Skessuhorn - 28.09.2000, Síða 7
g2ESSIiH©BKI
FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2000
7
/
FuUkomasta ísverksmiðja á Islandi
Föstudaginn 22. september sl.
bauð Snæís tíl samkvæmis í húsnæði
Soffamasar Cecilssonar hf. Tilefnið
var formleg gangseming nýrrar ís-
verksmiðju sem félagið var að taka í
notkun. Aðeins liðu 10 mánuðir ffá
því fyrirtækið var stofnað þangað til
fyrsti ísinn var afgreiddur ffá fiillbú-
inni verksmiðju. Hluthafar í Snæís
em 29, aðallega fyrirtæki í sjávarút-
vegi og þjónustu auk hafnarinnar.
Framleiðandi verksmiðjunnar er
Finsam í Noregi. Afkastageta verk-
smiðjunnar er 60 tonn á sólarhring
og geymslurými er 2 x 100 tonn.
Verksmiðjan er alsjálvirk og er hægt
að stýra henni og fylgjast með ffam-
leiðslunni úr tölvu um símalínu hvað-
an sem er úr heiminum. Snæís hef-
ur gert þjónustusamning við Ragnar
og Asgeir um umsjón með verk-
smiðjunni og mun starfsmaður þeirra
Kjartan Sigurjónsson sjá um þann
þátt. A hans verksviði verður að
skrifa út ísúttektir viðskiptavinanna
mánaðarlega og hafa eftírlit með vél-
um og búnaði. Gert er ráð fyrir að
starfið sé að jafnaði um ein klukku-
stund á dag. Kostnaður við ísverk-
snúðjuna er um 80 miljónir sem er
sama tala og lagt var upp með. Af-
greiðsla á ís tíl sldpa fer þannig fram
að viðsldptavinurinn hefúr lykil að af-
greiðsluherbergi þar sem hann renn-
ir viðskiptakorti síhu í tölvu og slær
inn það magn sem hann hyggst nota.
Tveir dælubarkar eru staðsettir við
bryggjukantinn og er ísnum blásið
um þá beint um borð í skip. Einnig
er afgreiðslustútur við verksmiðjuna
fyrir þá sem dæla ísnum í kör eða á
bíla. Hagkvæmni verksmiðjunnar
felst í þessari tækni og því að hún nýt-
ir afgangsrafmagn á svokölluðum
rofnum taxta. Sigurður Sigurbergs-
son stjómarformaður segir þetta vera
fullkomnusm ísverksmiðju hérlendis.
Margir tóku til máls í fjölmennu hófi
fyrirtækisins og óskuðu hinu nýja fyr-
irtæki velfamaðar. Meðal gesta var
Guðmundur Runólfsson einn ffum-
herji byggðar og atvinnulífs á staðn-
um. Guðmundur, sem heldur upp á
áttræðisafmæli sitt þann 7. október,
lýsti þessum áfanga sem einum af
hinum stóm í sögu byggðarinnar.
IH
Utílegumenn á Vatnaheiði
Útilegumenn á Vatnaheiði slaka á yfir miðdegiskaffinu ótrtiflaóir af draugum odrum
en hnýsnum fréttamanni. Mynd IH
Fjarri mannabyggðum í nábýli
við álfa, drauga og jafhvel tröll hafa
nú verið reistar vinnubúðir skammt
ffá Baulárvallavatninu. Þar hafast
þeir við vegagerðamennirnir á
Vatnaheiðinni. Og þrátt fyrir sög-
ur um draugagang og jafhvel
skrímsli í vatninu sofa menn vært
sínar ffívaktir eða sitja á rabbi og
fást við ýmsa afþreyingu. Vega-
gerðarmennimir em á vegum Suð-
urverks sem er verktaki við bygg-
ingu vegar yfir fjalhð sem leysa á af
hólmi veginn um Kerlingarskarð.
Fréttamaður Skessuhorns heim-
sótti þessa útilegumenn á dögunum
og spurði fyrst um hvernig gengi.
“Verkið er nokktunveginn á áædun
þrátt fyrir að ýmislegt hefði komið
upp á. Hluti af því efni sem átti að
nota reyndist ófullnægjandi en það
kom lítið að sök því það er gott efni
til hér á svæðinu. Þetta hefur auk-
ið nokkuð aksmrinn sem hefur taf-
ið okkur lítíllega. Hinsvegar er
veðráttan búin að vera okkur erf-
ið”. sögðu þeir”. Við emm orðnir
vissir um að hér hefur Nói byggt
Örkina forðum daga því aðra eins
rigningu höfum við aldrei séð”.
En hverrúg er veðráttan miðað við
veðrið á Kerlingarskarði? Því
svarar heimamaður í hópnum sem
þekkir Kerlingarskarðið betur en
flestír aðrir. “Það er ekki sambæri-
legt hve veðrið er margfalt betra
hér en á skarðinu og það er alveg
sama hvort maður talar um sunn-
an- eða norðanátt. Hér er ekki
eins fjandi byljótt enda munar um
hundrað metmm á hæð þessara
vega og landslagið er allt öðmvísi”.
Þegar þeir vom spurðir um hvort á
Heiðinni væri verið að vinna
skemmdarverk á náttúrunrú svör-
uðu þeir einfaldlega. “Nei þessi
vegur verður fallegt mannvirki sem
veita mun fleirum aðgang að þessu
fallega svæði. Aður komu hingað
örfáir veiðimenn yfir sumartímann
og rjúpnaskyttur á vetumar. Ut-
sýni héðan er stórkosdegt og fyrir
náttúruunnendur opnast hér nýjar
víddir”. En er draugagangur hér?
“Við höfum verið að svipast um
eftír draugum en enga fúndið enn.
Við fómm um daginn í sæluhúsið
inn á Kerlingarskarði en þar var
ekkert nema fúkkalykt og
köngulær. Nú er kaffitímanum
lokið og þeir sem em á vakt þurfa
að fara að sinna vinnunni sinni.
Nokrir ffívaktarmenn verða áfram
og ráðskonan ekur í hlað til að und-
irbúa kvöldmatinn. Aður en menn
fara úr húsi er kastað ffam spum-
ingunni sem allir spyrja. Verður
umferð hleypt á veginn í vetur?
“Nei það hefúr aldrei staðið tíl”.
Fréttamaðurinn hysjar föggur sínar
og þakkar fyrir kaffið. Þá vitum
við það. IH
Sjálfbær innkaup
Snæfellsbær er eina sveita-
félagið þar sem bæjarstjórn
hefúr samþykkt að fara effir
Staðardagskrá 21. Sveitarfé-
lagið hefur nú fyrst allra
sveitarfélaga hrint í fram-
kvæmd markmiðum sínum
um sjálfbær innkaup í anda
Staðardagskrár 21. Kristinn
Jónasson bæjarstjóri Snæfells-
bæjar sendi í byrjun vikunnar
öllum viðskiptaaðilum sveit-
arfélagsins bréf þar sem segir
m.a.: „Eins og þér er ef tíl
vill kunnugt hefur Snæfells-
bær ákveðið að framfylgja
Staðardagskrá 21. Eitt af mark-
miðum okkar í Std.21 er:
Opinber innkaup eru gerð á grund-
velli grænnar innkaupastefnu sem
tekur mið af hugmyndafræði sjálf-
bærrar þróunar og Staðardagskrá 21.
Með þetta að leyðarljósi föram
við þess á leit við þig að þú leitist
við að hjálpa okkur við að ná þessu
markmiði og vonumst tíl þess að þú
hafir samband sem allra fyrst við
þann innkaupaaðila hjá Snæfellsbæ
sem þú verslar við.
Með fyrirfram þökk um skjót
viðbrögð og ósk um góða samvinnu
varðandi þetta mikilvæga markmið
okkar“.
Guðlaugur Bergmann, verkefnis-
stjóri Staðardagskrár 21, fagnar
þessu framtaki sveitarfélagsins og
segir: ,„\leð þessu bréfi er tening-
unum kastað. Opinber innkaup
bæjarfélagsins era víðtæk og
koma inn á fjölmarga vöru-
flokka. Hér er hafin vinna sem
getur tekið einhvern tíma en
hún er hafin og það skiptír
mestu máli. Það liggur ljóst
fyrir að þessi ákvörðun kemur
tíl með að hafa mjög víðtæk á-
hrif innan bæjarfélagsins en
ekki síður utan þess. Umræð-
an um græna innkaupastefnu
opinberra fyrirtækja hefur
verið í gangi í þó nokkurn
tíma en enginn hefur tekið
fullkomlega af skarið fyrr en
nú þegar Snæfellsbær gerir
það. Umhverfisráðneytið er búið
að gefa út ráðgefandi bækling um
opinber innkaup samkvæmt sjálf-
bærri þróun og er það merki um þá
öru þróun sem á sér stað í þessum
málum. Stjórnendur Snæfellsbæjar
geta verið stoltir af því að taka þetta
heillavænlega skref sem á eftír að
koma niðjum okkar svo sannarlega
til góða“.
IH
I hófinu varfólki sýnt hvemig hægt er að stjóma ogfylgjast með verksmiðjunni úr t'ólvu
um símalínu. Mynd 1H
t
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð,
vináttu og hlýjug vegna andláts og við útför elskulegs
eiginmanns, föður, tengdaföður og afa
JÓNS SIGVALDASONAR,
Ausu, Andakílshreppi
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Sjúkrahúss Akraness
fyrir alúðlega umönnun
Auður Pétursdóttir
Pétur Jónsson
Sigvaldi Jónsson
Unnsteinn Einar Jónsson Anna Lilja Sævarsdóttir
Steinunn Jónsdóttir Karl Sigurðsson
Ragnhildur Helga Jónsdóttir
og barnabörn
mmKiBr
Slatursalan
er hafin
hjá Sláturfélagi Vesturlands hf.
Brákarey, Borgarnesi.
Nýtt og ófrosið slátur
diikakjöt
allur innmatur og
svið í kílóatali.
Slátursalan er opin frá 8-17.
SLÁTURFÉLAG VESTURLANDS HF
Brákarey. Sími 430 5600
Auglýsing um starfsleyfi
Samkvæmt ákvæðum 24. gr. reglugerðar
nr. 785/1999 um starfsleyfi fyrir
atvinnurekstur sem getur haft í för með sér
mengun, er hér með lýst eftir
athugasemdum við tillögur að starfsleyfum
fyrir eftirfarandi fyrirtæki:
Sæblóm ehf. (kræklingarækt) í
Hofsstaðavogi, Helgafellssveit.
Sláturfélag Vesturlands hf. (sláturhús),
Brákarey, Borgarnesi.
Móar ehf. (alifuglarækt), Hurðarbaki,
Hvalfjarðarstrandarhreppi.
Starfsleyfistillögur ofangreindra fyrirtækja
liggja frammi á skrifstofum viðkomandi
sveitarfélaga eða hjá oddvitum, frá 2.
október til 31. október 2000.
Athugasemdum skal skila á skrifstofu
Heilbrigðiseftirlits Vesturlands að
Borgarbraut 13, 310 Borgarnes í seinasta
lagi 2. nóvember 2000, og skulu þær vera
skriflegar.
Heilbrigðisnefnd Vesturlands