Skessuhorn


Skessuhorn - 20.04.2005, Síða 7

Skessuhorn - 20.04.2005, Síða 7
giagssfflwefiiíj MIÐVIKUDAGUR 20. APRIL 2005 7 Mokveiði í netaralli Senn líður að því að fæðingar- orlofi þorsksins á Breiðafirði ljúki. Eftir 21. apríl má búast við því að meira líf færist í starfsem- ina hjá þeim sjómönnum sem hafa viðurværi sitt af innfjarðar- veiðum. Þórsnes II sem var á netaralli á vegum Haffó á Faxa- flóa lenti í ævintýralegu fiskiríi undir það síðasta í rallinu. Þórs- nesið var með 9 trossur vestur af Sandgerði. Eftir að hafa dregið 5 trossur voru öll kör orðin full þannig að siglt var í land í Sand- gerði með 25 tonn, síðan var haldið út á nýjan leik til að sækja þær trossur sem eftir voru í þeim reyndust 25 tonn til viðbótar. Eftir að hafa lagt 6 trossur á ný var haldið til hafnar í Sandgerði. Eftir nokkra hvíld voru síðan trossurnar 6 sóttar og í þeim reyndust um 20 tonn en þar sem rallinu var lokið var þeim afla landað í Stykkishólmi. Þórsnesið hafði þá landað 70 tonnum á tveimur sólahringum. Aflaskipting hafnanna á Snæ- fellsnesi var þannig í síðustu viku: I Stykkishólmi lönduðu Arnar og Þórsnes II. samtals 54 tonnum, í Grundarfirði var aflinn eftir vik- una 508 tonn en það var að stærstum hluta afli 6 togskipa sem lönduðu 455 tonnum, þá landaði netabáturinn Sæþór EA 41 tonni. I Olafsvík var heildar- afli í síðustu viku 48 tonn þar af lönduðu 8 línubátar 28 tonnum. þá landaði Arnar þar 13 tonnum úr netarallinu. I Rifi var landað samtals 253 tonnum, þar af 9 línuskipa og báta 193 tonn. Tveir netabátar lönduðu þar 36 tonn- um. www.ruv.is/ Gunnar Kr. Afinæli Slökkviliðs Akraness Félag slökkviliðsmanna á Akra- nesi hélt upp á 70 ára afmæli fé- lagsins um síðustu helgi. Á föstu- deginum var opið hús í slökkvi- stöðinni við Kalmansvelli 2. Sýnd- ur var búnaður og tekin voru í notkun 5 ný reykköfunartæki og reykköfun sýnd af því tilefni. Þetta er fyrsta hlutastarfandi slökkvilið landsins sem tekur í notkun nýja gerð fiber kúta sem létta mjög vinnuna við æfingar og slökkvi- störf. Þá voru einnig teknar í notk- un nýjar talstöðvar sem fylgja munu reykköfunarmönnum ásamt öðrum öryggisbúnaði sem auð- veldar fjarskipti við erfiðar aðstæð- ur. Slökkvilið höfuðborgarsvæðis- ins gaf Slökkviliði Akraness nýjan Tetra síma sem nýtist einnig vel við björgunarstörfin. A opnu húsi tóku þátt í dag- skránni lögreglan á Akranesi, Björgunarfélagið og sjúkraflutn- ingamenn. Mikill fjöldi fólks skoð- Ján Sólmundarson útbjó þennan forláta brunahana í tilefhi dagsins til að sinna öórum skyldum m brunahanar óllujafn- an gera. Hérfier smiðurinn sér einn létt- an afkrana. aði aðstöðuna og kynnti sér starf- semina þennan dag þrátt fyrir leið- indaveður. Slökkviliðið tók þátt í stóru Hvalfjarðarganga æfingunni sem fram fór á laugardeginum en eftir að henni lauk var afhjúpað nýtt ljósamerki Slökkviliðs Akraness sem komið hefur verið fýrir fram- an Slökkvistöðina. Það smíðaði Helga Jónsdóttir, slökkviliðsmað- ur. Við það tækifæri sýndu menn að þeir kynnu að slökkva annað en elda, því slegið var á þorstann við afhjúpunina og í tilefhi afmælisins. Um kvöldið var haldið afmælis- hóf þar sem þeir Jóhannes Karl Engilbertsson, fv. slökkviliðsstjóri og Pétur Elísson, fv. slökkviliðs- maður voru heiðraðir. Hin aldna kempa Guðjón Bjarnason færði Slökkviliðinu að gjöf innrammað erindisbréf frá því hann var upp- haflega skipaður í Slökkvilið Akra- ness fljótlega eftir að það var stofnað, en Guðjón starfaði í slökkviliðinu allar götur þar til hann varð sjötugur. Hann er nú á tíræðisaldri. MM/ Ljósm: Hilmar. Lyft glasi í tilefni afmœlisins. Slökkviliðsmenn við Ijósamerkið sem Helga Jónsdóttir, slökkviliðsmaður smíðaði. |J Lífeyrissjóður Vesturlands I Meginniðurstöður ■j ársreiknings lífeyrissjóðsins Yfirlit um breytingu á hreinni eign til greiðslu lífeyris , 2004 I þús. kr. Fjárfestingartekjur, nettó ........................................................................ 1.514.372 Iðgjöld ............................................................................................ 555.001 Lífeyrir ........................................................................................ (324.806) Fjárfestingargjöld ......................................................................■.... (17.242) Rekstrarkostnaður.............................................................................. (15.566) Hækkun á hreinni eign á árinu: 1.711.758 Hrein eign frá fyrra ári: 9.583.301 Hrein eign í árslok til greiðslu lífeyris: 11.295.059 Efnahagsreikningur 4.384 .............. 302.224 Fjárfestingar: 11.093.360 Annað: Kröfur á viðskiptamenn. Aðrareignir .......... Viðskiptaskuldir ..... Annað: 159.623 44.870 (2.794) 201.699 Hrein eign til greiðslu lífeyris: 11.295.059 Ýmsar kennitðlur Raunávöxtun ......................................... Hrein raunávöxtun (að teknu tilliti til rekstrarkostnaðar). Hrein raunávöxtun, meðaltal síðustu fimm ára ........ Hrein raunávöxtun, meðaltal síðustu tíu ára ......... Hrein eign umfram heildarskuldbindingar.............. Hrein eign umfram áfallnar skuldbindingar............ Lífeyrir sem hlutfall af iðgjöldum................... Kostnaður sem hlutfall af eignum .................... Stöðugildi .......................................... Raunávöxtun séreignardeildar......................... Hrein raunávöxtun séreignardeildar................... Akranesi, 7. mars 2004 Stjórn Lífeyrissjóðs Vesturlands: Stefán Reynir Kristinsson Einar Karlsson Kristján Jóhannsson Þórarinn Helgason Gylfi Jónasson framkvæmdastjóri , 2003 I þús. kr. 1.152.582 502.434 (303.442) (15.445) (13.973) 1.322.156 8.261.145 9.583.301 Fjárfestingar: Verðbréf með breytilegum tekjum........................................................ 2.816.359 Verðbréf með föstum tekjum............................................................. 7.970.393 Veðlán................................................................................. Bundin innlán.......................................................................... 2.339.099 6.795.521 10.001 283.515 9.428.136 102.602 55.077 (2.514) 155.165 9.583.301 11,13% 10,61% 10,97% 10,44% 3,26% 4,16% 6,29% 5,91% -2,10% -2,60% 7,10% 4,40% 58,52% 60,39% 0,15% 0,16% 2,9 2,7 5,66% 9,61% 5,23% 8,94% Ellert Kristinsson Bergþór Guðmundsson Ársfundur Lífeyrissjóðs Vesturlands verður haldinn fimmtudaginn 12. maí nk. kl: 14:00 að Kirkjubraut 40, 3. hæð, Akranesi

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.