Skessuhorn - 02.05.2003, Qupperneq 12
12
FÖSTUDAGUR 2. MAI 2003 SSESSUHöBE
SKESSUHORN - KOSNINGAR 2001 - SKESSUHORN - KOSNINGAR im - SKESSUHORN - KOSNINGAR 2001 - SKESSUHORN-KOSNINGAR 2001
Rætt við frambjóðendur:
Hroki stjómarflokkanna liefiir einkennt kosningabaráttuna
segir Steinunn Kristín Pétursdóttir frambjóðandi Frjálslynda flokksins
lítið sem ekkert. Með því að
færa fólkinu aftur réttinn til að
sækja sjóinn og hafa af því lífs-
viðurværi sitt teljum við að reisa
megi við byggð og búsetu í sjáv-
arplássunum. Hjól atvinnulífs-
ins munu fara að snúast aftur
þar sem einnig munu skapast
störf í öllum þeim þjónustu-
greinum sem tengdar eru sjáv-
arútvegi. Því segjum við að bar-
áttan fyrir byggðirnar sé okkar
helsta baráttumál; barátta fyrir
byggðunum í heild.“
Bætt umferðaröryggi
Þegar vikið er að Vesturlandi
sérstaklega segir Steinunn að
umferðaröryggi sé þar ofarlega
á blaði. „Við viljum sérstaklega
horfa til þess að bæta umferðar-
öryggi á þjóðvegum landsins,
t.a.m. með því að einbreiðar
brýr verði aflagðar og öðrum
slysagildrum verði markvisst
fækkað.
Við leggjum áherslu á að
tryggja þurfi óhindraðan að-
gang allra að menntun, án tillits
til efnahags og búsetu. Við
fögnum því að framhaldsskóli
verði reistur á Snæfellsnesi og
teljum að með því sé stórt fram-
faraskref stigið í þá átt að
tryggja menntun í heimabyggð.
Við viljum einnig skoða þann
möguleika að koma á styttri
starfs- og iðnmenntabrautum í
framhaldsskólum. Brottfall
ungra manna úr námi er veru-
legt áhyggjuefni, en hugsanlega
væri hægt að koma til móts við
þá á þennan hátt.“ Þá nefnir
Steinunn einnig slæmt atvinnu-
ástand á Vesturlandi sem sé
verulegt áhyggjuefni. „Vð telj-
um að með því að afnema
kvótabraskið og færa veiðirétt-
inn aftur til byggðanna muni at-
vinnuástandið batna til muna,
og eignir standa undir veði að
nýju.“
Stjómin ffá
Aðspurð um ákjósanlegt rík-
isstjórnarmynstur segir Steinn-
unn að markmið Frjálslynda
flokksins séu skýr hvað það
varði. „Vð viljum koma núver-
andi ríkisstjórn frá völdum. Vð
sjáum okkur ekki fært að starfa í
stjórn með flokkum sem vilja
rígbinda kvótakerfið og festa
það enn betur í sessi. Okkur
þykir ekki heldur gæfulegt að
ganga til samstarfs með fólki
sem hefur gert sérstaka ályktun
um það að sjúklingar skuli sjálf-
ir standa straum af kostnaði við
sjúkrahúsdvöl sína. Takist
stjórnarandstöðu að fella þessa
ríkisstjórn teljum við rétt að
hún taki höndum saman við að
mynda velferðarstjórn.“
Þegar Steinunn er spurð um
hvort hún sjái fyrir sér ráðherra
úr kjördæminu í slíkri stjórn
segist hún vilja sjá formann
flokksins, Guðjón A Kristjáns-
son í stól sjávarútvegsráðherra á
komandi kjörtímabili.
Hroki
Steinunn Kristín segir hroka
og yfirgangssemi stjórnarflokk-
anna gagnvart kjósendum og
stjórnarandstöðuflokkum öðru
fremur hafa einkennt yfirstand-
andi kosningabaráttu. „Það
sýndi sig meðal annars ágætlega
í prófkjöri sjálfstæðismanna í
þessu kjördæmi í vetur. Þá hafa
stjórnarflokkarnir haldið á lofti
hræðsluáróðri um sjávarútvegs-
stefnu okkar og hugsanlegt
stjórnarsamstarf vinstri flokk-
anna. Þessi vinnubrögð hafa því
miður sett svip sinn á kosninga-
baráttuna og dregið athygli
kjósenda frá því sem máli skipt-
ir,“ segir Steinunn Kristín Pét-
ursdóttir að lokum.
Steinunn Kristín Pétursdóttir
á Akranesi skipar þriðja sætið á
lista Frjálslynda flokksins í
Norðvesturkjördæmi fyrir
komandi alþingiskosningar.
Steinunn er 29 ára gömul fædd
á Akranesi og ný flutt þangað
aftur. Hún er gift Haraldi E
Sigurðssyni. Steinunn á tvö
börn af fyrra hjónabandi en
Haraldur þrjú.
Steinunn Kristín er stúdent af
máladeild Menntaskólans að
Laugarvatni. Hún hefur starfað
hjá Tollstjóranum í Reykjavík
og Sýslumanninum í Kópavogi
en frá því í vetur hefur hún
sinnt starfi fiilltrúa á skrifstofu
Svæðisvinnumiðlunar Vestur-
lands. Pólitískur ferill Stein-
unnar hófst í kjölfar stofnunar
Frjálslynda flokksins vorið
1999. Hún átti sæti á lista
flokksins í Reykjavík við Al-
þingiskosningarnar sama ár og
hefur síðan, að eigin sögn, tekið
æ virkari þátt í starfi flokksins.
Samfélagslcg ábyrgð
Um helstu áherslumál sín í
stjórnmálum segir Steinunn
Kristín: „Eg tel brýnt að staðið
sé við bakið á barnafjölskyldum
og þeim sem treysta þurfa á
bótakerfi almannatrygginga
með því að allar lagfæringar í
skattakerfinu gagnist lág- og
meðaltekju fólki best. Við tök-
um heilshugar undir tillögur
þær sem ASI lagði frarn á dög-
unum til úrbóta í samfélaginu.
Efla þarf samfélagsábyrgðina og
tryggja öllum þegnurn landsins
sama rétt til heilbrigðisþjón-
ustu, óháð búsetu og efnahag.
Einnig vil ég nefna að ég legg
mikla áherslu á öflugt forvarn-
ar- og hjálparstarf í baráttunni
gegn fíkniefnum með markvissu
samstarfi við t.d. heimili, skóla,
kirkju, lögreglu og félagasam-
tök. I þeirri baráttu má ekki
gleymast að aðstandendur þurfa
einnig stuðning, fræðslu og gott
aðgengi að úrræðum í heil-
brigðis- og félagslega kerfinu.“
Kvótann burt
Steinunn segir helsta baráttu-
mál Frjálslynda flokksins vera
afnám kvótakerfisins í sjávarút-
vegi. „Það er lífsspursmál fyrir
sjávarbyggðirnar landið um
kring. Þessum byggðum er nú
að blæða út þar sem atvinnu-
réttur fólksins er að miklu leyti
farinn úr byggðinni og atvinnu-
öryggi þeirra sem eftir sitja er
Talað af reynslu:
Bjartsýnin og baráttugleðin
með ólíkindum
segir Pétnr Bjamason frambjóðandi Frjdlslynda flokksins
Pétur Bjarnason frá Bíldudal
skipar fjórða sætið á lista Frjáls-
lynda flokksins í Norðvestur-
kjördæmi. Hann hefur verið
lengi í pólitík og var m.a. vara-
þingmaður Framsóknarflokks-
ins í Vestfjarðakjördæmi á ár-
unum 1987 - 1995. Hann fór
síðan í sérframboð fyrir alþing-
iskosningarnar árið 1995 en
náði ekki kjöri. Pétur segist
hafa lofað sjálfum sér að hætta
afskiptum af stjórnmálum eftir
kosningarnar 1995. Hann
kveðst hinsvegar hafa þurft að koma manni inn
á þing og því gengið til liðs við Guðjón Arnar
Kristinsson og Frjálslynda flokkinn.
„Það sem helst skilur kosningabaráttuna nú
frá því sem við þekjum áður er að umhverfið er
allt annað með stækkun kjördæmanna," segir
Pétur. „Það eru fleiri sjónarmið sem þarf að taka
tillit til og kynna sér. Ef við berum saman kosn-
ingabaráttu Frjálslynda flokksins nú og síðast þá
er breytingin einnig mikil. Fyrir kosningarnar
1999 vorum við að stíga okkar
fyrstu skref en núna erum við
að byggja á þeirri reynslu sem
við höfum þaðan. Það sem hef-
ur aftur á móti lítið breyst hjá
okkur er að við erum févana afl
í þessum fjársterka kosninga-
heimi en peningarnir setja svip
sinn á kosningarnar nú sem
aldrei fyrr. Það sem stendur
hinsvegar upp úr í mínum huga
er ótrúleg og óvenjuleg sam-
staða þeirra sem standa að
Frjálslynda flokkunum. Bjart-
sýnin og baráttugleðin er með ólíkindum og því
er ég afskaplega sáttur við hvernig þetta hefur
þróast."
Þegar Pétur var beðinn um að spá um árang-
ur síns flokks sagði hann markmiðið hafa verið
að tvöfalda fylgið og að margt benti til að það
væri raunhæft markmið. „Gangi það eftir erum
við á þriðja manninum í þessu kjördæmi. Annað
er það óvíst að þú færð mig ekki til að reyna að
spá nánar í það,“ segir Pétur.
SKESSUHOIIN - KOSMGAR 2003 - SmSUHOM - KOSMGM 2001 - SmSUHOM - KOSMGAR 2003 - SmSUHOM - KOSMGAS 2003