Skessuhorn - 20.04.2005, Page 11
■ ..MMIH..;- :
MIÐVIKUDAGUR 20. APRIL 2005
11
Hópurinn sem þátt tók í námskeióinu.
Auglýsing um
deiliskipulag á Akranesi
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi
í Klasa 5-6 á Akranesi
Með vísan til 1. málsgr., 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 er hér
með auglýst eftir athugasemdmn við tillögu að deiliskipulagsbreytingu Holts-,
Haga- og Hólmaflatar í klasa 5-6 á Akranesi.
Akraneskaupstaður
1
Á slóðum Egils
Fyrir stuttu lauk 12 stunda nám-
skeiði í Eigilssögu sem hófst í nóv-
ember. Námskeiðið var samstarfs-
verkefni Símenntunarmiðstöðvar-
innar á Vesturlandi, Landsnámsset-
urs og Snorrastofa og var kennt til
skiptis á heimaslóðum Snorra
Sturlusonar í Reykholti og á slóð-
um Egils í Borgarnesi. Fyrirlesarar
á námskeiðinu voru Snorri Þor-
steinsson, Páll Bergþórsson, Baldur
Hafstað, Finnur Torfi Hjörleifsson,
Örnólfur Thorsson og sr. Geir
Waage og voru þátttakendur um
mttugu og fimm manns af öllu
Vesturlandi.
Bergur Þorgeirsson, forstöðu-
maður Snorrastofu, segir að þar
sem námskeiðið hafi verið mjög vel
heppnað og áhugi fýrir því mælst
mikill verði framhald á næsta vemr
og verið er að leggja línurnar fyrir
námskeið með sama sniði. Komið
hefur til tals að setja á laggirnar
námskeið um Smrlungu, Land-
námsbók og Islendingabók eða
hreinlega vera með annað Egils-
sögunámskeið. „Á þessu námskeiði
vorum við með nýjan fyrirlesara í
hvert skipti sem hópurinn hittist,
sem ég held að sé lykillinn að því
hversu vel það lukkaðist. Við mun-
um halda þessu fyrirkomulagi á
námskeiðum næsta vetur enda
fengur að því að ná mörgum og ó-
líkum sjónarhomum fram,“ segir
Bergur.
Pílgagrímsferð til York
I tengslum við námskeiðið hélt
hópur manna á slóðir Egils Skalla-
grímssonar á Bretlandseyjum og
dvöldu í York í fjóra daga í lok
mars. I York kynnti hópurinn sér
söfii og sögustaði og var heimsókn
á Víkingasetrið Jorvik hápunktur
ferðarinnar. Einnig höfðu píla-
grímamir viðkomu í The Minnst-
er, dómkirkjunni í York þar sem
sett hefur verið upp sögusýning í
kjallaranum og gamli miðbærinn
innan borgarmúranna var þræddur.
A heimleið var svo gerður stuttur
stans í Royal Albert Hall til að
rækta Islendinginn í sér enn frekar
með því að skella sér á tónleika
Stuðmanna sem ffam fóm í þessu
mikla tónlistarhúsi að kvöldi skír-
dags, 24. mars. Kjartan Ragnars-
son, forstöðumaður Landnámsset-
urs, var leiðsögumaður í ferðinni.
ALS
, *' 'v V/ >, ^
’v'
IgjfsgStÍÉS
■m
Gamla mjólkur-
samlagið og Chaplin
í kvöld, miðvikudagskvöld, verð-
ur haldinn opinn fundur í Gamla
Mjólkursamlaginu við Skúlagötu í
Borgarnesi. Til fundarins er boðað
af óformlegum hópi sem kallar sig
Hollvinir Gamla Mjólkursamlags-
ins og er tilgangur hans að fjalla um
möguleika á að varðveita húsið og
finna því hlutverk til frambúðar.
Framsöguerindi flytja: Pétur H.
Armannsson arkitekt, varaformað-
ur Húsafriðunarnefndar ríkisins og
forstöðumaður Byggingalistadeild-
ar Listasafns Reykjavíkur. Fjallar
hann um fagurffæðilegt gildi húss-
ins og mikilvægi þess sem eitt af
fáum effirstandandi iðnaðarhúsum
efrir Guðjón Samúelsson. Sigríður
Björk Jónsdóttir, byggingalistffæð-
ingtu- fjallar um húsið í sínu nán-
asta umhverfi; sögulegt og menn-
ingarlegt hlutverk. Stefán Ólafs-
son, húsasmíðameistari flytur er-
indið „Ekkert hús er ónýtt“ og
Gísli Einarsson, frétta- og athafna-
maður fjallar um framtíðar notkun-
armöguleika hússins. I ffamhaldi
verður boðið upp á umræður en
efrir fundinn mun svo hljómsveitin
Chaplin leika nokkur lög í Búðar-
kletti. Allir eru velkomnir.
(Fréttatilkynningfrá Hollvinum
Gamla Mjólkursamlagsins)
Breytingin felst m.a. í að stærð byggingarreita stækkar úr 16x 16mí 16x 18má lóðunum
nr. 1,3 og 5 við Hagaflöt og lóðunumnr. 1,2, 3,4, 5, 6 og 10 við Hólmaflöt. Byggingarreitur
lóðarinnar nr. 7 við Hólmaflöt stækkur Úrl6xl6míl7xl9m. Þá stækkar byggingarreitur
lóðarinnar nr. 8 við Hólmaflöt úr 16x 16mí 18x 19 m. Byggingarreitur lóðarinnar nr.
2 við Holtsflöt stækkar Úrl6xl6míl8xl8m. Breidd gangstétta breytist almennt úr
l. 8 m í 2.0 m. Breidd akbrauta verður óbreytt en aðliggjandi lóðadýpt minnkar um 0.2
m. Lóðamörk lóðanna nr. 2 og 4 við Holtsflöt breytast þannig að lóðirnar stækka lítillega.
I Lögun gangstígs milli lóðanna nr. 4 og 6 við Holtsflöt er breytt. Lóðin nr. 5 við Hagaflöt
5 er lítillega skert vegna breyttrar legu gangstígs. A lóðunum nr. 2,4,6,8 og 10 er bindandi
í byggingarlína felld niður.
s Tillagan, ásamt frekari upplýsingum, liggur frammi á skrifstofu tækni- og umhverfissviðs
að Dalbraut 8, Akranesi, frá 20. apríl. 2005 til og með 20. maí. 2005.
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með geflnn kostur á að gera skriflegar
athugasemdir. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 3. júní 2005 og skulu þær
berast á bæjarskrifstofur Akraneskaupstaðar, Stillholti 16-18, 3. hæð.
Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna innan tilskilins
frests teljast samþykkir henni.
Akranesi 13. apríl. 2005,
Sviðsstjóri tœkni- og umhverfissviðs Akraneskaupstaðar
L. ................. ....................... ...................-...................
Bónus vantar
starfsfólk
Opnum nýja og glæsilega verslun í Borgarnesi í
lok maí. Þurfum þess vegna að bæta
við okkur fólki sem fyrst.
Starfsmaður í vörumóttöku:
Vinnutínii u.þ.b. 8 til 15 og líklega annan hvern laugardag eóa
þriðju hverja helgi.
Starfsmaður í áfyllingar og öll almenn
verslunarstörf:
Vinnutími: Samkomulag vió verslunarstjóra.
Starfsmaður á kassa:
Vinnutími frá u.þ.b. 11.30 til 19.15 eða samkomulag vió
verslunarstjóra.
(Jpplýsingar gefur Stefán verslunarstjóri í verslun Bónus
í Borgarnesi frá og með 22. apríl. Umsóknum má skila
í verslunina eða inn á www.bonus.is