Skessuhorn


Skessuhorn - 10.11.2004, Side 17

Skessuhorn - 10.11.2004, Side 17
^nlissimu^ MIÐVIKUDAGUR 10. NOVEMBER 2004 17 Bangsavika í Snæfellsbæ I lok október var haldin svokölluð bangsavika á bókasafni Snæfellsbæjar og fengu þá yfir 30 bangsar að gista á bókasafninu og njóta þess sem þar er í boði. Þá voru haldnar sögustundir sem tileinkaðar voru hinum traustu og tryggu böngsum og var vel mætt á þær að sögn bókavarða. Hápunktur bangsavikunnar var síðan þegar dregið var úr bangsapottinum en aðalverð- launin voru bókasafnsbangsinn 2004. Það voru þær Unnur Eir Guðbjörnsdóttir, 4 ára og Val- gerður Sig- tryggsdóttir, 10 ára sem hrepptu bangsana í þetta skiptið. Einnig voru veitt auka- verðlaun og hlutu Kristófer Reyes, 7 ára og Snorri Árnason, 7 ára, bangsimonspil, Þórhalla Gísladóttir, 4 ára, hlaut bangsa- bók og hlotnaðist Kristni Jökli Kristinssyni, 2 ára bangsalykla- kippa. Bangsavikan heppnaðist með miklum ágætum að mati að- standenda og sneru allir bangs- arnir víðlesnir til síns heima að henni lokinni. GE Listhneigðir nemar í nýjum skóla A mánudaginn var opnuð í húsnæði Fjölbrautaskóla Snæ- fellingar sýning á myndlist nemenda. A sýningunni má meðal annars finna olíumál- verk, vatnslitamyndir, kola- teikningar, olíupastel og þurrpastel. Einnig má sjá nokkrar blýantsteikningar og nokkur verk unnin með bland- aðri tækni. Sextán nemendur skólans hafa myndlist sem valfag, tólf strákar og þórar stelpur, og eru nemendurinir á aldrinum 16 - 40 ára. Sýningin er öllum opin og geta gestir skoðað hið nýja skólahús um leið. Verkin eru öll til sölu og verða nokkur þeirra boðin upp sérstaklega á skemmtidagskrá í Samkomu- húsi Grundarfjarðar næstkom- andi laugardag. GE VG vilja fimm milljarða í ferða- þjónustuna í kjördæminu Á nýafstöðnu kjördæmis- þingi Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs var samþykkt ályktun um ferðamál í kjör- dæminu undir yfirskriftinni „stærsta ferðamálaverkefni Is- landssögunnar." Tillögur VG ganga út á að hafin verði stór- sókn í uppbyggingu á kjör- dæminu sem sérhæfðu ferð- þjónustusvæði. Lagt er til að gerð verði sértök átaksáætlun til næstu 5 ára sem hafi það að markmiði að treysta grunn- stoðir ferðþjónustunnar á svæðinu. Kjördæmisþingið skorar á Alþingi og ríkisstjórn að veita til verkefnisins a.m.k. 1 milljarði króna á ári næstu fimm árin. I ályktuninni segir m.a.: „Ferðaþjónustan er sú atvinnu- grein sem vex nú hvað hraðast og skilar mestri árlegri aukn- ingu í nettó gjaldeyristekjum til þjóðarbúsins. Ferðaþjónust- an er nú orðin ein stærsta at- vinnugrein þjóðarinnar og skilar 40-50 m i 11 j ö r ð u m króna í gjald- eyristekjur á ári. Gert er ráð fyrir þreföldun ferðamanna til landsins á næstu 10 árum. Skagafjörður, Húnvatnssýsl- ur, Vestfirðir allir suður um Breiðafjörð, Dali, Snæfellsnes og Borgar- fjörð eru auðug af náttúruperl- um, sögu og menningararfi. Þessa fjölbreyttu kosti má nýta enn betur á sjálfbæran hátt til eflingar þessari atvinnugrein. Þar má nefna Jökulvötnin í Skagafirði með heimsfrægum fljótasiglingum, jöklaferðir, gjöfular veiðiár, eyjar og lífríki Breiðafjarðar, ægifegurð Vest- fjarða, Þjóðgarður á Snæfells- nesi svo nokkuð sé nefnt. Hér er vagga sagnaritunar og sögu- svið Islendingasagna.“ I greinargerð með ályktun- inni segir einnig að styrkin ferðaþjónustunnar sé eitt nær- tækasta verkefnið til að auka íjölbreytta atvinnu á svæðinu sem heild. Til að svo megi verða þurfi hinsvegar að styrkja grunnstoðirnar og markaðsstarfið. GE Um vegabœtiir Ég fór að hugleiða stöðu Reykhólahrepps eftir að hafa lesið frétt á bb.is við Einar Thorlacius sveitarstjóra Reyk- hólahrepps. Að því gefnu að tdl- laga Vegagerðarinnar á Isafirði sé sú með stuðningi ráðherra, að vegurinn verði áfram fýrir Þorskafjörð, yfir Hjallaháls og Ódrjúgsháls og fýrir Gufufjörð í Skálanes, þ.e.a.s. að segja má sama leið óbreytt, í staðinn fýr- ir að fara yfir Þorskafjörð og yfir Djúpafjörð og Gufufjörð í Skálanes, þá skil ég ekki þá stefnu Vegagerðarinnar að það megi færa fjallvegi niður á lág- lendi, þvera firði og byggja brýr annars staðar, en ekki á þessari leið. Eins og til dæmis í Kolgrafarfirði og í ísafjarðar- djúpi. Og miðað við nýjustu tillögu í sameiningarmálum sveitarfé- laga held ég að það þurfi að fara að byrja á vegi um Arnkötludal til Hólmavíkur hið fýrsta. Ég held að Vegagerðin á Isafirði myndi styðja þá framkvæmd, því stytting á vegi milli Isafjarð- ar og Reykjavíkur yrði veruleg og ráðherra samgöngumála gæti áfram farið með bátnum yfir Breiðafjörðinn! En þá yrði komin upp sú skondna staða, að Reykhólahreppur, Hólmavíkur- hreppur og Dalabyggð gætu sameinast til dæmis og við í Reykhólahreppi ættum mögu- leika á tveimur heilsugæslu- svæðum og þremur sýslumönn- um! Er ekki lífið dásamlegt! Kinnarstöðum í október 2004 Gunnbjöm O/i Jóhannsson 60 ára afmælisfagnaður Guðmundur bóndi og smali Kvennabrekku heldur upp á 60 ára afmælið sitt í Árbliki laugardaginn 13. nóvember nk. Húsið opnar kl. 20:30 Vinir og vandamenn velkomnir Gleðjumst saman á góðrí stund , Isfugl kjúklingaleggir Tilboð: -magnpkn. 40% afsl. Verð áður: 679 kg. Isfugl kjúklingalœri -i magnpkn. 40% afsl. 579 kg. Folaldagúllas 30% afsl. 1399 kg. Folaldasnitzel 30% afsl. 1499 kg. Folaldahakk 30% afsl. 399 kg. Nautahakk 25% afsl. 994 kg. Tilboðin gilda frú 11. nóvember til og með 14. nóvember eða meðan birgðir endast. Nýtt kortatímabil hefst 11. nóvember! Verið velkomin! Segulmiðaleikur Skessuhorns © j -Utftfrufeifrur ?ema/ftr ftffáaftwuð/ 1 Vinningsnúmer 44. tölublaðs er: 641 Vinningur er 15.000 króna vöruúttekt í Samkaup-Urval í Borgarnesi eða Samkaup-Strax á Akranesi eða _ Grundavali í Grundarfirði. Avísunfyrir vöruúttekt skal vinningshafi vitja á skrifstofu Skessuhorns í síma 433-5500.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.