Skessuhorn - 24.08.2000, Side 14
14
FIMMTUDAGUR 24. AGUST 2000
^kUSUHUiúi
i *
Sundkonan Kolbrún Yr Kristjánsdóttir er
eini fulltrúi Vesturlands á Olympíuleikunum:
Vatnið hefiir
alltaf heillað mig
Kolbrún Ýr slakar á mei bros á vör við sólpallinn á heimili sínu á Skaganum. Hún notar hvert tcekifieri sem gefst til að slaka á enda
æfitigaálagiS meira en nokkru sinni þessa dagana.
Hún er ekki nema 16 ára gömul
en hefur engu að síður verið á með-
al fremstu sundkvenna landsins
undanfarin ár. Hún ber titilinn
“íþróttamaður Akraness 1999“ og
tíl vitnis um þá nafhbót blasir við á
stofugólfinu í foreldrahúsum risa-
stór bikar sem henni fylgir. A
morgun leggur þessi unga stúlka
upp í sex vikna ferðalag til Sydney í
Astralíu, þar sem hún keppir fyrir
Islands hönd á Olympíuleikunum.
Vestlendingar eiga þar ekki aðra
fulltrúa. Hún fetar þar með í fót-
spor þriggja annarra sundmanna frá
Akranesi sem keppt hafa á leikun-
um; Guðjóns Guðmundssonar, sem
keppti í Munchen 1972, Inga Þórs
Jónssonar, sem keppti í Los Angel-
es 1984 og Ragnheiðar Runólfs-
dóttur, sem kepptí í Seól 1988 og
aftur í Barcelona 1992. Kolbrún Ýr
Kristjánsdóttír hefur orðið.
Vatnið hefur heillað
“Ég er búin að vera í lauginni svo
að segja ffá því ég man eftír mér,“
segir þessi geðþekki og yfirvegaði
táningur í spjalli við blaðamann
Skessuhoms. “Vamið hefur alltaf
heillað mig og ég fékk mjög
snemma tilfinningu fyrir hreyfingu
í vami og hún var mér algerlega á-
reynslulaus. A yngri áram lét ég
mér skólasundið ekki nægja. Ég fór
gjarnan aftur í laugina eftir að skóla
lauk og jafnvel í þriðja sinn sama
daginn í fylgd með foreldrum mín-
um að afloknum vinnudegi þeirra,“
bætir hún við.
Kolbrún Ýr var ekki nema sex ára
gömul er hún fór að æfa sund með
reglubundnum hættí. Steve Cryer,
sem var þjálfari Stmdfélags Akra-
ness um nokkurra ára skeið, sagði
eitt sinn við undirritaðan að ef Kol-
brún Ýr ættí ekki eftir að komast á
Ólympíuleika og verða í ffemstu
röð væri eitthvað meira en lítið að.
“Ég hef aldrei séð svo ungan sund-
mann með jafnmikið vald á tækni í
vatninu," sagði Cryer. Kolbrún Ýr
var ekki nema 8 ára gömul þegar
þessi urnmæli féllu.
Undanfarin átta ár hefur hún ver-
ið undir handleiðslu Sigurlínar
Þorbergsdóttur sundþjálfara og
saman fara þær til Sydney. Þegar
heim kemur heldur Sigurlín til Ak-
ureyrar, þar sem hún hefur ráðið sig
sem þjálfara, en Kolbrún Ýr tekur
upp þráðinn að nýju. “Silla hefur
reynst mér allt í senn; ffábær þjálf-
ari og vinur og nánast gengið mér í
móður stað á ferðalögum erlendis.
Vissulega held ég að það verði mik-
il viðbrigði fyrir okkur báðar að
starfa ekki svo náið saman áfram en
ég held að við eigum effir að spila
jákvætt úr þessu.“
Heima er best
- Óttastu ekki að það verði erfitt
að rífa sig upp aftur þegar heim er
komið?
“Nei, ég geri það nefnilega alls
ekki. Þótt ég sé svona ung er ég
komin með umtalsverða reynslu af
ferðalögum og keppni á erlendri
grundu og iðulega hef ég fyllst
miklum eldmóði strax og heim er
komið. Það er nefhilega þannig, að
hversu oft sem ég fer utan tíl að
keppa er alltaf jafngott að koma
heim aftur. Heima er best.“
Kolbrún Ýr þarf heldur ekki að
kvarta undan því að foreldrar henn-
ar styðji hana ekki með ráðum og
dáð. “Sumarfríið hennar mömmu
þetta árið hefur að mestu farið í að
keyra mig til Reykjavíkur á æfingar
tvisvar á dag alla daga vikunnar. Og
innst inni veit ég að ef foreldrar
mínir hefðu ekki staðið jafh þétt við
bakið á mér og raun ber vitni væri
ég ekki á leiðinni til Syndey núna.
Ég fæ þeim aldrei fullþakkað."
Þessi sunddrottning af Skaganum
er á meðal yngstu Ólympíufaranna
þetta árið og mun yngri en flestar
þær sundkonur sem hún er að etja
kappi við erlendis. “Flestar eru
þessar stelpur á aldrinum 22-25 ára
þannig að ég á enn mörg ár í að ná
þeim aldri. Enda er það oft svo á
mótum erlendis að keppinautar
mínir reka upp stór augu þegar þeir
komast að því að ég er ekki nema 16
ára, verð reyndar 17 í nóvember.“
Draumur
íþróttamannsins
Nokkurt fjaðrafok varð í fjöl-
miðlum fyrr í sumar þegar ákveðið
var að svokölluð B-lágmörk yrðu
látín gilda fyrir sundmenn á leikana
í Syndney. Kolbrún Ýr fer inn með
þau lágmörk í farteskinu og náði
þeim reyndar í fjórum greinum;
100 og 200 m baksundi, sem hún
keppir í á leikunum, en einnig 50
og 100 m skriðsundi. Hún lætur
sér fjölmiðlafárið í léttu rúmi liggja,
segist staðráðin í að njóta þessarar
reynslu út í ystu æsar. “Að komast á
Ólympíuleika er auðvitað draumur
hvers íþróttamanns en að þeir skuli
haldnir hinum megin á hnettinum
gerir þetta enn meira spennandi.“
Kolbrún Ýr neitar því þó ekki að
hún hefði viljað fara með betri tíma
í fartesldnu. “Ég á Islandsmetin í
100 og 200 m baksundi en hef ekki
náð að ógna þeim síðasta árið.
Kannski hefur margumrætt lág-
mark fyrir leikana í Sydney verið
mér erfiður andlegur þröskuldur.
Staðreyndin er nefnilega sú að þetta
er í fyrsta skipti sem ég hef þurft að
berjast við eitthvert lágmark. Fram
til þessa hef ég synt mitt sund og
Silla, þjálfari minn, hefur svo kom-
ið af og til og bent mér á að ég væri
búin að tryggja mér sæti á Evrópu-
móti unglinga eða fullorðinna.
Þannig að ég hef ekki verið að
leggja neitt aukalega á mig til þess
að komast þangað. Nú gegnir allt
öðru máli.“
Forréttindi
Síðasta ár hefur að sögn Kol-
brúnar Ýrar að mörgu leyti verið
dálítdð erfitt. “Ég er að taka út
þroska og auðvitað er margt sem
glepur ef einbeitingin er ekki fyrir
hendi. Stundum langar mann tíl
þess að kasta öllu frá sér og sletta úr
klaufunum eins og jafhaldrarnir.
Það er bara eðlilegt. Sérstaklega
gerist þetta eins og síðustu mánuði
þegar maður nær ekki þeim árangri
sem stefnt er að. Þá safhast upp
pirringur sem mann langar til að
losa um. Ég man til dæmis að mig
langaði óskaplega á Þjóðhátíð í Eyj-
um í fyrra. Ég var hins vegar stödd
í Istanbúl í Tyrklandi og komst auð-
vitað ekki neitt. Arið þar á undan
var ég í Belgíu um verslunarmanna-
helgina. En þegar maður jafnar sig
á þessu er fáránlegt að svekkja sig á
svona hlutum. Þótt sundið sé erfitt
hefur það fært mér ýmis forréttindi
á borð við ferðalög um allar trissur
og það er eitthvað sem ekki verður
ffá manni tekið.“
Oft er það svo að íþróttamenn
láta þátttöku í Ólympíuleikum
verða sinn svanasöng í keppni.
Þannig er því t.d. farið með Guð-
rúnu Arnadóttur grindahlaupara
þetta árið en Kolbrún Ýr er hreint
ekki á því að leggja árar í bát eftír
leikana í Sydney. “Ég stefni ótrauð
á að keppa á Ólympíuleikunum
2004 en æda svo að sjá til með
framhaldið eftír það. Mig langar til
þess að mennta mig vel og ef mér
tekst að samræma erfiðar æfingar
og krefjandi nám sé ég ekkert því tíl
fyrirstöðu að halda sundinu áffam
en allar ákvarðanir um slíkt verða
að bíða betri tíma.“
Reynslunni ríkari
Undanfamar vikur hefur strnd-
landsfiðið nánast lagt nótt við dag við
æfingar og þótt brottför sé í fyrra-
máhð var æff tvisvar á dag fyrstu þrjá
daga vikunnar, svo og í morgun en
síðdegisæfingunni reyndar sleppt í
dag. Flogið er til London í fyrramál-
ið, þar sem 10 tíma stopp er áður en
förinni verður haldið áffam. Og að
sjálfsögðu verður æfing í London!
“Ég hef aldrei lagt eins hart að mér
við æfingar eins og undanfarið. Alag-
ið hefur verið slíkt að við höfum
mörg þurft að leita aðstoðar sjúkra-
þjálfara. Fyrstu vikuna eftir að við
komum út verður hfinu tekið ff emur
létt í lauginni enda tekur langan tíma
að ná áttum eftir svona langt flug og
mikinn tímamismun. Síðan hefjast
snerpu- og tækniæfingar. Ég á að
keppa 17. og 21. september og við
höldum ekld heim á leið fyrr en
komið er ffam í október. Ég kem til
með að missa 6 vikur úr skóla en helli
mér í nám og æfingar þegar ég kem
heim, reynslunni ríkari og vonandi
sáttari við árangur minn en ég hef
verið síðustu mánuðina,“ segir Kol-
brún Ýr Kristjánsdóttír.
-SSv.
r, sundþjálfari um Kolbrúnu Ýr:
Kolbrun Yr er einstaklega hæfi-
leikarikur sundmaður og hún hefur
alla burði til þess að komast í
ffemstu röð í heiminum. Það vill
gjaman gleymast í umræðunni að
bún cr ekki nema 16 ára ög á enn
gríðarlega míkið inni. F.n fyrst og
ffemst snýst þetta um hana sjálfa -
hvað hún vill sjálf,“ segir Sigurlín
Þorbergsdóttir, sem hefur verið
þjálfari Kolbrúnar Ýrar undanfarin
átta ár.
Sigurhn segir ekki nema eðlilegt
að Kolbrún hafi ekki náð að
höggva nærri metum sínum í 100
og 200 m baksundi undanfarið ár.
“Hún bættí íslandsmetið í 200 m
baksundi um 3 sekúndur á Smá-
þjóðaleikunum í fyrra. Það er ótrú-
legt stökk í ekki lengra sundi. Kol-
brún befur í raun vcrið að cinbcita
sér að 50 og 100 m skriðsundi síð-
asta árið. Hún hefur í raun
sárasjaldan synt baksundsgreinarn-
ar en líður nú fyrir það að aðrar í
Iandsliðinu eiga betri tíma í skrið-
sundinu en hún. Þess vegna keppir
hún í baksundinu í Syndney."
Sigurlín segist ekki hafa minnstu
áhyggjur af því þótt Kolbrún hafi
ekki teldð þeim ffamföram sem
hún ædaði sér fyrir Ólympíuleik-
ana. “Hún er enn að þroskast sem
unglingur og allir vita hversu erfið
þessi ár geta verið. Þegar hún hef-
ur tekið út fullan þroska snýst þetta
eingöngu um hvað hún vill sjálf.
Hæfileikar hennar eru einstakir og
hafi hún metnað tíl að ná enn
lengra - sem ég leyfi mér að segja
að hún búi yfir - mun ekkert stöðva
hana á þeirri braut. Flún hefttr allt
til að bera til að skipa sér í ffemstu
röð í heiminum," segir Sigurhn.
-SSv.