Skessuhorn


Skessuhorn - 10.11.2004, Qupperneq 19

Skessuhorn - 10.11.2004, Qupperneq 19
§2ESSUH©E2IKI MIÐVIKUDAGUR 10. NOVEMBER 2004 19 ~fi*e/l/lí/l/l-~f Það sem ég vildi sagt hafa Það rann upp fyrir mér þegar ég settist inn á kynningarfund samstarfsneíndar um sameiningu hreppanna sunnan Skarðsheiðar að allt sem ég vildi að fram kæmi á fundinum gæti aldrei komið fram og allar spurningarnar sem ég vildi spyrja væru óviðkomandi sameiningarnefndinni. En ég var mættur svo ég gat ekki orða bundist (og var snupraður fyrir af fundarritara), spurði gagnlausra spurninga sem ég vissi svörin við fyrirfram í stað þess að korna á framfæri hugrenningum sem ég tel að íbúar hreppanna þurfi að taka afstöðu til. Vegna þessa sting ég nú niður penna og set ffam það sem ég vildi sagt hafa. Sameining til góðs en ekki töfralausn Sameining sveitarfélaga er ein af töífaþulum íslenskra stjórn- málamanna sem þeir grípa til þegar ekkert annað er um að vera eða þegar þeir eru spurðir erfiðra spurninga um lífsslályrði fólksins í landinu. Stærðarhagkvæmni og samþjöppun er þá hin eina sanna lausn. - Valddreifing og frelsi til orðs og æðis er hins vegar það sem við á þegar að kosningum kemur. Þetta tvennt hefur sína kosti en fer hinsvegar illa saman. Flytjum verkefnin til fólksins (sveitarfélaganna) í öðru orðinu en höfum vit fyrir þeim í hinu, skömmtum öllum sama íjármagn og leyfum engan sveigjanleika. I mínum huga eiga sveitarfélög að vera mismunandi að uppbygg- ingu eftir því hvaða hagsmunum þau eiga að þjóna. Fyrir svo sem 50 árum var þetta alveg skýrt, þú gast búið í sveit og haft lífsviður- væri þitt af búskap eða þú gast búið í þorpi og unnið við veiðar eða vinnslu sjávarafla. í dag er samsetning atvinnulífs gjörbreytt og lífsviðurværi og viðhorf fólks einnig. Þótt Reykjavíkurhreppur geti að vísu vart talist til borgarsamfé- lags vegna þeirrar dreifbýlis- stefnu sem þar er fylgt í skipu- lagsmálum hefur tæknivæðingin þó séð tdl þess að íbúar þar þurfa, vegna fólksfjölda og samsetning- ar atvinnulífsins, á mikilli og flók- inni þjónustu að halda sem ein- kennir nútíma borgarsamfélög. Misstórir þéttbýlisstaðir og dreif- býlissveitarfélög eru annarskonar samfélagsgerðir og ólíkar. Ráðamenn þjóðarinnar hafa gert þá regin skissu að lögfesta alltof marga þætti þeirrar þjón- ustu sem veitt er og knúið sveit- arfélög um land allt til að veita hana langt umffam það sem hægt er að fara fram á við lítil og fé- vana samfélög. Þetta valdboð hefur síðan orðið til þess að flest minni sveitarfélög eru komin í þrot fjárhagslega. Þrautalending- in hefur verið að sameina til að reyna að njóta hagkvæmni stærð- arinnar. Dreifbýlishreppar hafa sam- einast þéttbýlisstaðnum í sýslunni til að reyna að uppfylla kröfur ríkisvaldsins um þjónustu í krafri stærðarinnar. Þessar sameiningar hafa oftar en ekki mistekist þó enginn vilji í raun viðurkenna það. Engum hefur dottið í hug að gera sveitarfélögin þess megnug að bjóða íbúunum upp á raun- verulega valkosti í búsetu. Fólk hefur ekki verið leyst úr átthaga- fjötrum heldur knúið til áfram- haldandi búsetu í byggðum á fallanda fæti eða flæmt á suð- vesturhornið með tilheyrandi eignaupptöku og röskun á fjöl- skylduhögum. Breytilegar samfé- lagsgerðir raunveru- legir valkostir Sveitarfélögin sunnan Skarðs- heiðar eru í þeirri stöðu fjárhags- lega að geta veitt alla almenna grunnþjónustu sem farið er fram á í nútímasamfélögum og eru því raunverulegur valkostur fyrir þá sem velja sér búsetu eftir samfé- lagsgerð. Samstarf þeirra í flest- um málefhum sem snerta þjón- ustu við íbúana gerir það að verk- um að sameining þeirra er í mín- um huga einungis staðfesting á þeirri stefnu að bjóða fólki að velja. Sameining á ekki að hafa í för með sér tilhneigingu til sam- þjöppunar á neinu sviði öðru en því sem lýtur að þeim staðfasta vilja íbúanna að ráða sínum mál- um sjálfir en afhenda ekki völdin til annarra sem hafa ekki sama skilning á væntingum og þörfum þeirra. - Saineining á ekki að verða til þess að auka kröfur um þjónustu heldur að staðfesta þau lífsgæði sem samfélagið býður núverandi og tilvonandi íbúum. Því hefur verið haldið ffam að sameining sveitarfélaga hafi aldrei orðið til þess að lækka kostnað við stjómsýslu og þjónustu. Ég er þeirrar skoðunar að þessi fullyrð- ing sé ekki alls kostar réu. Með sameiningu sveitarfélaga að ólíkri gerð (dreifbýli og þéttbýli) hefur vænt fjárhagsleg hagræðing orðið að engu vegna þess að hæsta þjón- ustustig hefur verið fært út í allt hið sameinaða sveitarfélag. Þetta er eðlileg og sanngjörn niður- staða fyrir þá sem lægra þjónustu- stigs hafa notið þar sem álögur effir sameiningu em miðaðar við. Þetta er þó ekki sú lausn sem leit- að var að í upphafi. Fyrir íbúa sveitarfélaganna fjögurra sunnan Skarðsheiðar getur sameining orðið til þess að auka þjónustustig þeirra lægstu en jafhframt leitt til hagræðingar og sparnaðar á ýmsum sviðum. Nú skulu færð ff am nokkur rök þessu til stuðnings. Hagræðing og kostnaðarlækkun Rekstur Heiðarskóla hefur ver- ið og verður sá einstaki þáttur sem mest fjármagn fer til af tekj- um sveitarfélaganna. Margir hafa slegið því ffam að skólinn sé baggi á sveitarfélögun- um! En hvemig má það vera að litið sé á einn af homsteinum sið- aðs samfélags sem bagga á þeim sem veita á þá sjálfsögðu þjónustu sem rekstur gmnnskóla er? Frá því að sveitarfélögin tóku við rekstri skólans hefur verið leitast við að dreifa kostnaði við rekstur hans í samræmi við fjár- hagslega getu þess eða þeirra sem minnst hafa haft aflögu en kostn- aði ekki skipt eftir hefðbundnum höfðatölureglum. Þessi tilhögun hefur tvímælalaust orðið til þess að létta nokkuð á tveimur lakar stæðu sveitarfélögunum og jafh- ffamt gert það kleift að reka góð- an skóla sem orðinn er að aðal sameiningartákni íbúa svæðisins. Rekstrarform skólans er hins veg- ar frekar óþjált og svifaseint þar sem ákvarðanataka byggist á sam- þykktum byggðasamlagsstjórnar, fjögurra sveitarstjórna auk um- sagnaraðila sem kveðið er á um í lögum að koma skuli að málum. Allt í allt fer fjárhagsáætlun skól- ans um hendur um 30 einstak- linga í sjö nefndum og ráðum auk skólastjórnenda áður en hægt ganga ffá henni samþykktri. Bet- ur sjá augu en auga en þetta getur vart talist skilvirkt né til þess fall- ið að auka hagræði. Með samein- ingu eykst skilvirkni sem skilar sér í lægri kostnaði miðað við óbreytt þjónustustig. Núverandi rekstrar- form skólans veldur því einnig að ýmis rekstrarkostnaður s.s. vegna bókhalds og endurskoðunar fellur að nokkru leiti tvisvar á sveitarfé- lögin. Við sameiningu munu þessir kostnaðarliðir lækka um hundruðir þúsunda ef ekki millj- ónir á ári. Sveitarfélögin fjögur hafa öll reynt að siima þeirri skyldu sinni að reka skrifstofu þar sem íbúar hafa getað leitað úrlausna sinna mála og jafnffamt hafa þau haldið úti lögbundnum nefndum og ráð- um hvert fyrir sig, sameiginlega eða í samvinnu við önnur sveitar- félög á Vesturlandi. Flest stærstu málefni sveitarfélaganna eru sam- eiginleg hagsmunamál þeirra þar ber hæst utan fræðslumála, at- vinnu-, umhverfis- og skipulags- mál. I atvinnu- og umhverfismál- um hafa sveitarfélögin verið að vinna hvert í sínu horni, þ.e. hvert sveitarfélag gerir út sína nefnd um málaflokkana þó svo þær hafi nokkra samvinnu sín á milli. I skipulagsmálum eru sveitarfé- lögin hreinlega á villigötum. Ekki færri en þrír byggingarfulltrúar eru „starfandi“ á svæðinu og skipulagsvinna svæðisins er unnin í fjórum hlutum. Með sameiningu kæmust þessi málefni öll í einn farveg sem leið- ir til betri yfirsýnar um málefni íbúa, minni hættu á hagsmunaá- rekstrum og lækkunar útgjalda vegna nefnda og ráða. Jafnffamt má hugsa sér að sameining hefði í för með sér betri og skipulagðari landnýtingu. Sameinað sveitarfé- lag myndi í mínum huga kapp- kosta við að veita áfram þá þjón- ustu sem þegar er veitt en nú án þeirrar skörunar sem alltaf hætta á í núverandi fyrirkomulagi. Kostnaðarauki vegna aukinnar þjónustu og fleiri þjónustuþátta er valkostur en ekki kvöð. Sameinumst um ákveðinn valkost í búsetu Sameinað sveitarfélag getur með skýrri og ákveðinni stefnu- mótun gert fólki kleift að velja sér búsetu miðað við þá þjónustu sem það ákveður að bjóða en þarf ekki að elta aðra. Velji fólk að búa í þéttbýli með þá þjónustu sem þar er boðin umffam þjónustu í dreif- býli bendi ég á nágrannasveitarfé- lög okkar stór og smá. Á fundinum sem getið er í upp- hafi þessa skrifs kom ffam að stjórnvöld hafa látið í veðri vaka að þau sveitarfélög sem ekki sam- einast með góðu verði meðhöndl- uð með einhverjum hætti sem þau fá lidu um ráðið. Jafnffamt var örlítíð drepið á hjá hverjum laga- setningarvaldið væri. Mín skoðun er sú að ef við sameinumst og hefjumst þegar handa við að móta stefnu til ffamtíðar sem getur gert sveitarfélagið okkar að raunveru- legum valkosti í búsetu með tillitri til þarfa og væntinga íbúa nýs dreifbýlissamfélags sem býr að nokkurri fjölbreytni í atvinnumál- um, fjölda nýrra tækifæra vegna nálægðar við þéttbýlið og fjár- hagslegs sjálfstæðis, þá verður eft- ir okkur tekið og stjórnvöld munu veigra sér við að steypa okkur í sama mót og aðra. Draumurinn væri að samein- ingin yrði upphaf nýrra tíma í hugsun og mótun samfélaga landsins. (Þetta er kannski of há- fleygur draumur en fær samt að fylgja með!) Að lokum Undirritaður skorar á íbúa hreppanna fjögurra að skoða þessi mál með opnum huga. Von mín er að við flykkjumst á kjörstað og veitum nýjum tímum og hug- myndum brautargengi með því að segja JÁ við sameiningu! I aðdraganda kosninga 20. nóv- ember n.k. Með sameiningarkveðju, Guðmundur Olafsson Rekstrarfræðingur (og smali) Lambhaga

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.