Skessuhorn


Skessuhorn - 30.09.2004, Qupperneq 24

Skessuhorn - 30.09.2004, Qupperneq 24
24 FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2004 ouiissunuK. Breytingar á Vegamótxun Það er álit margra að aldrei hafi fleiri ferðamenn heimsótt Snæfellsnesið en nú í sumar þótt það hafi ekki verið staðfest með opinberum tölum. Bættar samgöngur og tilkoma Þjóð- garðsins Snæfellsjökuls eru gjarnan nefndar sem helstu á- stæður fyrir fjölgun ferða- manna á Nesinu og má það ef- laust til sannsvegar færa. I seinni tíð er Snæfellsnesið m.a. orðið heppilegur kostur fyrir dagsferðir frá Reykjavík og Ijóst að þar er nóg að sjá og vafalítið erfitt að 'fmna meiri íjölbreytni á ekki stærra lands- svæði. I vikunni átti blaðamaður Skessuhorns leið hjá Vegamót- um á Snæfellsnesi og ákvað að inna einn eigenda verslunar- innar og veitingastaðarins þar, Eirefnu Birkisdóttur, um hvort eitthvað væri til í því að Snæ- fellsnesið væri að slá í gegn. Það liggur jú í augum uppi að fáir ættu að vera betur í stakk búnir að meta það enda liggja vegir til allra átta á Snæfellsnesi um Vegamót. „Það hefur verið mikil um- ferð á Snæfellsnesinu í sumar, það er engin spurning, en samt hefur þetta verið rólegasta sumarið okkar hér,“ segir Hrefna. „Fólk stoppar nú orðið bara til að fá sér að borða, kaupa ís eða taka bensín. Búðin hérna er hinsvegar alveg að detta uppfyrir og okkur sýnist að fólk komi í auknum mæli með allt með sér, fylli bílinn og tjaldvagninn áður en það fer af stað. Við urðum líka vör við það í sumar að fólk kemur fyrst og fremst í hádeginu og á kvöidin en það er eins og traffíkin hætti bara upp úr kvöldmat. Hrefna segir að eigendur Vegamóta muni bregðast við fyrrnefndri þróun strax í haust og ætlunin sé að leggja búðina niður en stækka matsalinn enn frekar í staðinn og leggja aukna áherslu á þá þjónustu. „I fram- tíðinni höfum við síðan áhuga á að gera enn frekari breytingar. Við sjáum að það væri full þörf á tjaldsvæði hér og jafnvel gist- ingu en það verður bara að koma í ljós hvað við getum gert,“ segir Hrefna. GE iWiíijinÉ Þessi kerra sem staðsett var í Brákarey stóð ekki af sér rokið í síð- ustu viku heldur fauk út í sjó. Óhætt er að segja að umferð á sjó í Borgarnesi hafi aukist umtalsvert við þetta atvik. Mynd: GE Undirbúningur Dægurlagakeppninnar Hin árlega Dægurlagakeppni Borgarfjarðar verður haldin á Gleðifundi Ungmennafélags Reykdæla sem haldinn verður í Logalandi 27. nóvember næst- komandi. Sem fyrr kalla keppn- ishaldarar eftir frumsömdum lögum til að taka þátt í keppn- inni. Þau þurfa að berast á geisladiski eða hljóðsnæidu fyr- ir 7.nóvember til Emblu Guð- mundsdóttur í Björk í Borgar- firði. I samtali við Skessuhorn sagði Embla að keppnin hafi alla tíð notið mikilla vinsælda og lög borist frá höfundum víða af Vesturlandi. Skilyrði fyrir þátttöku í keppninni er að lög- in séu frumsamin, með íslensk- um texta og mega ekki hafa ver- ið flutt opinberlega áður. MM www.skessuhorn.is Hrefna Birkisdóttir fyrir innan afgreiðsluborðið á Vegamótum. Mynd: GE Götumar klæddar í betri fötin Þegar blaðamaður Skessu- horns ók um götur Olafsvíkur voru framkvæmdir að heíjast við lagningu nýs slitlags á aðal- götuna. Þar var á ferðinni Sig- valdi Arason, verktaki úr Borg- arnesi, og hans menn í Borgar- verki en þeir eru ekki margir vegakaflarnir sem fyrirtækið hefur ekki komið að með ein- hverjum hætti. Sigvaldi sagði að nóg hefði verið að gera í sumar og útlitið gott framundan. Llann lagði síðan áherslu á orð sín með því að snarast upp í eitt tækið í hend- ingskasti og gaf fyrirskipanir í allar áttir um leið. GE Sigvaldi Arason við stjórnvölinn á einu malbik- unartækinu. Mánuður eftir í Kolgrafarfirði Þessa dagana er verið að leggja lokahönd á stærsta samgönguverkefni Vesturiands á þessu ári, brú og veg yfir Kolgrafarfjörð á Snæfellsnesi. Verkið er tæpu ári á undan áætlun en áætlað er að vegurinn verði formlega opnaður fyrir umferð þann 28. október n.k. Mynd: GE

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.