Skessuhorn


Skessuhorn - 30.09.2004, Qupperneq 26

Skessuhorn - 30.09.2004, Qupperneq 26
26 FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2004 ^ntaautiu.. Sameining hafiia á Faxaflóasvæðinu um næstu áramót: Grundartangahöfii verður innan tíðar stærsta inn- og útflutningshöfii landsins segir Gísli Gíslason hafnarstjóri og bæjarstjóri á Akranesi Skaftafellið lá við Grundartangabryggju í sfðustu viku. Komum stórra flutningaskipa mun vafalftið fjöiga mik- ið þar á næstu árum. Sameining Grundartanga- haínar, Akraneshafnar, Reykja- víkurhafnar og Borgameshafnar tekur formlega gildi um áramót- in næstu. I þessari sameiningu felast æði mikil tækifæri fyrir hafhirnar norðan Hvalfjarðar og lék Skessuhomi forvimi á að upplýsa hvaða þýðingu samein- ingin hefur fyrir stárfsemi hafn- anna og sveitarfélögin sem eiga þær. Hafnarstjóri á Gmndar- tanga og Akranesi er Gísli Gísla- son, bæjarstjóri á Akranesi. Nú er Grundartangahöfh þegar í magni talið önnur stærsta inn- og útflutningshöfn landsins. Gísli var fyrst spurður hvort ekki mætti gera ráð fyrir því að höfh- in verði enn meira nomð en áður og verði e.t.v. sú stærsta innan tíðar? „Það em góðar líkur á því að innan örfárra ára verði Grundartangahöfn komin jafh- fætis Reykjavíkurhöfh í tonnum talið hvað varðar bæði inn- og Gísli Gíslason. útfluming. Stækkun álversins og framtíðarhugmyndir eigenda þess fýrirtækis og hugmyndir um nýja starfsemi á svæðinu ganga allar út á að nýta kosti Grundartangahafhar. Dýpi fýrir stór skip og landrými er þar eins og best verður á kosið,“ segir Gísli. Nú standa yfir fram- kvæmdir við stækkun Gmndar- tangahafnar með nýjum 250 metra viðlegukanti og ffamund- an er skipulagsvinna sem vafa- laust mim gera ráð fyrir frekari stækkun. Gísli segir að áhrif þess að færa þungaflutninga á Grundartanga muni einnig gæta á umferðarmunstrið á þjóðveg- unum og segist hann vona að þungaflutningar minnld inn í höfuðborgina, en af því hefur þjóðfélagið verulega hagsmuni m.a. vegna uppbyggingar um- ferðakerfisins þar. Aukin sérhæfing I viljayfirlýsingu sem hggur fýrir vegna sameiningar hafh- anna er gert ráð fýrir að byggja Gmndartangahöfh upp sem iðn- aðarhöfn, Akraneshöfn sem fiskihöfn og að Reykjavík muni áfram sinna hefðbundnu hlut- verki sínu sem almenn þjónustu- höfn við inn- og útflutning auk þess sem áhersla á komur skemmtiferðaskipa verður aukin. „Þegar ekki skiptir máli hvar tekjurnar koma inn þá verður það áreiðanlega í þágu allra að auka inn- og útflutning um Grundartanga, en það er þróun sem mun taka nokkurn tíma. Sama má segja varðandi fisldnn, að með aukinni áherslu á bland- aðri byggð við gömlu höfnina í Reykjavík og í Orfirisey þá opn- ast aðrir möguleikar á Akranesi. Þá má ekki gleyma því að skemmtiferðaskip sem koma til Reykjavíkur gæm aðveldlega náð í ferðamenn sem færu dagsferðir í Hvalfjörð með viðkomu t.d. á Hótel Glymi, í Saurbæ og fleiri merkisstaði í Hvalfirðinum. Þar er óplægður akur sem sveitarfé- lögin geta nýtt sér í mun ríkari mæli en áður ef þau standa sam- einuð í þeim málum,“ segir Gísli. Eignaskipting Eignaskipting hafnanna verð- ur sú að Reykjavíkurborg verður eigandi að 75% fýrirtækisins sem stofnað verður, en sveitarfé- lögin norðan Hvalfjarðar fara með 25%. Gísli segist vonast til að eignaraðilum fækki nokkuð með sameiningu sveitarfélaga, en eins og sveitafélagaskipanin er í dag þá er hlutur Akranes- kaupstaðar 11,7%, Borgar- byggðar 3,828%, Skilmanna- hreppur, Hvalfjarðarstrandar- hreppur, Innri Akraneshreppur og Leirár og Melahreppur eiga 2,2% hvert sveitarfélag, Hvítár- síðuhreppur 0.132% og síðan er óskiptur hlumr Héraðsnefndar Borgarfjarðarsýslu, sem verið er að ganga frá 1,14%. Gísli segir að stjórn sameinaðra hafna verði skipuð 8 fulltrúum, 5 ffá Reykja- víkurborg og þremur ffá sveitar- félögunum norðan Hvalfjarðar (einn ffá Akranesi, einn norðan Skarðsheiðar og einn sunnan Skarðsheiðar) auk eins áheyrnar- fulltrúa sem kemur frá Akranesi. „Hlutur norðanmanna er því góður og öll tæki fýrir hendi til að vera vel gildir aðilar að þess- um rekstri“ segir Gísli hafnar- stjóri. Möguleikamir miklir á Gmndartanga Gísli var loks spurður hverjir væm helsm kostir sameiningar við Reykjavíkurhöfn fýrir byggðarlögin norðan Hvalfjarð- ar. „Fyrir byggðina norðan Hvalfjarðar er það án vafa stærsti kostur sameiningar hafnanna við miðjan og norðanverðan Faxa- flóa að lögð verður áhersla á uppbyggingu hafnarsvæðisins á Grundartanga. Þrátt fýrir að hafnarsjóður Grundartanga- hafnar sé nokkuð sterkur þá hef- ur hann ekki burði til að standa í allri þeirri fjárfestingu sem nauðsynleg er á næstu ámm til að gera svæðið að þeirri lykil- höfn sem möguleiki er á að gera hana. Á Gmndartanga höfum við haft tækifæri og möguleika í höndunum sem við megum ekki glata vegna smæðar okkar. Vit- anlega eigum við í ákveðinni samkeppni við önnur landssvæði og hafnasvæði en sameiningin á að tryggja okkur það afl sem þarf til að koma möguleikum og hug- myndum til framkvæmda. Sam- einingin mun þannig skila vem- legum arði og uppbyggingu á svæðinu í heild.“ Sundabraut lykilþáttur Gísli segir að hvað Akranes- höfh varði þá skipti máli að sú höfn þróist áfram sem fiskihöfn og með sameiningu HB og Granda lá beintvið að tryggja að mismunandi þjónusta og gjöld á Akranesi og í Reykjavík stæðu ekki í vegi fýrir eðlilegri og hag- kvæmri þróun. „Við vonumst auðvitað til að aðstaðan og möguleikarnir á Akranesi muni til lengri tíma skapa aukin um- svif í fiskvinnslu og útgerð. Það er margt að gerast í þróun svæð- isins við Faxaflóa og með sam- einingu hafhanna stíga sveitarfé- lögin norðan Hvalfjarðar stórt skref í þá átt að hafa veruleg á- hrif á þá þróun, enda verðum við að nýta tækifæri okkar til áhrifa til þess að verða ekki á eftir og láta þróunina stjórna okkur. Sú ákvörðun Reykjavíkurborgar að hætta við framkvæmdir í Geld- inganesi á eftir að hafa mikil á- hrif á nýtingu lands, umferð o.fl.“ Gísli segir áherslu sveitar- félaganna á lagningu Sunda- brautar eiga eftir að verða eitt af mikilvægustu þáttum sam- göngumála á Vesturlandi og víð- ar á komandi árum. „Sérhver stjómmálamaður sem vill taka þátt í að breyta samfélaginu til góðs mun ekki sleppa því tæki- færi að vinna af krafti að lagn- ingu þeirrar brautar,“ segir Gísh. Bein áhrif minnka En eru engir ókostir sem fýlgja því að sameinast og minnka þannig bein áhrif heimamanna á reksmr og upp- byggingu hafnanna? „Sameining á ekki að hafa galla í för með sér en e.t.v. kann einhverjum að þykja súrt í broti að hafa ekki alla þræði í hendi sér varðandi rekst- ur Grundartangahafnar og Akraneshafnar eftir sameining- una. A móti kemur að áhrif okk- ar norðanmanna í nýju fýrirtæki eru mikil og ástæðulaust að ætla annað en samstarf okkar við Reykvíkinga verði gott á kom- andi árum - ekki síður en raunin er varðandi Orkuveim Reykja- víkur. Hitt er annað að sífellt verða menn að halda vöku sinni því ekkert gerist af sjálfu sér,“ segir Gísli. Samstarf leiðir til sameiningar Að lokum segir Gísh að áhrifa þessarar sameiningar muni gæta víða um land, sérstaklega að því leyti að við sameininguna er ekki einblínt á hreppa- og sveitarfé- lagamörk og hefðbundin viðhorf um að ráða sjálfir sínum höfn- um. „Vonandi leiðir þessi aðgerð til þess að sveitarstjórnarmenn víðar nýti í auknum mæh mögu- leika sem felast í stærri rekstrar- einingum. A sumum sviðum hafa á Vesturlandi verið tekin ágæt skref í þá átt t.d. með sam- einingu sveitarfélaga í Borgar- fjarðarhéraði og fýrirhugaðri sameiningu þar, samstarfi sveit- arfélaga á Snæfellsnesi í skóla- og félagsmálum og nú samein- ingu hafha við Faxaflóa. Allt á þetta að leiða til þess að tryggja góðan grann að frekari vexti og framföram á svæðinu sem heild. I mínum huga er hafhasamein- ingin aðeins upphafið að ffekari breytingum og spennandi tím- um hér norðan Hvalfjarðar," segir Gísh Gíslason að lokum. MM

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.