra
marka og höfum haft um það góða
samvinnu við lögregluna. Langflestir
virða umferðarreglurnar og það sama
gildir um göngin. Það skiptir miklu
máli að fara varlega því að göngin
eru brattari en þau sýnast þegar öku-
Stefán Reynir Kristinsson framkvæmdastjóri Spalar (í mi&iö) ásamt starfsmönnum síbastliðib sumar.
menn hafa ekki sjóndeildarhringinn
til að miða við. I göngunum beygja
menn ekki frá aðsteðjandi hættu því
handan dúksins tekur bergveggurinn
við. Að sjálfsögðu er það stefnan að
engin óhöpp verði og að ökumenn
virði hámarkshraðann í göngunum,"
sagði Stefán Reynir.
-KK
Jóhann Ingi í Hellusteypunni. Mynd: Kristín Ben
Hellusteypa í
Stykkishólmi
Tekin er til starfa hellusteypugerð í
Stykkishólnii. Jóhann Ingi Hin-
riksson múrari stofnsetti á síðasta
ári fyrirtækið Hellugerð Jóhanns
Hinrikssonar.
I nokkra mánuði hefur Jóhann ver-
ið að þróa réttu blönduna og sent
sýnishorn til Rannsóknarstofnunar
byggingariðnaðarins. Nú hefur hann
fengið grænt ljós og gæðastimpil á
hellumar-og er farinn að steypa. Af-
köstin eru 40 til 50 fermetrar á dag en
Jóhann notar við hellusteypuna
gamla endurgerða vél. sem afi hans
Finnur Sigurðsson múrari notaði á
sínum tíma.
Jóhann er með í gangi 6 mismun-
andi steypumót, nokkrar stærðir hver
gerð og hefur nú þegar fengið pant-
anir fyrir sumarið. Verðið er það
sama og annarsstaðar á landinu, en
flutningskostnaðurinn lítill sem eng-
inn í Stykkishólmi og sjálfsagt mun
minni fyrir marga Vestlendinga
miðað við að fá hellumar fluttar úr
Reykjavík. Kristín Ben