Skessuhorn - 20.04.2005, Síða 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI 15. tbl. 8. árg. 20. aprfl 2005 - Kr. 300 í lausasölu
Sjávarfallavirkjun í
Hvammsfirði?
Fyrirtækið Straumey hefur sent fyrirspum til
Dalabyggðar vegna hugmynda um sjávarfallavirkjun
í landi Straums við mynni Hvammsíjarðar í Breiða-
firði. I erindi Straumeyjar kemur fram að rannsókn-
ir sem gerðar hafa verið lofi góðu. Fyrirtældð óskar
eftir afstöðu Dalabyggðar til fyrirhugaðra fram-
kvæmda.
Sveitarstjóm Dalabyggðar tók vel í erindið en vís-
ar á Breiðafjarðamefnd varðandi það hvort fyrirhug-
aðar framkvæmdir samrýmist lögum um vemd fjarð-
arins og vemdaráætlun Breiðafjarðar.
GE
Erlend stúlka les best
Síðstliðin fimmtudag var lokahátíð Stóra upplestr-
arkeppninnar á Snæfellsnesi og var hún að þessu
sinni haldin í Stykkishólmskirkju. Þar komu fram
bestu „lesaramir" úr grannskólunum á Snæfellsnesi
og lásu þeir upp úr bók Guðrúnar Helgadóttur,
Oðravísi dagar auk tveggja ljóða. Þau sem þóttu
skara ffarn úr vora Alexandra Geraimova úr Grund-
arfirði sem varð í fyrsta sæti, Hilma Jónsdóttir úr
Snæfellsbæ sem varð í öðra sæti og Dagfriður Osk
Gunnarsdóttir úr Grandarfirði sem varð í því þriðja.
Arangur Alexöndra vekur sérstaka athygli þar sem
hún hefur einimgis búið hér á landi í 2 ár en þrátt fyr-
ir það hristi hún af sér 8 aðra keppendur af öllu Snæ-
fellsnesi. Sannkölluð hvunndagshetja þar á ferð.
GE
Akranes brátt tengt
leiðakerfi Strætó?
Eins og áður hefur komið ffarn í Skessuhomi hef-
ur verið sterkur vilji á Akranesi fyrir því að tengja
leiðakerfi Strætó bs. í Reykjavík við Akranes með
ferðum þangað. Nú liggur fyrir af hálfu Strætó bs.
vilji til að Akraneskaupstaður gerist aðili að byggða-
samlagi með stofriframlagi og geri tilraunasamning
til 3ja ára um að Strætó sjái um akstur almennings-
bíla á milli Akraness og Mosfellsbæjar með viðkomu
á Kjalamesi. Þannig geta íbúar á Akranesi í nánustu
ffamtíð og jafrivel strax í haust tengst kerfi almenn-
ingssamgangna Reykjavíkursvæðisins.
Ferðatíðni skv. þessari hugmynd era 81 ferð á viku
og yrði heildarkostnaður 17,4 milljónir á ári fyrir
Akraneskaupstað. Gert er ráð fyrir að farþegar mtmi
njóta sömu kjara og almennir farþegar sem nota
strætó á höfuðborgarsvæðinu og eiga möguleika á
sömu afsláttarkjöram og í boði era á hverjum tíma.
Fyrir liggur einnig að fulltrúar samgönguráðuneytis-
ins og Vegagerðarinnar hafa lýst yfir vilja sínum til að
semja við Akraneskaupstað um útfærslu á sérleyfi til
Akraness. Bæjarráð Akraness samþykkti á fúndi sín-
um 14. apríl sl. að fela bæjarritara og formanni at-
vinnumálanefridar að ganga til samninga um málið.
MM
Þessi myndarlegi selur breiðraði um sig á gömlu steinbryggjunni við Brákarsund í Borgamesi á mánudagskvöld og dró að sér mikla athygli. Töldu viðstaddir
þetta vari urta sem valið hefði sérþennan stað til að kœpa. Skessuhom hefur hinsvegar ekki upplýsingar um hvort íbúum Borgamess fjölgaði þama um kvöldið.
Stefiit að sameiningu
þriggja verkalýðsfélaga
Valur, Hörður og Verkalýðsfélag Borgarness í eina sæng?
Formenn Verkalýðsfélags-
ins Harðar í Hvalfirði, Verka-
lýðsfélagsins Vals í Dalabyggð
og Verkalýðsfélags Borgar-
ness hafa ákveðið að leggja
það til við stjórnir félaga sinna
og aðalfundi 2005 að stefnt
skuli að sameiningu félaganna
þriggja.
Tillögur formannanna era á
þann veg að þeir hefji undir-
búning að sameiningu að
loknum aðalfundum félag-
anna nú í vor. Frá og með 1.
febrúar 2006 starfi stjórnirnar
saman og verði sameining
samþykkt á aðalfundum félag-
anna árið 2006 verði haldinn
stofnfundur nýs verkalýðsfé-
lags sem spanni allt félags-
svæði núverandi félaga. Miðað
er við að því ferli verði lokið
eigi síðar en 31. maí 2006.
I sameiginlegri fréttatil-
kynningu frá Sveini Hálfdán-
arsyni formanni Verkalýðsfé-
lags Borgarness, Kristínu Ar-
mannsdóttur, formanni Harð-
ar og Kristjáni Jóhannssyni,
formanni Vals segir m.a: „Það
er mat okkar að æskilegt sé að
stækka og styrkja verkalýðsfé-
lögin í landinu. Með stórbætt-
um samgöngum, af öllu tagi,
eigi ekkert að vera því til fyr-
irstöðu að sameining geti eflt
og styrkt þjónustu við félags-
menn þessara þriggja félaga.
Atvinnulíf á stafssvæðum fé-
laganna er á margan hátt svip-
að: Almennur iðnaður, stór-
iðja, byggingariðnaður, mat-
vælaiðnaður, verslun, ferða-
þjónusta, opinber þjónusta og
landbúnaður. Ætti það einnig
að auðvelda fyrirhugaða sam-
einingu.“
Þá segjast formennirnir
einnig vonast til þess að sem
flestir félagsmenn eigi eftir að
koma að vinnu við undirbún-
ing sameiningar.
GE
fðflCMOTÖWÍil
^ííícagotowh'
Tilboö 20
Chicago Town
American pizzur
Verð mn 258
Camembert 150gr
Samkaup I úrval
Hollensk jarðarber 200gr
Grindavík • Hafnarfjöröur • Njarövík • ísafjöröur • Akureyri • Dalvik • Siglufjöröur • Ólafsfjörður • Húsavík • Egilsstaóir • Selfoss • Borgarnes • Blönduós • Skagaströnd • Bolungarvik