Skessuhorn - 24.08.2000, Qupperneq 3
FIMMTUDAGUR 24. AGUST 2000
3
Snæfellsnes næsta
viðfangsefni Þjóðlendunefndar
Engir afréttir
Snæfellsnes verður næsta við-
fangsefni Þjóðlendunefhdar.
Neíhdin hefur það hlutverk með
höndum að gera tillögur um
landsvæði sem gerð verði að
þjóðlendum. Nefndin hefur þeg-
ar fjallað um hálendi suðurlands
en nú verður haldið í vestur.
Sveitarfélög á Snæfellsnesi hafa
fengið bréf frá Þjóðlendunefhd þar
sem óskað er eftir upplýsingum um
jarðir sem eiga íjalllendi. Héraðs-
nefnd Snæfellsness og Hnappadals-
sýslu hefur brugðist við með því að
skipa nefnd sem á að aðstoða land-
eigendur við að sanna eignarrétt
yfir jörðum sínum. Þjóðlendunefnd
hefur þrjá til sex mánuði tdl að
kynna kröfur sínar fyrir hönd ríkis-
ins og landeigendur hafa sama frest
til að sýna ffam á eignarrétt sinn
yfir viðkomandi landi.
Undirbúningur hafinn
Halla Guðmundsdóttdr í Dals-
mynni, oddviti Eyja- og Mikla-
holtshrepps, er ein þeirra sem sæti
á í undirbúningsnefhdinni. Hún
segir að jarðeigendum á Snæfells-
nesi hafi verið sent bréf þar sem
málið er kynnt. “Þeir eru hvattir til
að undirbúa sín mál í tíma og verða
sér úti um öll nauðsynleg gögn, svo
sem landamerkjabréf. Hugsanlegt
er að þegar nær dregur verði ráð-
inn lögffæðingur til að aðstoða þá
landeigendur sem telja sig þurfa að
verja eignarrétt sinn.
Eingöngu eignarlönd
Halla segir að ekki sé hægt að
bera saman Suðurland og Snæfells-
nes þegar kemur að því að ákvarða
þjóðlendur. “A Suðurlandi var stór
hluti landsins sem Þjóðlendunefnd
gerir kröfur til, afféttir. A Snæfells-
nesi liggja hinsvegar eignarlönd í
öllum tilfellum saman þar sem þar
eru engar afréttir.”
Skógarströnd ekki með
Það vekur athygli að fjalllendi á
Skógarströnd verður ekki tekið
með í kröfugerð Þjóðlendunefndar
á Snæfellsnesi. “Eg veit ekki hvort
nefhdarmenn hafa áttað sig á að
Skógarströndin tilheyri Snæfells-
nesi og hafi talið hana til Dala-
sýslu,” segir Halla. GE
Raddir Evrópu í Reykholti
Söngur, tré og töðugjöld
Kórinn raddir Evrópu, sem skip-
aður er ungu söngfólki úr menning-
arborgum Evrópu árið 2000, var við
æfingar í Reykholtd dagana 17.-25
ágúst. Kórinn heldur sína fyrstu
tónleika í dag og á morgun í Hall-
grímskirkju í Reykjavík.
Raddir Evrópu sungu nokkur lög
þegar Aldamótaskógurinn var gróð-
ursettur í Reykholti og einnig við
messu í Reykholtskirkju á sunnudag.
Þá söng kórinn nokkur lög fyrir
borgarstjóra menningarborganna
rnu en þeir heimsóttu Reykholt á
sunnudag. Með þeim í för var hið
heimsþekkta tónskáld, Arvo Pert, en
hann hefur samið tónverk sérstak-
lega fyrir Raddir Evrópu.
Kórfélagar nýttu tímann í Reyk-
holti vel tdl æfinga en einnig fóru
þeir í skoðunarferðir um héraðið og
á laugardagskvöldið fóru þeir á
töðugjaldadansleik í Logalandi í
Reykholtsdal. GE
rer trúir að þessi nýfæddi Vestlendingur
Guðmundur í Giljahlíð verði fertugur
laugardaginn 26. ágúst
Hann heldur upp á afmæíið heima
Sveinn Vlóki, Rósa, Stella og Edda
|5 Zg
■vi
súpukjöt l.f/. kr/kl'5.84'\QQ
tilboðsverð kr. 399,
Kindahakk kr/kg. 765-
tilboðsverð kr. 399.-
Kínakál kr/kg. 29íl-
tilboðsverð kr. 199.-
Hvítkál krlkg. 238.-
tilboðsverð kr. 149.-
Hrís flóð 200 gr. kr. 199,-
tilboðsverð kr. 179,-
Þriggjakornabrauðkr. 192,-
tilboðsverð kr. 149,
Jólakakakr. 323,-
tilboðsverð kr.
auk tilboða, skólavörur
og skólafatnaður í úrvali
Verið velkomin!
Sími 430 5533