Skessuhorn - 20.04.2005, Page 24
<r
Ngtt og öflugt
i Otf i til íbúöakaupa
íbúðalán.is
www.ibudalan.is
PÓSTURINN
n
lL j|
1 w rw I
Mf\
10
Borgfirsk laxaseiði örmerkt
til að kanna uppeldissldlyrði
í síðustu viku var hleypt af stokk-
unum á Laxeyri í Borgarfirði um-
fangsmesta rannsóknarverkefni á
vegum Veiðimálastofnunar til þessa.
Verkefnið sem kostar 70 - 80 millj-
ónir króna felst í merkingu laxaseiða
en þetta er í fyrsta sinn sem göngu-
seiði eru merkt með síritandi mæli-
merkjtun að sögn Sigurðar Más
Einarssonar hjá Veiðimálastofhun í
Borgarfirði. Mælimerkin skrá í sig
dýpi og hitastig á ákveðnu tímabili
og þannig má sjá við hvaða hitafar
og dýpi laxinn heldur sig í sjónum.
Eftir sjávardvöl í eitt eða tvö ár
gengur laxinn aftur til heimkynna.
sinna og þá þarf að endurheimta
merkið úr fiskinum. Með því að
bera saman slíkar upplýsingar um
hitafar og dýpi við yfirborðshita-
mælingar í sjó frá gervitunglum, má
kortleggja á hvaða hafssvæði laxinn
heldur sig á mismunandi tímum,
enda er laxinn uppsjávarfiskur.
Mælimerkin eru ný framleiðsluaf-
urð Stjömu Odda (DST micro).
Fyrirtækið hefur þróað merkin m.a.
í samvinnu við Veiðimálastofrum og
er nú í fyrsta sinn unnt að merkja
niðurgönguseiði laxa með slíkum
merkjum. Notuð verða eldisseiði til
merkinganna þar eð merkin era enn
of stór fýrir þorra náttúrulegra
seiða.
Kveikjan að þessu verkefhi er að
stærð laxastofiia Atlantshafslaxins
hefur sífellt farið minnkandi undan-
fama áratugi. Astæður eru taldar
vera þær að búsvæði hafa horfið,
mengun hefur átt sér stað, fiskeldi
hefur haft áhrif og aukin þéttbýlis-
myndun. Auk þess hafa rannsóknir
Ingi Rúnar Jónsson fiskifrœðingur viS
merkingar iruelimerktra laxaseiða.
leitt í ljós aukin afföll laxa á dvalar-
tíma þeirra í sjó, sérstaklega sunnar-
lega í Evrópu og í Norður Ameríku.
,Á Islandi hefur ekki orðið vart
við sambærilega minnkun í stofh-
stærð, en tilfinnanleg fækkun hefur
þó orðið hjá laxi sem dvelur 2 ár í
sjó. Þetta hefur gerst í veiðiánum
okkar um allt land, en sá lax er mik-
ilvægur bæði fýrir veiðina og hrygn-
inguna í ánum. Þessi þróun hófst
um miðjan síðasta áratug og enn sér
ekki fýrir endann á þessari lægð. Það
vantar tilfinnanlega þekkingu á far-
leiðum og búsvæðvun laxa í sjó sem
skýrt geta þessa hnignun og er þessi
þekkingarskortur þröskuldur skyn-
samlegrar nýtingar á tegundinni,“
segir Sigurður Már.
Merkingar laxaseiðanna eru unn-
ar í samvinnu við fiskeldisstöðina
Laxeyri í Borgarfirði. Merkt eru
þrjúhundruð seiði og verður þeim
sleppt í vor í Kiðafellsá við sunnan-
verðan Hvalfjörð sem Veiðimála-
stofnun hefur tekið á leigu vegna
verkefnisins. GE
Meirihluti í Grundarfirði, en þó ekki
í upphafi síðasta fundar bæjar-
stjórnar Grundarfjarðar síðastlið-
inn föstudag gerði forseti bæjar-
stjór, Sigríður Finsen, grein fýrir
því að samkomulag hefði náðst um
áframhaldandi meirihlutasamstarf
Framsóknarflokks og Sjálfstæðis-
flokks. I samtali við Skessuhorn á
þriðjudag sagði Gísli Olafsson,
annar bæjarfulltrúa Framsóknar-
manna hinsvegar að í raun og veru
lægi formlegt samkomulag ekki
fýrir. „Það var ákveðið að menn
kæmu óbundnir til fundarins á
föstudag þar sem leikskólamálið
var tekið fýrir. Eftir bæjarstjórnar-
fund átti síðan að ræða um áfram-
haldandi meirihlutasamstarf en
það var ekki gert. Fyrir bæjar-
stjórnarfundinn lögðum við fram
ákveðið tilboð til Sjálfstæðismanna
sem þeir höfnuðu og við höfum
ekki tekið afstöðu til framhaldsins.
Leikskólamálið er frá og þótt
flokkana hafi greint á um það eru
mörg önnur stórmál framundan
sem vont er að fara í meirihluta-
laust,“ segir Gísli.
Ekki náðist í Sigríði Finsen,
oddvita sjálfstæðismanna, sem er
erlendis. Hún er væntanleg til
landsins í lok vikunnar og liggur
fýrir að ekki verður gengið frá
formlegu meirihlutasamkomulagi
fýrr en í fýrsta lagi á föstudag.
GE
Breytt götumynd
Nei, ekki er nú svo mikið byggt á Akranesi að ekki rúmist ný hús í hienum nema á gömhim götum úti, þó annað mœtti <etla afþess-
ari mynd af reisulegum bústað á miðri Vesturgötunni. Ætli ekki sé verið að rúnta með bústaðinn upp í sveit þar sem einhver nýbak-
aður og kátur sumarbústaðareigandi ætlar að njóta hins íslenska sumars á veröndinni með grilltöngina í brjóstvasanum. als
Á
,v
Síðasti vetrardagur!
WBg/n
Stórdansleikur með hljómsveit
S Ttv s
a
miðvikudagskvöldið 20. apríl
kl 11:00 - 03:00
Lionsklúbbur Borgarness
i