Skessuhorn - 02.05.2003, Page 1
VIKUBLAÐ A VESTURLANDI - 17. tbl. 6. árg. 2. maí2003
Kr. 250 í lausasölu
Vignir G. Jónsson hf. fyrirtæki ársins
Eiríkur Vignisson tekur við viðurkenningu tilfyrirtækis ársins á Akranesi úr
hendi Gísla Gíslasonar bæjarstjóra.
kosningar
Skessuhorn er að þessu
sinni helgað komandi Al-
þingiskosningum að stórum
hluta. Af því tilefni er blað-
inu dreift endurgjaldslaust
til allra íbúa á Vesturlandi. I
blaðinu er m.a. að finna ít-
arleg viðtöl við frambjóð-
endur af öllum listunum sex
sem bjóða fram í Norðvest-
urkjördæmi að þessu sinni.
Einnig hápólitískar greinar
ofl.
Umhverfis-
vænn skóli
Lýsuhólsskóli á Snæfells-
nesi var fimmti skólinn til
að fá svokallaðan grænfána
afhentan en skólinn hlaut
þessa viðurkenningu á degi
umhverfisins síðastliðinn
föstudag. Þann dag var
slegið upp glæsilegri sýn-
ingu þar sem gat að líta sitt-
hvað sem tengdist umhverf-
isfræðslu vetrarins.
Sjá bls 2
Hrognavinnslufyrirtækið
Vignir G. Jónsson hf. var síðast-
liðinn föstudag útnefnt fýrir-
tæki ársins á Akranesi 2003 en
það var atvinnumálanefnd
Akraneskaupstaðar sem stóð
fýrir valinu. Samkvæmt niður-
stöðum dómnefndar þótti fýrir-
tækið uppíýlla öll skilyrði sem
sóst var eftir við val á fýrirtæki
ársins hvort sem litið var til af-
komu, mikilvægis fýrir bæjarfé-
lagið, starfsmannamála eða
annarra þátta.
Vignir G Jónsson hf. er fjöl-
skyldufyrirtæki sem stofnað var
árið 1970 og eru helstu ffam-
leiðsluvörur þess ýmsar afurðir
unnar úr hrognum. Fyrirtækið
hefur yfir að ráða einni full-
komnustu fullvinsluverksmiðju
hrogna í heiminum í dag. Ríf-
lega 20 manns starfa hjá fýrir-
tækinu.
„Við erum mjög stolt af þess-
ari viðurkenningu og áttum síst
von á slíku enda eru mörg fýrir-
tæki hér á Skaganum að gera á-
gæta hluti,“ sagði Eiríkur Vign-
isson framkvæmdastjóri Vignis
G. Jónssonar hf. í samtali við
Skessuhorn. Hann sagði fýrir-
tækið hafa stækkað mikið á síð-
ustu átta árum en að nú sé það
komð í mjög heppilega stærð og
ekki ætlunin að fara í frekari út-
þenslu.
Einnig var valið sprotafýrir-
tæki ársins og var það húsein-
ingaiýrirtækið Geca hf. sem
hlaut viðurkenninguna. Geca
hf. var fjögurra ára fýrirtæki
sem stofnað er í kjölfar mikils
þróunarstarfs um nýja gerð
húseininga. Unnið er með í-
blöndun þriggja efna sem ekki
hafa verið notuð saman áður og
er því um nýjung á heimsmark-
aði að ræða. Samblöndun sem-
ents, trjákurls og koltvísýrings
eftir ákveðnum leiðum og ein-
ingaframleiðsla er undirstaða
starfseminnar. GE
Hestamenn úr hestamannafélaginu Dreyra á Akranesi fdgnuöu sumri síöastliöinn laugardag meö hópreið frá félagssvæðinu
á Æðarodda að Dvalarheimilinu H'ófða þar sem þeirferðu heimilinu sumargj'óf Að því loknu var fákunum bleypt á
Langasandi. Mynd: KK