Skessuhorn


Skessuhorn - 30.09.2004, Síða 39

Skessuhorn - 30.09.2004, Síða 39
^nesaunu^ FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2004 39 Skagamenn unnu tvöfalt í öðrum flokki Eins og fram hefur komið í Skessuhorni náði 2. flokkur ÍA þeim glæsta árangri að hampa íslandsmeistaratitlin- um í ár þrátt fyrir að flestir leikmenn liðsins séu úr yngri árgöngunum. í síðustu viku bættu piltarnir um betur og fögnuðu sigri í bikarkeppninni einnig. Skagamenn mættu Breiðabliki í úrslitaleiknum en þessi tvö lið börðust einmitt um íslandsmeistaratitilinn. Leiknum lauk með sigri ÍA 2-1. Þjálfari íslands- og bikar- meistara ÍA í 2. flokki er Alex- ander Högnason. GE Ungmennasamband Borg- arfjarðar stóð fyrir hlaupadegi á Hvanneyri, laugardaginn 25. september. Boðið var uppá að hlaupa þrjár vega- lengdir: 4.4 km. (skemmtiskokk) Hvanneyrar- hringinn, 10 km. Hvanneyri. Miðfossar, Hvanneyri og 25 km. þar sem hlaupið var frá Hvanneyri að Hvítárvöllum, eftir Hvítárvallaflóanum þaðan yfir Hestháls og síðan niður Skorradalinn, að norðanverðu og þaðan til Hvanneyrar. Rás- mark og endamark var við kirkjuna á Hvanneyri. Alls tóku 35 hlauparar þátt í hlaupinu, flestir frá skokkhópi sem kallar sig Laugaskokk alls 20 hlauparar. Þátttaka var framar vonum þar sem veðrið var ekki heppilegt fyrir hlaup, rok og rigning, en það létu hlaupararnir ekki á sig fá og komu hressir og ánægðir í mark. Alls tóku 11 þátt í 25 km. hlaupinu. Sá sem náði best- um tíma þar var Stefán Örn Einarsson úr skokkhópi ÍR en hann hljóp á tímanum 1:48.31. Jóhannes Guðjónsson náði besta tíma karla í 10 km. hlaupinu á 41.40 mín, Ing- veldur Ingibergsdóttir í kvennaflokki á 48.04 mín og Gunnar Ingi Friðriksson í ung- lingaflokki á 50.29 mín. Þau keppa öll fyrir UMSB. Bestum tíma í skemmtiskokkinu náði Natan Barelay USA en hann hljóp á 18.58 min. Hann keppti í unglingaflokki. Þetta hlaup er nýmæli hjá UMSB en undanfarin ár hefur Sparisjóðshlaupið verið um þetta leyti, en það var fært í Borgarnes í sumar, sem liður í Borgfirðingahátíð. Mat undir- búningsnefndar hlaupsins og þátttakendanna er að vel hafi tekist til og verður örugglega reynt að festa hlaupið í sessi og stefna á enn fleiri þátttak- endum að ári. KB banki í Borgarnesi og Mjólkursamlagið í Búðardal voru styrktaraðilar hlaupsins. íslands og bikarmeistarar ÍA í 2. flokki. Mynd: Hilmar Leitað að nýjum þjálfara fyrir kvennalið ÍA Siggi Donna hættir Eins og fram hefur komið í Skessuhorni var nýr sparkvöllur í Ólafsvík sá fyrsti sem tekinn var í notkun á Vesturlandi í sparkvallaátaki KSf. Samkvæmt upplýsingum Skessuhorns hefur nýi völlur- inn fallið vel í kramið hjá ung- um og öldnum spörkurum og þykir góð viðbót við þá ágætu aðstöðu sem fyrir var. Völlur- inn mun ekki síst hafa verið kærkominn fyrir kvenþjóðina en stelpur í Ólafsvík hafa ekki mikið haft sig í frammi á fót- boltavellinum fyrr en nú en þær eru sagðar sparka á nýja vellinum frá morgni til kvölds og þegar farnar að veita pilt- unum harða samkeppni á þessum vettvangi. GE Sigurður Halldórsson, betur þekktur sem Siggi Donna, hyggst hætta að þjálfa meist- araflokk ÍA en hann tók við þjálfun Skagameyjanna fyrir nýlokið keppnistímabil þegar Skagamenn ákváðu að tefla fram mestaraflokki kvenna á ný eftir nokkurra ára hlé. Sigurður náði góðum árangri með Skagakonurnar í sumar sem kunnugt er og undir hans stjórn unnu þær sér inn sæti í úrvalsdeild á næsta ári eftir umspil gegn Þór/KA/KS eftir að hafa komið stúlkunum upp í úrvalsdeild í sumar eins og fram hefur komið hér í blaðinu. Það ætti því að hafa freistað Sigurðar að fylgja eftir góðum árangri og fara með liðinu upp í úrvalsdeild. „Þetta er orðið ágætt í bili eftir sautján ár í þjálfarastarf- Sigurður starfar sem lögregluþjónn og smiður til viðbótar við þjálfara- starfið og fannst ástæða til að draga örlítð úr álaginu í bili. inu. Ég ákvað að hvíla mig að- eins á þessu í bili enda nóg annað að gera eins og er,“ segir Sigurður sem fyrir utan þjálfarastarfið hefur gegnt tveimur öðrum störfum. Hann er lögregluþjónn á Skaganum og vinnur auk þess við smíðar. Aðspurður um möguleika Skagastúlknanna í úrvalsdeild- inni segir Sigurður að þeir hljóti að teljast all góðir. „Við sáum það í umspilinu á móti Þór/KA/KS að það er mikið spunnið í þessar stelpur og þær geta örugglega spjarað sig. Ég er líka viss um að hóp- urinn á eftir að styrkjast fyrir sumarið." Þessa dagana er verið að leita að eftirmanni Sigurðar í þjálfarastarfið og sá sem talinn er líklegastur er Sigurður Víðis- son sem þjálfaði kvennalið FH síðasta sumar. GE Skagamenn íslands- meistarar U23 liða Lið Skagamanna varð íslands- meistari í flokki liða undir 23 ára aldri er ÍA lagði FH í úr- slitaleik þann 21. september s.l. Leikurinn endaði 3 -1 Skagamönnum í vil, sem fyrr segir, en mörk ÍA skoruðu þeir Guðjón H Sveinsson, Hafþór Ægir Vilhjálmsson og Þor- steinn Gíslason. GE

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.