Skessuhorn - 10.11.2004, Side 7
^■vtaðLnu...
MIÐVIKUDAGUR 10. NOVEMBER 2004
7
Guðlaugur ráðinn
landsráðunautur í
hrossarækt
Bændasamtök íslands hafa
ráðið Guðlaug Antonsson á
Hvanneyri, héraðsráðunaut hjá
Búnaðarsamtökum Vestur-
lands, í starf hrossaræktarráðu-
nauts samtakanna frá 1. nóvem-
ber sl. Guðlaugur tekur við
starfinu af Agústi Sigurðssyni
sem ráðinn hefur verið rektor
hins nýja Landbúnaðarháskóla
Islands. I fyrstu er um tíma-
bundna ráðningu landsráðu-
nauts að ræða til eins árs.
Nokkrum verkefnum sem
tengjast starfi hrossaræktarráðu-
nauts, s.s. kynbótaútreikningar
og þróun kynbótamats, verður
sinnt í samvinnu við Landbún-
aðarháskóla Islands og Þorvald
Arnason.
Aðspurður sagði Guðlaugur í
samtali við Skessuhom að starf-
ið leggðist vel í sig. „Vissulega
hafa blásið hressilegir vindar um
þetta starf í gegnum tíðina og
það verið umdeilt. Mér hefur
hinsvegar gengið ágætlega að
lynda við hrossaræktendur en ég
hef verið 11 ár við dómarastörf í
hrossarækt og þar áður kom ég í
8 ár að gæðingadómum. Eg
kvíði því ekki að koma að þess-
um málum sem landsráðunaut-
ur, þrátt fyrir að mismundandi
skoðanir finnist hjá hrossarækt-
armönnum í landinu. Ollum er
að sjálfsögðu ffjálst að hafa sína
eigin ræktunarstefnu, en mér
ber hinsvegar að framfylgja
hinni opinberu stefnu hverju
sinni og þar leggur fagráð í
hrossarækt línurnar“ sagði Guð-
laugur.
Undanfarið hefur Guðlaugur
starfað sem ráðunautur hjá Bún-
aðarsamtökum Vesturlands og
mun gegna því starfi áfram í
25% starfshlutfalli. „Eg kem til
með að hafa skrifstofu áffam hér
á Hvanneyri og sinna nýja starf-
inu þaðan að mestu en ég er ráð-
inn í 75% starf hjá Bændasam-
tökunum." Næg verkefni eru
ffamundan hjá Guðlaugi á vett-
vangi nýja starfsins og m.a. er
eitt fyrsta verk hans að hitta
hrossaræktendur á samráðsfundi
fagráðs sem haldinn verður 13.
nóvember en á þann fund mættu
um 700 manns sl. haust. „Þetta
verður fjölmennur fundur þar
sem maður hittir væntanlega
alla helstu hrossaræktendur
landsins. Það verður spennandi
að heyra hljóðið í mönnum
svona í upphafi nýja starfsins,“
sagði Guðlaugur að lokum.
MM
Frá fyrstu æfingunni
Kór eldri borgara
stoftiaður
í síðustu viku var stofnaður
nýr kór í Borgarnesi, Kór félags
eldri borgara í Borgarnesi og
nærsveitum. Fyrsta æfing kórs-
ins var í safnaðarheimili Borg-
arneskirkju í vikunni og sögðu
þeir sem vit hafa á að kórinn
hafi hljómað bæði sterkt og vel
á sinni fyrstu æfingu. Jón Þ
Björnsson, fyrrverandi organ-
isti, er stjórnandi kórsins.
Reglulegar æfingar kórsins
verða á miðvikudögum kl.
17.00 en æfingin í dag fellur þó
niður vegna útfarar Kristínar Þ
Halldórsdóttur. Stofnendur
kórsins eru þegar orðnir um 30
talsins og eru allir eldri borgar-
ar sem áhuga hafa á hvattir til
að skrá sig í kórinn hjá Aðal-
björgu Olafsdóttur í síma 437-
1176.
Að sögn kórfélaga er tilgang-
urinn með stofnun kórsins fyrst
og fremst sá að treysta tengslin
milli eldri borgara með sam-
söng. Auk þess vonast þeir til
að fá tækifæri til að gleðja eyru
samborgaranna þegar vel
stendur á. GE
d\/[ótz[ Q/snui
Nú fer hver að verða
síðastur að panta,
því að senn koma jólin!
Það má segja að jólahlaðborðið
hjá okkur í fyrra hafi slegið í gegn, því sú minning
sem fólk hefur um það segir allt sem segja þarf
og við höfum metnað til að gera enn betur í ár.
Verð pr. mann er 3.600,-
Bjóðim upp á gistingu og jólahlaðborð
á kr. 5.450,- pr. m., ef gist
er í tvær nætur þá er síðari nóttin frí
Uyjzája ^uámundux oj ^A/[aijiát
www.skessuhom.is
um c!{><%'{u/'/ancf
fatuja/Hhujuui 20. /ióoez/tf/e/*
Tónleikar í Bíóhöllinni Akranesi kl. 16:00
Tónleikar í Stykkishólmkirkju kl. 21:00
Fjölbreytt og skemmtileg söngskrá
Einsöngvcirar með kórnum: Pétur og Sigfús Péturssynirfrá Álftagerði
Stjórnandi: Stefán R. Gíslason .
Undirleikari: Dr. Thomas R. Higgersson Aðgangseyrir kr. 1.800,-