Skessuhorn - 28.09.2000, Qupperneq 2
2
FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2000
mrn i *
W W W. SKESSUHORN Borgarnesi: Borgarbraut 49 Sími: (Borgames og Akrones Akranesi: Suðurgötu 65,2. hæð Fax: (Borgornes) _ s 430 2200 430 2201
SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi: islensk upplýsingatækni 430 2200
Framkv.stjórí: Magnús Magnússon 894 8998
Ritstjóri og óbm: Gísli Einarsson 892 4098
Internetþjónusta: Bjarki Mór Karlsson 899 2298
Blaðamenn: Sigrún Kristjónsd., Akranesi 862 1310
Ingi Hans Jónss., Snæfellsn. 895 6811
Auglýsingar: Hjörtur Hjartarson 864 3228
Fjórmól: Sigurbjörg B. Ólofsdóttir 431 4222
Prófarkalestur: Ásthildur Magnúsdóttir og fleiri
Umbrot: Tölvert
Prentun: ísafoldarprentsmiðja hf
islensk@islensk.is
ritstjori@skessuhorn.is
internet@islensk.is
sigrun@skessuhorn.is
ingihans@skessuhorn.is
augl@skessuhorn.is
bokhald@skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla fimmtudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á
þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega.
Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 800 krónur með vsk. á mánuði. Verð í lausasölu er 250 kr.
430 2200
Afreks-
menn
Gísli Einarsson,
ritstjóri.
Allt frá því ég lá í vöggu fárra daga gamall og las íslendingasög-
umar í Guðna Jónssonar útgáfunni mér til dægrastyttingar hef ég
átt mér það markmið að verða afreksmaður í íþróttum. Upphaf-
lega stefhdi ég að því að ná Olympíulágmarki í að höggva mann
og annan en eftir að ég fregnaði að sú íþróttagrein nyti ekki sömu
virðingar í íþróttaheiminum og fyrram, neyddist ég til að reyna
fyrir mér á öðram sviðum. Eg þreyfaði víða fyrir mér í leitinni að
íþróttagrein sem hentaði mínum meðfæddu hæfileikum og lík-
amsbyggingu. Ég prófaði allt frá gönuhlaupi og ermasundi upp
í dvergakast og listdans á skautum.
Til að gera langa sögu stutta þá náði ég ekki einu sinni Lund-
arreykjadalslágmarkinu í neinni af þeim hundruðum greina sem
ég mátaði mig við. I öllum tilfellum strandaði ég á sama skerinu.
Allar þessar íþróttagreinar, sama hvursu fáránlegar þær voru í
eðli sínu, kröfðust þess að maður stundaði æfingar, legði á sig erf-
iði og strit og svitnaði jafhvel, ef markmiðið var að ná árangri.
Flestar þeirra gengu líka í berhögg við kenningar mínar um að öll
hreyfing sé óholl nema hún beinist í átt að ísskápnum eða bam-
um.
Það hvarflaði meira að segja að mér um tíma að flytja til Kúbu
þar sem reykingar eru viðurkennd íþróttagrein. Ég taldi að þar
hefði ég loksins fundið réttu leiðina upp á stjörnuhimininn.
Markmiðið var að sjálfsögðu að standa sperrtur á palli með
málmstykki um hálsinn og brosa í gegnum tárin á meðan lýður-
inn fagnaði í krampakenndum tryllingi.
Ég þráði það að verða innlenda frétt ársins á forsíðu Moggans
og fáni yrði dreginn að hún mér til heiðurs á hverri náströnd og
krummaskuði.
Það var í raun ekkert því til fyrirstöðu að ég gæti orðið affeks-
reykingamaður. Ég vissi að um leið og ég blési frá mér sigur-
reyknum yrði ég hetja fjöldans og nafh mitt skráð með gullnu
letri í reykingasögu þjóðarinnar eins og Samúel Öm hefði orðað
það í beinni lýsingu. Það hefði verið rætt um að byggja sérstakt
reykhús þar sem ég gæti æft mig nótt og dag óáreyttur og ekki
stæði á fjárstuðningi ffá bílaumboðum og kreditkortafyrirtækjum
Samt sem áður staldraði ég við. Hvað nú ef svo ólíklega vildi til
að ekki gengi allt að óskum? Hvað ef dagsformið væri ekki upp á
það besta þegar á hólminn væri komið? Ég væri hugsanlega með
strengi í öðru lunganu eða ég fengi hóstakast í miðri atrennu.
Hvað ef ég kæmi ekki heim hlaðinn medalíum. Ég yrði brandari
kaffitímans á öllum kaffistofum landsins, það yrði ekki minnst á
mig í Mogganum og jafnvel yrði rætt um að leggja reykingasam-
bandið rúður. ^
Eg hef því að vel ígrunduðu máli ákveðið að leggja Ólympíu-
drauminn til hliðar um stundarsakir að minnsta kosti. Ég tek
hinsvegar ofan fyrir öllum sem sýna þann kjark og þá þrautseygju
að stefha áffam að sínu markmiði og berjast í gegnum háðsglós-
umar og hrakspárnar alla leið á verðlaunapall. Jafnvel þótt
nauðsynleg hvatning og stuðningur komi í flestum tilfellum ekki
fyrr en effir á.
Gtsli Einarsson, uppgjafa afreksmadur.
Bylgja Baldursdóttir lögreglumaður og Ólafur K Ólafsson sýslumaður á léttu spjalli við
flutninga í nýja hiísið.
Betri löggæsla
Sýslumaður Snæfellinga, Olafur
K. Olafsson, hefur varpað fram
þeirri hugmynd hvort ekki sé rétt
að taka til skoðunar kostí þessi og
galla að taka upp sólarhringsvakt
hjá lögreglunni á Snæfellsnesi.
“Það er margt sem þarf að skoða í
þessu sambandi bæði þarf að skoða
vel hvernig best væri að fram-
kvæma þetta og svo blandast inn í
þetta fjölmargt annað svo sem
kjarasamningar lögreglumanna og
fleira”.
Mörgum þykir að þrengt hafi að
lögreglunni og hún orðið fyrir nið-
urskurði sem veiki mjög löggæsl-
una í landinu. Þessu svarar Olafur
svo að lögreglan hafi ekki farið verr
en aðrir út úr nauðsynlegum niður-
skurði og sé ekki verr haldin en
aðrir þættir í ríkisrekstrinum.
Embætti ríkislögreglustjóra hef-
ur nokkuð verið til umræðu undan-
farin misseri. Er það embætti á ein-
hvern hátt tilorðið á kostnað lög-
gæslunnar í landinu? “Nei síður en
svo; þeir fjármunir sem til þess
renna eru viðbót við fjárveitingar
til lögreglunnar. En með tilkomu
þess embættis hefur öll stjórnun
innan lögreglunnar verið gerð
markvissari og jafhffamt hefur um-
ræða um löggæslumál orðið mál-
efhalegri”.
1H
Engjaás
Engjaás hættir
Starfsemi Engjaáss í Borgarnesi
verður lögð niður frá og með næstu
mánaðamótum. Sex starfsmenn
hafa unnið hjá fyrirtækinu að und-
anförnu við áfengisátöppun, pizzu-
ffamleiðslu og grautarffamleiðslu.
Að sögn Kristmars J. Olafssonar
framkvæmdastjóra er vonast tíl að
hluti starfseminnar, a.m.k. verði á-
fram í Borgamesi en ljóst er að það
verður þá á nýjum stað þar sem
Reykjagarður hf hefur fest kaup á
núverandi húsnæði. “Grautardeild-
in hefur verið seld í burtu en það
eru allar líkur á að Olgerðin Egill
Skallagrímsson láti áfram tappa á-
fengi fyrir sig hér í Borgarnesi.
Einnig er unnið að því að halda
pizzuffamleiðslunni áffam í hérað-
inu en það skýrist væntanlega inn-
an skamms,” segir Kristmar.
GE
Sementsverksmiðjan
fær samkeppni
Danska fyrirtækið Aalborg
Portland hefur nú hafið innflutning
á sementi. Að sögn Gylfa Þórðar-
sonar, framkvæmdastjóra Sements-
verksmiðjunnar h£, er ekki tíma-
bært að segja til um hvaða áhrif það
hefur á Sementsverksmiðjuna. “-
Þetta verður bara að koma í ljós. Við
ráðum varla við það sem beðið er
um, ennþá að minnsta kosti. Þetta
er ffjáls innflutningur og það hefur
verið ffjáls innflumingur á sementi í
25-30 ár. Þeir hafa áður flutt inn í
pokum frá því í vor og haft einn
kaupanda að ég held og það hefur
ddtí haft nein teljandi áhrif á okkar
sölu. Hér hefur verið mikið um að
vera því þetta er metár,” segir GylfT,
en sementssalan fyrstu átta mánuði
ársins er sú þriðja mesta á sama
tímabili ffá því verksmiðjan hóf
ffamleiðslu árið 1958. Salan í ágúst
var 15.626 tonn eða 25% yfir áæd-
un og er það langmesta sala í ágúst-
mánuði síðan 1981. I september er
áætlað að salan verði 13.000 tonn. “-
Þetta verður bara allt saman að
koma í ljós og ég ætla ekki að fara að
halda uppi fjöri í fjölmiðlum!”
SÓK
Að jafhaði 1000
tonn á viku
Oli í Sandgerði AK 14 sem
undanfarið hefur stundað
kolmunaveiðar landaði 600 tonn-
um á Eskifirði á mánudag. Hefur
skipið landað tæpum 14.000
tonnum af kolmunna á þessu ári.
Að sögn Sturlaugs Haraldssonar,
aðstoðarútgerðarstjóra hjá HB
hf, hefur veiðin verið að jafhaði
900 til 1000 tonn á viku sem þyk-
ir ásættanlegt. Aflanum hefur að
mestu verið landað á Austfjarða-
höfnum og í Færeyjum.
K.K.
Ingimundur Ingnmmdarson
Ingimundur
á förum?
Samkvæmt heimildum Skessu-
horns eru allar líkur á að Ingi-
mundur Ingimundarson sem ný-
verið lét af störfum sem for-
stöðumaður Iþróttamiðstöðvar-
ínnar í Borgarnesi sé á förum til
Egilsstaða. Allar h'kur eru á að
Ingimundur verði ffamkvæmda-
stjóri 23. Landsmóts UMFI sem
haldíð er af UÍA á Egilsstöðum í
júní á næsta ári. Ingimundur hef-
ur mikla reynslu af starfi innan
UMFI, bæði sem þjálfari, stjóm-
armaður, framkvæmdastjóri
UMSB og þá var hann formaður
Landsmótsnefndar þegar mótið
var haldið í Borgarnesi árið
1997.
GE
Halldór á
málstofii í dag
Halldór Asgrímsson utanríkis-
ráðherra og formaður Fram-
sóknarflokksins verður gestur á
málstofu í Viðskiptaháskólanum
að Bifföstí dag fimmtudag. Um-
ræðuefhi Halldórs verður tengsl
Islands við Evrópusambandið.
Málstofan hefst kl. 15.30 og
stendur tíl kl. 17.00.
GE
HB hf byggir tank
undir löndunarvatn
Hafiiarstjóm á Akranesi hefur
samþykkt erindi Haraldar Böðv-
arssonar hf. um að reisa tank
undir löndunarvatn og jafhframt
að reisa brú yfir akstursbrautina
á bryggju milli aðalhafnargarðs-
ins og bátabryggjunnar. Hafhar-
stjórn setur þau skilyrði að akfær
leið framhjá löndunarvamstank-
inum verði a.m.k. 7 metrar á
breidd og bundin steypm slitlagi.
Fyrirtækinu er gert að ganga frá
þéssari breikkun áður en fram-
kvæmdir við tankinn hefjast.
Einnig er það sett sem skilyrði
að hæð undir lagnabrú verði ekki
minni en fjórir og hálfur metri.
K.K.