Skessuhorn


Skessuhorn - 20.04.2005, Blaðsíða 2

Skessuhorn - 20.04.2005, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 2005 .~r_v-.nr..,- Olóðir að- komu- menn Berserksgangur rann á þrjá aðkomumenn fyrir utan veit- ingastaðinn Búðarklett í Borg- amesi aðfaramótt sunnudagsins. Hafði þeim verið hent út af staðnum fyrir að ráðast á mann og annan að sögn lögreglu. Þeg- ar út var komið fóra þeir að dæmi Þorgeirs Hávarssonar og slógu mann sem stóð vel til höggsins og réðust síðan á ann- an mann, börðu hann í jörðina og spörkuðu í hann liggjandi með þeim afleiðingum að hann slasaðist umtalsvert og missti m.a. tvær tennur. Lögregla handtók einn árásarmannanna og gisti hann fangageymslur en tveir af þeim sem urðu fyrir árásunum vom fluttir á sjúkrahús til aðhlynn- ingar. Að sögn lögreglunnar í Borgarnesi er búið að leggja fram kærar á hendur mönnunum þremur og mega þeir búast við háum bótakröf- um. GE Tit minnis Víö minnum íbúa í sveitarfé- lögunum fjórum í Borgarfirbi, auk Kolbeinsstaöahreppi á að mæta á kjörstað nk. laugardag 23. apríl. Þá á nefnilega að kjósa um hvort sameina eigi þessi 5 sveitarfélög f eitt. Vechirhorfivr Hvort sem þíb trúib því, eba ekki, þá er gert ráb fyrir nokk- ub skaplegu vebrí á Vesturlandi næstu dagana. Þab verður hæg suðaustanátt en yfirleitt skýjað en þó úrkomulítið. Hiti verbur þetta á bilinu 7 til 13 stíg. Sublæg átt og dálítil rign- ing um helgina. Ágætt kosn- ingaveöur. Jú, svo er líka ab koma sumar! Spflrmruj vtHnnnar Vib spurðum á vef okkar; www.skessuhorn.is: „Ætlar þú á bæjar- eða héraöshátíö á Vesturlandi í sumar?" Meíri- hlutinn, eba 58,3% ætlar ab skella sér á a.m.k. eina slíka, 18,2% höfðu ekki ákveðið það en 28% sögbust ekki ætla. Nœstu viku er spurt á skessuhorn.is: „Verbur sumariö gott á Vesturlandi í ár?" Svarabu skýrt og skorinort og án allra undanbragba á frétta- vefnum: www.skessuhorn.is Vestlendirujwr viMnnar Ab þessu sinni er Vestlendingur vikunnar Alexandra Ger- aimova, ung stúlka í Grundar- firbi sem gerði sér lítið fyrir ný- lega og sigrabi upplestrar- keppni grunnskólanna á Snæ- fellsnesi. Þetta er merkilegur árangur fyrir þær sakir ab hún hefur einungis búib í 2 ár á ís- landi. Byggt við leikskólann í Grundarfirði Á síðasta fundi bæjarstjórnar verið um málið enda varð það til ans var samþykkt með fimm at- Grundarfjarðar var samþykkt að þess að það slitnaði upp úr meiri- kvæðum en fulltrúar Framsóknar- hefja ffamkvæmdir við viðbygg- hlutasamstarfi Sjálfstæðisflokks og flokksins sátu hjá. ingu og endurbætur núverandi Framsóknarflokks í síðasta mán- GE Vörubílar voru strax í róðum eftir olíu. Ljósmynd: Eiríkur Kristófersson. Adantsolía opnar á Akranesi Síðastliðinn mánudag hóf Atl- antsolía díselolíusölu á Akranesi. Um er að ræða sölu af sjálfsaf- greiðslutanki sem staðsettur er við höfnina. Opnun tanksins markar tímamót fyrir Atlantsolíu þar sem hann er fyrsta skref fyrirtækisins í sjálfsafgreiðsluþjónustu á Vestur- landi. „Á sama hátt lýkur yfir 40 ára sögu þar sem einungis þrjú ol- íufélög kepptu sín á milli í fjórð- ungnum,“ eins og segir í tilkynn- ingu frá Atlantsolíu. MM Bókanir SSV Á stjómarfundi Samtaka sveitar- félaga á Vesturlandi þann 13. apríl síðastliðinn var samþykkt bókun þess efnis að stjórn SSV fagnar lækkun gjalds í Hvalfjarðargöngin og telur að um sé að ræða mikil- vægt hagsmunamál fyrir íbúa svæðisins. I bókuninni segir m.a: „Bent skal á að nauðsynlegt er, ferðaþjónustunnar vegna, að gjald fyrir stakar ferðir lækki einnig." Landbúnaðarstofiiun Á fundinum var einnig samþykkt ályktun þar sem stjórn SSV fagnar frumvarpi landbúnaðarráðherra um Landbúnaðarstofnun. I álykt- uninni segir: „Stjórnin minnir á að á Hvanneyri í Borgarfirði slær hjarta íslensks landbúnaðar og tel- ur augljóst að hin nýja landbúnað- arstofnun verði staðsett þar í sam- býli við Landbúnaðarháskóla Is- lands og margar aðrar fagstofnanir landbúnaðarins. Það yrði því mik- ill akkur fyrir Landbúnaðarháskóla Islands og það háskólasamfélag sem starffækt er á Hvanneyri að fá stofnun sem þessa á staðinn." GE Dr. Grétar Þór Eyþórsson á Bifröst Viðskiptaháskólinn hefur ráðið Dr. Grétar Þór Eyþórsson sem forstöðumann Rannsóknarmið- stöðvar Viðskiptaháskólans á Bif- röst frá og með 1. ágúst, hann mun jafnframt verða fastráðinn kennari við nýstofnaða Félagsvís- inda- og hagfræðideild skólans. Grétar er núverandi forstöðu- maður Rannsóknarstofnunar Há- skólans á Akureyri og Byggða- rannsóknastofnunar Islands og hefur gengt þeim störfum síðan 2001. Sem forstöðumaður Rannsókn- armiðstöðvar Viðskiptaháskólans mun hlutverk Grétars verða að byggja upp rannsóknastarf m.a. á sviði sveitarstjórnar- og byggða- mála, afla rannsóknastyrkja og sinna tengslum við atvinnulíf og opinbera aðila. Auk þess mun hann sinna kennslu við félagsvís- inda- og hagfræðideild skólans. Grétar lauk doktorsprófi í stjórnmála- og stjórnsýsluffæðum frá Háskólanum í Gautaborg í Sví- þjóð árið 1999 og fjallaði doktors- ritgerð hans um sameiningu sveit- arfélaga á Islandi. I rannsóknum sínum hefur Grétar einkum ein- beitt sér að sveitarstjórnarmálum, auk samgöngumála. Grétar situr í fjölda nefnda og Grétar Þór Eyþórsson. ráða sem tengjast sérhæfingu hans. Hann gegnir m.a. formennsku í verkefnastjórn um rannsóknir á samfélagsáhrifum stóriðju- og virkjanaframkvæmda á Austur- landi, situr í stjórn norrænu rann- sóknastofnunarinnar í byggða- og svæðaskipulagsmálum, Nordregio. Grétar hefur komið að fjölda bóka og skýrslna má þar nefna bækurn- ar: Sameining sveitarfélaga. Áhrif og afleiðingar, Fólk og fyrirtæki og er einn höfunda nýlega útkominn- ar bókar, Future Challenges to Small Municipalities. I starfi sýnu við RHA hefur Grétar að auki komið að verkefhum á borð við: - Sameiningu sveitarfélaga á Vesturlandi. - Eyfirðingar í eina sæng? Mat á áhrifum sameiningar allra sveitar- félaga í Eyjafirði í eitt - Athugun á áhrifum Hvalfjarð- arganga. - Samfélagsáhrif Héðinsfjarðar- ganga. - Háskólamenntun og búseta. Áhrif menntunarstaðar á búsetu- val. Kveðjumessur BÚÐARDALUR: Um síðustu mánaðarmót voru sameinuð Hjarðarholtsprestakall og Hvammsprestakall í Dölum. Urðu þá starfslok séra Ingi- bergs J Hannessonar prófasts sem lét af störfum vegna aldurs, en hann gegnir engu að síður prestsembætti við fjórar sóknir út maí og heldur þessar vikurn- ar fermingar og kveðjumessur fyrir söfnuð sinn. Oskar Ingi Ingason sóknarprestur í Hjarð- arholtsprestakalli mun taka við hans prestaköllum og mun þjóna í alls átta prestaköllum eða öllum nema einu, en það er Staðarhólsprestakall. Fer það undir Reykhólaprestakall. - sjök Dregur til tíðinda BORGARFJÖRÐUR: Næst- komandi laugardag, 23. apríl, ganga íbúar Borgarbyggðar, Borgarfjarðarsveitar, Hvítár- síðuhrepps, Kolbeinsstaða- hrepps og Skorradalshrepps til kosninga sem skera úr um það hvort sveitarfélögin fimm verða sameinuð frá og með næstu sveitarstjórnarkosningum, vor- ið 2006. -mm Skóli á grænni grein AKRANES: Brekkubæjarskóli hefur fengið samþykkta um- sókn sína um að teljast til Grænfánaverkefnis Landvernd- ar. „Skólar á grænni grein“ er alþjóðlegt verkefni til að auka umhverfismennt og styrkja um- hverfisstefhu í skólum. Græn- fáninn er umhverfismerki sem nýtur virðingar víða um Evr- ópu. Til að fá að flagga Græn- fánanum þarf skólinn að vinna ákveðin verkefhi sem efla vit- und nemenda, kennara og ann- arra starfsmanna skólans um umhverfismál. Verkefnin auka þekkingu nemenda og skóla- fólks og leggja grunn að því að tekin sé ábyrg afstaða og inn- leiddar raunhæfar aðgerðir í umhverfismálum skóla. Leitað er liðsinnis foreldra til að upp- fylla skilyrði Grænfánans. Heiðrún Janusardóttir hefur leitt verkefnið fyrir hönd skól- ans. -mm Gámastöðvar í dreifbýlið BORGARBYGGÐ: Á síðasta fundi bæjarstjórnar Borgar- byggðar lagði Finnbogi Leifs- son, bæjarfhlltrúi Framsóknar- flokks ffam tillögu þess efnis að hafin yrði uppbygging á 5 - 7 gámastöðvum í dreifbýli sveit- arfélagsins. Miðað skyldi við að framkvæmdum yrði lokið vorið 2006. Ekki er gert ráð fyrir að starfs- menn verði í móttöku á gáma- stoðvunum heldur verði um að ræða afinörkuð plön með gám- um undir mismundandi gerðír af úrgangi í stað stakra gáma eins og staðan er í dag. Tillögu Finnboga var vísað til bæjarráðs Borgarbyggðar til frekari af- greiðslu. -ge Söngfuglar af Vesturlandi VESTURLAND: Síðastliðinn laugardag fór fram árleg söng- keppni Félags ffamhaldsskóla- nema, að þessu sinni á Akur- eyri. Hópur fólks, bæði frá FVA og FSN, fylgdu fulltrúum þess- ara skóla til Akureyrar og voru þau okkur Vestlendingum til mikils sóma. Rakel Pálsdóttir ffá FVA söng lagið „Kadý,“ sem er íslenskun ömmu Rakelar, Sigrúnar Olafsdóttur á laginu „Kate“. Sigurbjörg Eva Stef- ánsdóttir, frá FSN söng lagið „Ekkert breytir því,“ lag Sálar- innar hans Jóns míns. Þrátt fyr- ir stórgóða frammistöðu hjá stúlkunum komst hvorug þeirra í verðlaunasæti. -þgb

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.