Skessuhorn - 30.09.2004, Síða 17
ju(,ssunui..
FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2004
17
Nýtt fjölnota íþróttahús á Jaðars-
bökkum á teikniborðinu
Við afgreiðslu fjárhagsáætl-
unar fyrir árið 2004 samþykkti
meirihluti bæjarstjórnar á Akra-
nesi tillögur þess efais að fela
bæjarstjóra, formanni tóm-
stunda- og forvarnarnefndar og
formanni Iþróttabandalags
Akraness að leggja fyrir bæjar-
stjórn drög að nýjum fram-
kvæmdasamningi í íþróttamál-
um. A vormánuðum skilaði
nefnd sem sldpuð var um málið
áliti sínu og í kjölfarið sam-
þykkti bæjarstjón meðal annars
að ráðast í byggingu á fjölnota
íþróttahúsi á Jaðarsbökkum þar
sem gamli malarvöllurinn
stendur nú og verður verkið
boðið út á næstu vikum. Onnur
brýn verkefni á sviði íþrótta sem
hafa forgang hjá bæjaryfirvöld-
um eru málefhi sundlaugarinn-
ar, en nauðsynlegt þykir að á ár-
inu 2005 Iiggi fyrir tillaga um
bætta aðstöðu og breytt skipu-
lag hennar, stækkun stúkunnar
við íþróttavöllin auk þess sem
skoða þyrfti helstu verkefhi á
dagskrá Golflkúbbsins Leynis
með það í huga að gera ffam-
kvæmdasamning um einstaka
verkþætti.
Brýn þörf á
bættri aðstöðu
Gísli Gíslason, bæjarstjóri á
Akranesi, segir að með íjölgun
íbúa á svæðinu og aukinni á-
herslu á íþróttaiðkun barna og
fullorðinna hafi verið orðið
nausynlegt að huga að betri að-
stöðu. Iþróttahúsin á Jaðars-
bökkum og Vesturgötu séu í
dag fullnýtt og fjölnota íþrótta-
hús gæti tekið við hluta af þeirri
starfsemi sem þar fer fram nú.
„Við teljum þetta hagkvæmustu
og skynsamlegustu lausnina á
aðstöðuvandanum sem kominn
er upp því það er alveg ljóst að
einhverra aðgerða er þörf. Með
þessu móti skapast betra rými
og auknir möguleikar á hvers
kyns íþróttastarfi í bænum.“
Unnið að gerð
útboðsgagna
Ekki liggur enn fyrir ná-
kvæmlega með hvaða hætti út-
boð verksins mun fara fram, en
Hönnun ehf. vinnur um þessar
mundir að gerð útboðsgagn-
anna. Þær forsendur sem liggja
útboðinu til grundvallar eru
meða annars þær að húsið verði
staðsett á Jaðarsbökkum, en
verið er að undirbúa nýtt
deiliskipulag fyrir svæðið sem
gerir ráð fyrir byggingu af þessu
tagi. Þá er gert ráð fyrir merkt-
um velli sem á að vera 105 x 68
metrar, Iagður gervigrasi af
þriðju kynslóð og að lofthæð
verði 12 metrar þar sem hæst er
en lágmark 6 metrar. Meðfram
vellinum verður útbúin yfir 100
metra hlaupabraut sem verður
að lágmarki 4 metra breið. A
pöllum á að vera aðstaða fyrir á-
horfendur. „Þó húsið komi ekki
til með að uppfylla öll skilyrði
keppnishúsa á aðstaðan að mæta
lágmarkskröfum svo æfa megi í
því flestar íþróttir við góðan að-
búnað,“ segir Gísli.
Miðað við að fram-
kvæmdum ljúki 2006
Gísli reiknar með að hægt
verði að bjóða verkið út í lok
október eða byrjun nóvember
og því ættu tilboð að geta legið
fyrir í desember. „Fram-
kvæmdatími ræðst svo af því
hvenær hægt er að hefjast
handa, en ætla má að deiliskipu-
lagsbreyting vegna fram-
kvæmdarinnar geti legið fyrir í
janúar eða febrúar. Þó verkefn-
ið sé nokkuð dýrt í frainkvæmd,
á bilinu 250 - 350 milljónir
króna, er ekki svo lengi verið að
byggja húsið sjálft þannig að
vonir standa til þess að hægt
verði að taka það í notkun á
fyrri hluta árs 2006,“ segir
Gísli.
ÍA fagnar fram-
kvæmdinni
Sturlaugur Sturlaugsson, for-
maður Iþróttabandalags Akra-
ness, fagnar fyrirhuguðum
framkvæmdum og segir að með
þessum sé verið að efla íþrótta-
hreyfinguna. Hann tekur undir
orð Gísla og segir þrengsli mik-
il í húsunum á Jaðarsbökkum og
Vesturgötu og að ekki náist að
svala þörfinni fyrir hreyfingu og
íþróttaiðkun eins og málum sé
nú háttað. Hann bendir á að
starfsemi IA er mjög umfangs-
mikil, ársveltan á annað hund-
rað milljónir og um 150 manns,
þar af um 120 sjálfboðaliðar,
vinni að málefnum hreyfmgar-
innar frá degi til dags. Heim-
sóknir í íþróttamannvirki bæj-
arins eru hátt á annað hundrað
þúsund og reikna má með að
nokkuð á þriðja þúsund manns
stundi íþróttir og reglulega
hreyfingu í bænum. „Það er
búið að vinna töluvert mikið í
þessum málaflokki og skilgreina
þörfina. Við erum ánægð með
að fá tækifæri til þess að taka
þátt í því starfi. Forgangsröðun-
in held ég að verði alltaf um-
deild, en það er trú mín að
svæðið við Jaðarsbakka verði
enn glæsilegra en það er í dag
þegar framkvæmdum lýkur. Við
eigum einnig von
á því að samhliða
uppbyggingu fjöl-
nota íþróttahúss
verði unnið f því
að skipuleggja
nýja innisundlaug
á Jaðarsbakka-
svæðinu og brýn-
ustu mál Golf-
klúbbsins Leynis
tekin til skoðunar.
Við hjá Iþrótta-
bandalagi Akra-
ness bíðum þess
spennt að fram-
kvæmdum ljúki.“
ALS
Sturlaugur Sturlaugsson, formaður ÍA, og Gísli Gíslason, bæjarstjóri, kampakátir á
gamla malarvellinum þar sem fjölnota íþróttahúsið mun rísa.
BCRGARPLAST
I/Aj'J-LUVD
?wmar/n*?Taðfnn;
ífcfóarhúffó off
Vfnnoftaðfnn
fyrfr
Dd VLJTbUJjT
Rotþrær og
olíuskiljur af
ýmsum stærðum
Vatnstankar, litlir og stórir, sandföng
og brunnar. Einangrunarplast af öllum
gerðum og margt; margt fleira
Hafðu samband við sölumenn
okkar í síma 561-2211 í Reykjavík
og 437-1370 í Borgarnesi
BORGARPLAST
Sefgarðar 1-3 • 170 Seltjarnarnes Sólbakka 6 • 310 Borgarnes
Sími: 5612211 • Fax: 561 4185 Sími: 437 1370 • Fax: 437 1018
I www.borgarplast.is
/ ISO \
1 14001 S
Síðan 1993 Slðan 1999
m