Skessuhorn - 02.05.2003, Síða 27
Kjtttððunui..
FOSTUDAGUR 2. MAI 2003
27
e/ifú/i/i-^
Ognarstaða bændaí
r
I yfirstandandi kosninga-
baráttu hafa helstu mál Norð-
vesturkjördæmis verið í um-
ræðunni hvar sem undirritað-
ur hefur verið í kjördæminu;
samgöngumál, atvinnumál,
heilbrigðis- og skólamál, allt
hefur verið til umfjöllunar.
Eyðibyggðastefnunni sem
íylgir stjórn fiskveiða af hálfu
stjórnarflokkanna er hvar-
vetna hafnað. Samfylkingin
boðar breytingu á fiskveiði-
stjórnunarkerfinu sem gengur
upp. Veiðar og vinnsla munu
halda áfram í fullri reisn, ný-
liðun verður í greininni og
eignarhaldið flyst frá einstak-
lingum til þjóðarinnar. Þjóðin
þarf að vita það að einstak-
lingar hafa flutt 40 milljarða
út úr atvinnugreininni á eigin
reikninga erlendis. Þetta
verður að stöðva! Við munum
setja allt að 50.000 þorskígildi
strax á markað. Það mun gjör-
breyta öllum skilyrðum fyrir
veiðar og vinnslu til hins
betra.
Fækkun fólks af völdum
kvótakerfanna í fiskveiðum og
landbúnaði er orðin svo aug-
ljós að henni verður ekki á
móti mælt. 1.700 manna
fækkun á Vestfjörðum sl. 10 ár
segir sögu sem staðfestir þessi
orð.
Verst er ástandið nú hjá
bændum, þeir geta hvorki
haldið áfram né hætt. Afurða-
stöðvarnar og sláturhúsin eru
í vandræðum með sölu á af-
urðunum og eiga í örðugleik-
um með að fá lánafyrir-
greiðslu til að gera upp við
bændur vegna innleggs þeirra.
Sauðfjárbændur eru undir
fátæktarmörkum með sín
laun. Að sögn bændaforyst-
unnar eru þau undir 68 þús-
undum á mánuði að meðaltali.
Undirritaður hitti bændur
(löndunargengi við höfnina)
að máli á Skagaströnd nýlega.
Þeir sögðu aðspurðir að
stjórnvöld og bændaforystan á
Sögu hefði ekkert gert fyrir þá
s.l. 8 ár - það er ekki að furða
að bændur styðji að meiri-
hluta til íhald og framsókn í
kosningum.
Hvað vill
Samfylkingin í
landbúnaðarmálum?
Þessi spurning var sett fram
við undirritaðan við sama
tækifæri og reyndar hefur hún
verið borin upp í samræðum
við bændur um allt kjördæmið.
Mín svör og Samfylkingar-
innar eru einföld:
1) Við viljum halda öllum
stuðningi við greinina inni
í henni.
2) Við viljum breyta bein-
greiðslum og öðrum
stuðningi í búsetustuðn-
ing, og til atvinnusköpunar
í sveitum og dreifbýli.
Gtsli S. Einarsson
3) Við viljum gera þeim
bændum það kleift sem
það velja, að vera vörslu-
menn lands með búsetu á
sínum býlum og að þeir
geti stundað atvinnu utan
jarðarinnar eða sinnt því á
sínum jörðum sem þeir
velja. Hvort sem um er að
ræða skógar- eða fiskirækt,
sauðfjár-, kúa-, hrossa- eða
annan búskap.
4) Við viljum minnka alla þá
yfirstjórn og kerfi sem
bændum er gert að halda
úti með greiðslu hvers
kyns gjalda sem þeir verða
að skila, án þess að hafa til
þess tekjur.
5) Við viljum endurskipulagn-
ingu landbúnaðar á Islandi
með hagsmuni greinarinn-
ar að leiðarljósi.
Lokaorð
Samfýlkingin er orðin vel
skipulagður flokkur, reiðubú-
inn til að taka við landsmálum
af ábyrgð og festu. Við setjum
Ingibjörgu Sólrúnu Gísla-
dóttur sem okkar forsætisráð-
herraefni.
Eg undirritaður tel hana
hæfasta leiðtoga fýrir þjóðina
og mun styðja hana af alefli.
Ég skora á kjósendur í
Norðvesturkjördæmi að
styðja Samfýlkinguna núna í
komandi kosningum, hvar í
flokki sem þeir standa. Sam-
fýlkingin verður að vera í far-
arbroddi ef breytingar eiga að
verða til hins betra í íslensku
samfélagi. Setjið x við S þegar
þið kjósið.
Sumar- og kosningakveðja!
Gísli S. Einarsson.
Og Voda-
fone á
Akranesi
Unnið er að víðtækum
breytingum og eflingu á far-
símaneti Og Vodafone á
Suðunesjum og Akranesi.
Félagið rak áður tvö farsíma-
net á þessum svæðum og hafa
þau nú verið sameinuð. Und-
anfarna mánuði hefur verið
unnið að ýmsum breytingum
á farsímanetinu til að gera
það betur í stakk búið að taka
við aukinni umferð. Sam-
hliða því hafa verið settir upp
tveir nýir sendar á Suðunesj-
um. Annar er staðsettur í
Vogum en hinn í miðbæ
Reykjanesbæjar.
A heildina litið efla þessar
breytingar þá þjónustu sem
Og Vodafone veitir við-
skiptavinum sínum á Suður-
nesjum og Akranesi og bætir
talssamband til muna.
Gagnaflutningsþjónusta um
farsíma eða svo kölluð GPRS
þjónusta verður hins vegar
takmörkuð um sinn hjá þeim
sem voru með GSM þjón-
ustu hjá Islandssíma. Unnið
er að nánari útfærslu á breyt-
ingum á kerfinu til að koma
þeirri þjónustu á fýrir alla
viðskiptavini Og Vodafone.
Búast má við því að því verki
Ijúki innan skamms.
(Fréttatilkynning)
INGI TRYGG VASON hdl.
lögg. fasteigna- og skipasali
NÝTTÁ SÖLUSKRÁ
Borgarbraut 61
310 Borgarites
Sími: 437-1700
Fax: 437-1017
ARNARKLETTUR 10, BORGARN.
Raðhús 85.4 ferm. Forstofa
dúklögð, gangur, hol og
stofa dúklagt. Eldhús
dúklagt, hvít viðarinnr.
Baðherb. dúklagt, kerlaug/
sturta. Geymsla og
þvottahús dúklagt. Tvö
HÖFÐAHOLT 1, BORGARNESI
Einbýlishús 141,3 ferm. og
bílskúr 52,2 ferm. Forstofa
tlísalögð, skápur. Stofa
teppalögð, borðstofa
flísalögð. Þrjú herb.
dúklögð, skápar í öllum.
Gangur og sjónvarpsherb.
parketlagt. Eldhús dúklagt, viðarinnr. Gestasnyrting með
sturtu en baðberb. óstandsett. Þvottahús og geymsla. Sólpallur.
Verð: 13.800.000
HRAFNAKLETTUR 6, BORGARN.
íbúð á 1. hæð, 81 ferm. Hol
dúklagt. Eldhús dúklagt,
eldri viðarinnr. Baðherb.
dúklagt, kerlaug/sturta.
Stofa teppalögð. Tvö herb.
dúklögð, skápar í báðum.
Sérgeymsla og sameiginl. í
kjallara. Sameiginl. þvottahús í kjallara.
Verð: 6.900.000
herb. dúklögð, skápar
Verð: 8.800.000
í öðru.
HAMRAVIK 30, BORGARNESI
Parhús ásamt bílskúr. íbúð
113,5 ferm. og bílskúr 29,7
ferm. Forstofa flísalögð,
skápar. Stofa og borðstofa
parketlagðar. Eldhús
parketlagt, viðarinnr.
Baðherb. allt flísalagt, ljós
viðarinnr., sturta. Þrjú herb. parketlögð, skápar í tveimur.
Þvottahús flísalagt, hillur. Geymsluloft í bflskúr. Sólpallur
og góð lóð.
Verð: 15.900.000
FÁLKAKLETTUR 15, BORGARN.
Einstaklega vel byggt og
bjart einbýlishús 144,7 ferm.
og 47,8 ferm. bílskúr.
Forstofa dúklögð, hol og
gangur parketlagt.
Helmingur stofu
parketlagður en helmingur
teppalagður, arinn. Þrjú herb. dúklögð, skápar í tveimur.
Baðherb. allt flísalagt, Ijós viðarinnr., sturta og kerlaug.
Eldhús parketlagt, ljós nýyfirfarin viðarinnr með nýjum
eldunartækjum. Gestasnyrting máluð og þvottahús. Öll loft
í húsinu eru klædd beyki nema í þvottahúsi. Góð eign í
sérflokki.
Verð: 18.200.000
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu