Skessuhorn - 30.09.2004, Síða 25
^&CSSllHUi..
FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2004
25
Verkfall grunnskólakennara
hefur ótvírætt víðtæk áhrif. A-
hrifinna gætir e.t.v. hvað mest í
elsta árgangi grunnskólans, í 10.
bekk þar sem nemendur undir-
búa samræmd próf í vor sem
eru m.a. mælikvarði á námsár-
angur margra ára. Skessuhorn
ræddi við þrjá nemendur í 10.
bekk Brekkubæjarskóla á Akra-
nesi og heyrði í þeim hljóðið
varðandi yfirstandandi verkfall.
Reynir að fylgja
vikuáætlun
Hulda Björk Einarsdóttir,
nemi í 10. bekk í Brekkubæjar-
skóla, segir það ágætt að fá frí í
tvær vikur eða svo, en dragist
verkfallið á langinn komi það til
með að hafa slæm áhrif á sæm-
ræmdu prófin. Hún hefur ekki
tekið afstöðu til kjarabaráttu
kennara en segir krakka í 10.
bekk almennt hafa nokkrar á-
hyggjur af þróun mála. Síðan
verkfallið skall á hefur hún sinnt
lærdómnum af og til og unnið
eftir vikuáætlun sem kennarar
dreiíðu meðal nemenda sinna
áður en til verkfalls kom, en
segir að ef málið fari ekki að
leysast ætli hún sér að skipu-
leggja námið betur svo það
verði markvissara og hún missi
sem minnst úr.
Verkfallsréttur
getur átt rétt á sér
Una Harðardóttir er í 10.
bekk í Brekkubæjarskóla og tek-
ur undir það sjónarmið að stutt
frí frá skólanum sé ágætt, en vill
þó ekki að það dragist á lang-
inn. Eins og Hulda Björk hefur
hún unnið aðeins eftir vikuáætl-
un en stefnir að því að stunda
markvissara heimanám ljúki
verkfalli ekki innan tíðar. Hún
segist ekki vita hvað kennarar
hafi í laun, en finnst sjálfsagt að
þeir beiti verkfallsréttinum séu
þau mjög lág og ósanngjörn.
Una segir að verkfall þurfi ekki
endilega að eyðileggja mögu-
leikana á því að ná góðum ár-
angri í samræmdu prófunum
þar sem hægt sé að læra heima
upp á eigin spýtur, þó það sé
ekkert roslega skemmtileg til-
hugsun.
Verkfall ekki ofarlega
í huga vinanna
Björn Breiðíjörð Gíslason er í
10. bekk í Brekkubæjarskóla.
Hann segir að sér lítist ágætlega
á verkfallið, það sé fínt að fá
smá hvíld frá skólanum auk þess
sem hann styður kröfur kennara
um hærri laun heilshugar. Ef
verkfallið dregst á langinn ætlar
Björn að taka skólabækurnar
upp og byrja að læra í dag,
fimmtudag, enda mikið í húfi
þar sem samræmdu prófin eru á
næsta leiti. Björn segist ekki vita
hvað öðrum 10. bekkingum
finnist um verkfallið, það sé
ekki efst á baugi í hans vinahópi
og frekar lítið um verkfallið
kennara rætt þegar vinirnir
koma saman.
ALS
Fjölritunar- og útgáfuþjónustan
<iug tsvottahús
Jeaner's i LaunJr-y
..ekki langt,
en það er
rým ra
á okkur!
Getum við a
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
ðstoðað þig?
Borgarbraut 55
310 Borgarnes
Sími: 437 2360
GSM: 893 2361
Fax: 437 2361
OLGEIRHELGI@ISLANDIA.IS