Skessuhorn - 02.05.2003, Blaðsíða 22
22
FOSTUDAGUR 2. MAI 2003
aniisaunu^
SKESSUHOW ■ KOSWGÆ 200) - SKESSVHOM ■ KOSNINGAR 200) ■ SESSUHOKN - KOSMGAR 200) ■ SKESSVHORN ■ KOSNINGAR 200)
Rætt við frambjóðendur:
Kem ekki með gamlan farangur á bakinu
segir Hildur Helga Sigurðardóttir, sem skipar
efsta sæti Nýs afls í Norðvesturkjördæmi
Hildur Helga Sigurðardóttir
leiðir lista Nýs afls í Norðvest-
urkjördæmi fýrir komandi Al-
þingiskosningar. Hildur er 47
ára gömul, fráskilin og á einn
son. Hún er stúdent frá
Menntaskólanum við Hamra-
hlíð. Hildur las sagnfræði og
stjórnmálaheimspeki við
Cambridge háskóla, Englandi,
1985-1988 og menningarsögu
við Middlesex háskóla í Lund-
únum, 1988-1989. Frá árinu
1980 hefur hún að mestu leyti
fengist við blaða- og frétta-
mennsku ýmist með námi eða
sem aðalstarf, meðal annars á
Morgunblaðinu og RUV
„Eg hef aldrei verið flokks-
bundinn í stjórnmálaflokki
áður og er því ekki með neinn
slíkan „farangur“ á bakinu,“
segir Hildur um pólitískan fer-
il sinn. „Eg hef hins vegar
fýlgst vel með stjórnmálum frá
mörgum hliðum á löngum ferli
í frétta- og blaðamennsku.“
Siðlaust vaxtaokur
Aðspurð um sín helstu
áherslumál í stjórnmálum segir
Hidlur Helga að breytingar á
kvótakerfi og skattlagningu
borgaranna séu í sínum huga
meðal mikilvægustu málanna.
„Breytingar á kvóta og skatt-
lagningu í átt til meiri skil-
virkni, sanngirni og réttlætis
hljóta að hafa forgang og vera
það, sem önnur mál byggjast á.
Ef vel er hugað að þessum
undirstöðumálum gefst svig-
rúm til að skapa fólkinu í land-
inu mannlegra og jafnframt
hagkvæmara umhverfi, jafnt í
vinnu sem einkalífi. Megin-
þorri fólks þarf að vinna of
lengi fýrir of lágum launum í
þessu landi í dag og hækki
launin eitthvað, er klipið af
þeim jafnóðum í skatta."
Hildur Helga kveðst alls ekki
á móti því að leggja sitt til sam-
neyslunnar og sameiginlegra
hagsmunamála þjóðarinnar, en
þegar skattlagning á meðal-
tekjur og þar fyrir neðan sé slík
sem hún er í dag sé hreinlega
verið að halda venjulegu vinn-
andi fólki ofan í hjólfari sem
það kemst ekki upp úr, þrátt
fyrir dugnað og ráðdeildar-
semi. „Þetta á líka við um aldr-
aða og öryrkja.
Vaxtaokrið sem hér við-
gengst, finnst mér hreinlega
siðlaust. Eg vil sjá byggð í
landinu haldast sem fjöl-
breyttasta, til sjávar og sveita
og ekki síður í öflugum þétt-
býliskjörnum utan höfuðborg-
arsvæðisins. Mig langar ekki
að horfa upp á fólk þurfa að
senda börnin sín ung um lang-
an veg frá sér í skóla og mig
langar að sjá verkmenntun og
ýmiss konar sérmenntun
blómstra utan höfuðborgar-
svæðisins. Eg vil nýsköpun í
atvinnulífi og að t.d. verði gert
stórátak í vitrænni útfærslu á
hugmyndum í ferðamennsku,
hugsanlega með einhvers kon-
ar áhættusjóði, eins og gert var
í iðnaðinum á sínum tíma, en
stórfé ekki kastað til tvist og
bast í alls kyns dellu á því sviði,
eins og ég hef séð fjölda dæma
um.“
Gróft launamisrétti
Hildur Helga segir jafnrétti
kynjanna ennfremur vera sér
hugleikið. „Eg er þeirrar skoð-
unar að jafnrétti kynjanna sé
nokkuð sem þarf að standa
vörð um, en sé ekki sjálfgefið
og ég veit að allt of margar ís-
lenskar konur líða undir tvö-
földu vinnuálagi, enda í mjög
auknum mæli farnar að andast
úr sömu streitutengdu sjúk-
dómunum og karlarnir. Hér
viðgengst ennþá gróft launa-
misrétti og oft er hlaðið enda-
Iaust á konur í nafni „jafnrétt-
is“, jafnt á heimilum sem á
vinnustöðum. „Þetta vilduð
þið“ er síðan sagt. Eg held
ekki. Eg vil vernda náttúruna,
en ekki síður fólk.“
Nýjar áherslur
Um helstu baráttumál Nýs
afls fýrir komandi kosningar
segir Hildur Helga: „Nýtt afl
beitir sér fýrir nýjum áherslum
og breyttri forgangsröðun í ís-
lensku samfélagi, lýsir andúð á
forréttindum útvalinna og
undirstrikar að stjórnmála-
menn eru þjónar heildarinnar,
en ekki gæsluliðar sérhags-
muna. Við erum með afar skýr
og einföld markmið í skatta-
málum, t.d. hækkun skattleys-
ismarka í 100.000, enda annað
út í hött, þó að það viðgangist
nú.
I kvótamálinu viljurn við að
þjóðin nái aftur yfirráðum yfir
auðlindinni í hafinu, en að það
gerist hægum og öruggum
skrefum, frekar en með
kúvendingu á kerfi, sem nú er
búið að vera við lýði í á þriðja
áratug. Það má kannski segja
að markaðsvæðing og hægfara
fyrningarleið séu lykilorðin í
stefnu Nýs afls í kvótamálin."
Hvalfj arðargöngin
Þegar Hildur Helga er spurð
um málefni Vesturlands sér-
staklega segir hún erfitt að
setja allt svæðið undir einn
hatt. „Mér sýnis að framtíð
Hvalfjarðarganganna hljóti að
skipta gríðarlegu máli, þ.e.
hvort svigrúm fæst til að fella
niður gjaldið í náinni framtíð.
Það hlýtur að hafa mikila þýð-
ingu fýrir þróun atvinnulífs og
mannlífs á Vesturlandi og
þyrfti að komast á hreint sem
allra fýrst. Atvinnulífið þyrfti
að vera fjölbreyttara, ekki síst
sýnist mér vanta fleiri tækifæri
fýrir konur. Þá er ég einnig
fýlgjandi sveigjanlegri vinnu-
tíma, fýrir bæði kynin. Hugs-
anleg sameining sveitarfélaga
er auðvitað mál sem þarf að
grandskoða og ekki má gleyma
landbúnaðinum á þessu blóm-
lega svæði.
Sú menntun, sem fólk getur
boðið börnum sínum í heima-
högun, hlýtur að skipta miklu
máli fýrir lífsgæðin. Þar stend-
ur Vesturland að mörgu leyti
framarlega með mörg glæst
menntasetur, en meira mætti
koma til, eins og ég sagði hér
að ofan. Þarna kemur líka
spurningin um gjaldfrjáls göng
auðvitað líka til, því slíkt
myndi gera þeim sem það
vildu, auðveldara að sækja
vinnu eða skóla til Reykjavíkur.
Fyrst og fremst á þó að stuðla
að uppbyggingu á Vestur-
landi,“ segir Hildur Helga.
Tekið vel
Hildur Helga segir upp-
skriftina að æskilegri ríkis-
stjórn vera einfalda: „Það er
hver sú stjórn sem hvorki ein-
kennist af valdþreytu þeirra,
sem hafa setið of lengi, né
valdgræðgi þeirra, sem hafa
beðið of lengi.“ Hún segir
kosningabaráttuna hingað til
hafa verið hraða, snarpa og
skemmtilega. „Eg hef því mið-
ur enn sem komið er ekki
komist nógu mikið um kjör-
dæmið og er að gera á ör-
skömmum tíma það sem hinir
flokkarnir hafa haft heilan vet-
ur til að undirbyggja. Það hef-
ur þó þann kost að ég kem
ferskari inn í slaginn, fólk virð-
ist kunna að meta það og tekur
okkur betur en maður hefði
þorað að vona. Einstaka póli-
tískir aðilar hafa verið svolítið
fúlir, látið eins og það sé ótrú-
leg ósvífni að koma með þetta
nýja framboð, þar sem þeir eru
fýrir á fleti, en ég hef ekki orð-
ið vör við annað en að kjósend-
ur kunni vel að meta að fá Nýtt
afl til leiks,“ segir Hildur
Helga Sigurðardóttir að lok-
urn.
SKESSUHOM ■ KOSNINGAR2001 ■ SKESSUHOM ■ KOSNINGAR 20Ú1 ■ SKESSUHOM ■ KOSNINGAR 2001 - SKESSUHOM - KOSNINGAR 2001