Skessuhorn - 10.11.2004, Qupperneq 16
16
MIÐVIKUDAGUR 10. NOVEMBER 2004
Hópur Hnudansara á Skaganum.
Mikið líf í línudönsurum
Ekkert lát er á uppgangi línu-
dansins á Akranesi og óhætt að
segja að aldrei hafi eins margir
stundað þessa íþrótt og nú. A
dögunum gengu allir línu-
dansahóparnir í ungmennafé-
lagið Skipaskaga og æfa nú sem
dansdeild innan félagsins. Nú
æfa á annað hundrað manns
vikulega undir stjórn Ola Geirs
danskennara annars vegar og
Kötu og Ellu hins vegar. „Og
Utlagarnir“, „Silíúrperlurnar“,
„Silfurskotturnar“ og „Silfur-
stjarnan“ hafa verið afar sigur-
sælir hópar á línudansmótum
og óhætt að er segja að fá
byggðarlög státi af svo mörgum
sterkum keppnisliðum. Því
heíúr verið fleygt að Akranes sé
tekið við af Skagaströnd sem
kántrýbær Islands og taka
margir dansarar undir það.
Fjölgað heíúr í byrjandahópum
og margir áhugasamir dansarar
bættust við í haust. Það er því
ljóst að Skagamenn mæta sterk-
ir til leiks á næsta bikarmót.
Dansdeild Skipaskaga hefur
boðað til haustmóts í línudansi
sem haldið verður með pompi
og prakt í félagsheimilinu Mið-
garði 13. nóvember nk. Um
danskennsluna þar sér Oli Geir
en kennt verður frá kl. 12 - 18.
Um kvöldið verður glæsilegur
kvöldverður, skemmtiatriði og
síðan slegið upp balli og dansað
fram á nótt. Dansfólk allsstaðar
af landinu hefur boðað komu
sína í Miðgarð og hvetja dans-
arar alla áhugasama um dans að
mæta og sletta ærlega úr klauf-
unum. MM
„Stórslys“ á Sólbakka
I síðustu viku var sett á svið
heilmikið bílslys í iðnaðarhverf-
inu Sólbakka í Borgarnesi. Um
var að ræða þriggja bíla árekst-
ur þar sem hátt í tíu manns
hafði slasast, sumir mjög alvar-
lega.
„Slysið“ var lokaverkefnið á
námskeiði fyrir sjúkraflutninga-
menn á Vesturlandi sem haldið
var í Borgarnesi. Þrettán
sjúkraflutningamenn tóku þátt í
námskeiðinu en auk þeirra tóku
sjö slökkviliðismenn, læknir og
lögreglumenn þátt í æfmgunni
sem tókst vel að sögn skipu-
leggjenda. GE
Nýjasta HB-Granda sldpið á leið í skoðun
Hið nýja og glæsilega
fjölveiðiskip sem HB Grandi
festi kaup á fýrir um mánuði síð-
an er nú á siglingu á Indlands-
hafi áleiðis til Kanaríeyja þar
sem hann fer í slipp. Skipið
verður stærsta veiðiskip íslenska
flotans, þegar það hefur veiðar á
fyrri hluta næsta árs. Það er 105
metra langt og 20 metra breitt
og er flutningsgeta þess 2000
tonn af afurðum á brettum.
Þegar kaupin á skipinu voru
gerð var það statt í Suður-
Kóreu. Lét skipið þaðan úr höfn
um miðjan síðasta mánuð. A
Kanarí fer fram lokaúttekt á
skipinu en í kjölfar þeirra verðu
skipið endanlega afhent HB
Granda. Þar verður botn skips-
ins sandblásinn og málaður.
Samkvæmt nýjustu upplýsingum
hefur skipið reynst vel á sigling-
unni en meðal siglingahraði þess
Vesturlandsdeild
Giktarfélags íslands
boðar til fundar í Borgarnesi
laugardaginn 13. nóvember2004
klukkan 13.00 í
Safnaðarheimilinu Félagsbæ.
Fundarefni:
Umræður um stofnun staðbundins stuðningshóps
í Borgarnesi og nærsveitum.
Framtíðar verkefni Vesturlandsdeildar.
5 Gestur fundarins verður Margrét Leópoldsdóttir,
i myndlistarmaður og læknir sem tekið hefur virkan
| þátt í hópstarfi GÍ í Reykjavík.
Léttar og heilsusamlegar veitingar.
Hvetjum allt giktarfólk til að mæta
og móta starfið á svæðinu.
Fyrir hönd stjórnarinnar
Jóhanna Leópoldsdóttir formaður
KM1HTAH KAÖJEP
Skipið verður stærsta veiðiskip íslenska flotans þegar það kemur til landsins á næsta ári.
hefur verið rúmar 14 sjómílur.
Agætis veður hefur verið á sigl-
ingaleið þess það sem af er, loft-
hiti verið um 35 gráður og mik-
ill raki í lofti. Jóhann Frímann
Jónsson, starfsmaður HB
Granda, sem er um borð lætur
vel af skipinu og öllum aðbúnaði
þar.
Kostnaðarsamar
breytingar
Verulegar endurbætur eru
framundan á vinnsluþilfari
skipsins en til stendur að setja
nýja vinnslulínu og frysta urn
borð áður en það heldur til
veiða. Akvörðun um hvar sú
vinna fer fram liggur ekki fýrir.
Rúnar Þór Stefánsson er út-
gerðarstjóri HB Granda. I
samtali við Skessuhorn sagði
hann að búið væri að bjóða út
frystihlutann í vinnslulínunni,
þ.e. tímafrekasta framleiðslu-
hluta nýs búnaðar í skipið. Það
var Optimar sem reyndist með
hagstæðasta boð og verður
samið við það fyrirtæki um
smíðina. „Við eigum eftir að
taka ákvörðun um annan bún-
að svo sem flokkara og flökun-
arlínur sem verða um borð og
get ég á þessu stigi ekki gefið
neinar upplýsingar um hverjir
komi til með að annast þann
verkhluta“, sagði Rúnar Þór.
Þess má geta að Skaginn hf. á
Akranesi er meðal þeirra fýrir-
tækja sem bjóða í smíðina á
vinnslulínunni, enda hefur fýr-
irtækið sérhæft sig í hönnun og
smíði slíks búnaðar.
MM