Skessuhorn - 30.09.2004, Blaðsíða 8
8
FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2004
jitsjinu...
Lagnir frá vatnsbóli við Akrafjall endumýjaðar
Þó svo í mörg horn sé að líta hjá Gissuri Þór Ágústssyni, svæðis-
stjóra OR, vegna framkæmdanna gefst þó tími til að taka aðeins f
nefið hjá honum Dóra.
I sumar hefur Orkuveita
Reykjavíkur staðið fyrir um-
fangsmiklum endurbótum á
vatnsveitukerfi Akurnesinga
með endumýjun lagna ffá vams-
bólinu við Akrafjall. Lögnin sem
verið er að endumýja núna er
12“ asbestslögn sem lögð var
árið 1954 en nýja lögnin er sam-
ansett úr 400 mm plaströrum,
enda plast það efiú sem tekið
hefur við af asbestinu og er alltaf
notað þegar bót og endurnýjun á
kerfúm af þessu tagi á sér stað.
Nýja lögnin er um þriggja kíló-
metra löng, nær frá Akrafjalli
niður á Garðagrund og segir
Gissur Þór Agústsson, svæðis-
stjóri OR á Akranesi, að löngu
hafi verið orðið tímabært að ráð-
ast í framkvæmdina. „Samsem-
ing gömlu lagnarinnar var orð-
inn léleg og bilanatíðni allt of há.
Auk þess var veitan að tapa vatni
þar sem það lak út um gloppur
og glufur í rörunum og það er
eitthvað sem við megum helst
ekki við. Allra síst í þurrkatíð
einsog var í sumar.“
Umfangsmilar
endurbætur
„Síðusm fjögur árin hefur
mikið verið unnið í því að bæta
vatnsveituna, enda hefúr notk-
unin aukist til muna. Arið 2000
hófst mikil uppbygging, þá lét-
um við þrýstigreina vamsveim-
kerfið og dreifikerfið var styrkt.
Heimæðalagnir á neðri-Skaga
vora endurbættar í þessu átaki
og ný 12“ plasdögn frá mæla-
brunni í Merkigerði bætt inn í
kerfið. Með þessum hætti hefur
okkur tekist að auka þrýstinginn
úr 2,1 - 2,2 kg á sekúndu í 3,7 -
4,5 kg á sekúndu og magnið sem
við eram að missa úr úr rörun-
um hefur minnkað úr 30 kg í 10
kg sem er vel ásættanlegt," segir
Gissur.
Vatn sjóleiðina frá
Reykjavík
Þó framkvæmdin sé vissulega
kosmaðarsöm og flókin segir
Gissur það hafi verið orðið að-
kallandi að hefjast handa því
þörfin á neysluvatni á Akranesi
sé sífellt að aukast. „Þegar verið
var að taka ákvörðun um þessa
ffamkvæmd fengum við verk-
ffæðistofuna Hönnun ehf. til
þess að kanna fyrir okkur ýmsa
möguleika í stöðunni,“ segir
Gissur. „Niðurstaðan varð sú að
best yrði að sækja vatn sjóleiðina
til Reykjavíkur þar sem leiðin er
ekki löng, um 17 kílómetrar, og
dýpið mest tun 3,5 metrar. I
Reykjavík er nóg af góðu vatni
til að þjóna íbúum á Akranesi,
hins vegar væri nauðsynlegt að
hafa vamsból hér ef sú lögn
myndi bila og aðstæður væra
þannig að ekki væri unnt að
komast strax í viðgerð. Þess
vegna var þessi leið farin nú og
með því hefur rekstaröryggi
veitunnar stóraukist.“
Verkið var boðið út í tveimur
hlutum. Fyrri áfangann, frá
Akrafjalli niður að Geislahúsi við
golfvöllinn annaðist verktakinn
B&B, en Vélaleiga Halldórs Sig-
urðssonar hafði umsjón með
seinni áfanga ffá Geislahúsi að
Garðagrund. Undirverktaki í
plastsuðu var Jón Bjöm Gíslason
hjá Eðallögnum. Stefút er að því
að ffamkvæmdum Ijúki endan-
lega og vami verði hleypt á nýju
lögnina í kvöld, aðfararnótt 2.
október. Gissur bendir á að jafn-
vel þó svo að unnið verði að því
að tengja kerfið að nótm tdl, þeg-
ar álagið á kerfið er hvað minnst,
verði varla hjá því komist að
vatnsskorts verði vart einhvem
tíman á meðan skipt verður á
milli gömlu lagnarinnar og
þeirrar nýju.
ALS
Hér er unnið við að koma nýjum Q 400 mm krana fyrir á lögnina.
Fosshótel hafa keypt Hótel Reykholt:
Verður meimingartengt hótel
Gengið hefur verið ffá samn-
ingum um kaup Fosshótelkeðj-
unnar á Hótel Reykholti af
Sverri Hermannssyni síðasta
eiganda þess. Að sögn Renató
Grunenfelder, framkvæmda-
stjóra Fosshótela, er stefnt á
miklar endurbæmr á húsnæði
hótelsins í vetur sem snúast að-
allega um að koma baði á flest
herbergi en meirihluti her-
bergja á hótelinu hefur fram til
þessa verið án baðs. Hótelið
verður opið nú í október fyrir
hópa en verður lokað 1. nóvem-
ber þegar framkvæmdir hefjast.
Renató sagði í samtali við
Skessuhorn að áherslum hótels-
ins verði breytt og þær færðar
til samræmis við sérstöðu og
sögu Reykholtsstaðar. „Þannig
mun Hótel Reykholt verða skil-
greint sem menningartengt
hótel þar sem áhersla verður
m.a. á sögu, goðaffæði og klass-
íska list. Við geram ráð fyrir að
opna hótelið á ný effir breyt-
ingarnar 1. mars á næsta ári,“
sagði Renató. Hótelstjóri hefur
verið ráðinn Einar Valur Þor-
varðarson, en hann var sl. sum-
ar hótelstjóri hjá Fosshótelum á
Hallormsstað. MM
Vegurinn varðaður
Starfsmenn vegagerðarinnar í Ólafsvík höfðu handtök hröð og snör
þegar þeir voru að berja niður vegastikur á Útnesvegi í síðustu
viku. Mynd: GE
Orv hugsanlega í
Borgarfjörðinn
Fyrirtækið Orv líftækni hefur
undanfarin ár unnið að þróunar-
verkefni sem felur í sér vinnslu
próteins úr erfðabreytm byggi.
Fram til þessa hefúr tilrauna-
ræktun að mesm farið ffam við
þröngan húsakost hjá Rala á
Keldnaholti en nú era forsvars-
menn fyrirtækisins farnir að
skoða möguleika til leigu eða
kaups á henmgum gróðurhús-
um til að geta aukið tilrauna-
framleiðsluna. Meðal annars
hafa þeir skoðað gróðrarstöðvar
í Reykholtsdal og Suðurlandi.
Júlíus Kristinsson hjá ORV
sagði í samtali við Skessuhorn
að engar ákvarðandir hefðu enn
verið teknar um staðarval, en
vissulega hefðu þeir kannað
möguleika í Borgarfirði. Ur
bygginu er ffamleitt lífefni, eða
prótein, sem hægt verður að
nota við lyfjaframleiðslu, í iðnað
og sem stoðefúi á rannsókna-
stofúm. Ef tilraunir ganga vel
má gera ráð fyrir að fyrirtækið
þurfi allstór gróðurhús fyrir
ræktunina á næstu árum og hafa
verið nefndar tölur upp á 20
þúsund fermetra undir gleri í
því samhengi. MM
Föndur á netinu
Föndur.is er fyrirtæki sem
selur föndursnið sem hönnuð
era af Asdísi Erlu Guðjónsdótt-
ur. Oll sniðin era í vönduðum
pakkningum með ítarlegum ís-
lenskum leiðbeiningum og
skýringarmyndum. Mjög fátítt
er að fá slík snið hérlendis og
ætm sniðin því að vera kær-
komin fyrir íslenska föndrara.
Rúmlega 40 snið era nú þegar
komin á markaðinn og fer ört
fjölgandi. Viðtökur sniðanna
hafa verið frábærar og eru þau
nú seld í öllum helsm föndur-
verslunum landsins en inn á
slóðinni www.fondur.is er net-
verslun þar sem hægt er að
versla öll sniðin og fá send
heim til sín.
(Fréttatilkynning)