Skessuhorn - 22.06.2005, Side 1
Virka daga 10-19
Laugard. 10-18
Sunnud. 12-18
nettö
alltaf gott - alltaf ódýrt
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI
24. tbl. 8. árg. 22. júní 2005 - Kr. 300 í lausasölu
Alvarlegt
umferðarslys
við Varmalæk
Ungur maður úr Borgarfirði slasaðist alvar-
lega þegar hann ók bíl sínum útaf og velti á
Borgarfjarðarbraut skammt ffá Varmalæk í Bæj-
arsveit um miðnætti að kvöldi 17. júní. Öku-
maðurinn var einn í bílnum og kastaðist út úr
honum. Hann var fluttur með sjúkrabifreið á
Landspítala-háskólasjúkrahús í Reykjavík. Ungi
maðurinn er alvarlega slasaður en er ekki í lífs-
hættu og síðustu fregnir herma að hann sé laus
af gjörgæslu.
MM
Sofið úr sér
ásdllans
Nokkur ölvun var sl. fimmtudagskvöld og að-
fararnótt þjóðhátíðardagsins í Ólafsvík í tengsl-
um við dansleik sem þar fór fram. Að sögn Ólafs
Jónssonar, lögregluþjóns fór allt þó þokkalega
fram. Ein líkainsárás var á dansleiknum þar sem
maður var sleginn í höfuðið með flösku svo
sauma þurfti í hann nokkur spor. Eitt smáslys
varð auk þess á tjaldsvæði bæjarins þegar stúlka
datt á höfuðið í skurð og þurfti af þeim sökum
einnig að fá smá saumaskap hjá þeim hvít-
klæddu. Ungur maður lagði sig til svefns í still-
ans við hús í bænum effir dansleikinn um nótt-
ina og höfðu menn áhyggjur af því þegar hann
vaknaði eða bylti sér, myndi hann falla til jarð-
ar. Slökkvistjórinn var til öryggis kallaður út og
tókst með aðstoð lögreglu að koma manninum
niður áður en illa fór. Að sögn Ólafs lögreglu-
þjóns var mikil umferð á Snæfellsnesi um helg-
ina og gekk hún að mestu áfallalaust fyrir sig.
Þó voru nokkrir ökumenn stöðvaðir fyrir að aka
of greitt. MM
Sjúkraflug tíl
Gmndartjarðar
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti hjartveikan
sjúkling til Grundarfjarðar um miðjan dag í gær.
Þyrlan TF-LIF var við æfingar á Breiðafirði er
útkallið barst og var því skamma stunda að sækja
sjúklinginn og flytja hann til Reykjavíkur.
MM
ATLANTSOLIA
Dísel *Faxabraut 9.
■ •• /lll| wr 1 WffrT VI
æBÍ 11 ML'" V .-•■'• V r
Hr -■-—-
Hvað erfegurra en íslensk œska við leik á sjálfan þjóðhátíóardaginn? Myndin erfrá 1 l.júní hátíðarhöldum í Borgamesi um liðna helgi. Sjá svipmyndir víða af
Vesturlandi í miðopnu. Ljósm. HSS
Hrikaleg slysahelgi kallar á aukið eftirlit
Nýliðin helgi var hrikaleg
hér á landi með tilliti til um-
ferðarslysa og fjölda óhappa.
Um langa ferðahelgi var að
ræða þar sem þjóðhátíðardag-
inn bar upp á föstudag og því
margir á faraldsfæti. Fyrstu al-
varlegu tíðindin bárust norðan
úr Öxnadal aðfararnótt 17.
júní þar sem tveir ungir piltar
létust og sá þriðji liggur alvar-
lega slasaður á sjúkrahúsi eftir
hörmulegt slys. Banaslys varð í
Reykjavík og alvarlegt umferð-
arslys í Borgarfirði þar sem
ungur maður slasaðist illa í bíl-
veltu. Fregnir af fjöldanum
öllum af óhöppum í umferð-
inni með og án slysa bárust
síðan nær linnulaust í fjölmiðl-
um alla helgina, þannig að
mörgum þótti nóg um.
Fjölmiðlafólk, sem stóð
fréttavaktir fjölmiðlanna um
helgina, var ötult að færa frétt-
ir af óhöppunum og líðan
fórnarlamba þessara slysa eftir
því sem þær upplýsingar lágu
fyrir. Ætla mætti að slík tíðindi
vektu fólk til umhugsunar og
hægði t.d. á ökuhraða og yki
tillitssemi vegfarenda í um-
ferðinni, en svo virðist ekki
hafa verið raunin. Þrátt fyrir
hið hörmulega slys í Öxnadal
voru t.d. skv. fréttum um 60
ökumenn kærðir fýrir of hrað-
an akstur í umdæmi Lögregl-
unnar á Akureyri um helgina
og margir einmitt í Öxnadal.
Fréttir af hraðakstri bárust
víðar af landinu, frá lögregl-
unni á Blönduósi, Selfossi,
Borgarnesi, Ólafsvík og víðar.
Þannig var t.d. hátt á þriðja
tug ökumanna sektaður fyrir
of hraðann akstur í umdæmi
Borgarneslögreglu eingöngu.
Víða um land var haft eftir
lögreglu að tillitsleysið hafi
stundum verið algjört í um-
ferðinni, tekið hafi verið fram
úr þar sem það sé óheimilt og
beinlínis stórhættulegt og ekið
langt yfir leyfilegan hámarks-
hraða og á engan hátt í takt við
aðstæður. Menn voru að mæl-
ast á ökuhraða, raunar ofsa-
hraða, eða allt upp í 160 km. á
klukkustund.
Sá sem þetta ritar átti í
tvígang um liðna helgi leið um
Borgarfjörð og varð vitni af
aksturslagi ökumanna þar sem
á engan hátt var ekið í sam-
ræmi við aðstæður. Þátttaka í
þeirri umferð var miklu líkari
rússneskri rúllettu fremur en
eðlilegum sunnudagsbíltúr
með fjölskylduna.
Ljóst er að stórherða þarf
umferðareftirlit víða um land
og e.t.v. ekki hvað síst í Borg-
arfirði þar sem umferð er mun
meiri en vegakerfið í raun býð-
ur upp á. Gera verður ráð fyr-
ir að sumir ökumenn láti væn-
ar fjársektir að kenningu
verða. Beita þarf sektum á þá
ökumenn sem þverbrjóta um-
ferðarreglur og í mörgum til-
fellum að banna ákveðnum
ökumönnum að draga tengi-
vagna sem oft mætti fremur
kalla hús á hjólum og þeir ráða
alls ekki við að draga á eftir
sér. Saman verðum við öll, sem
hættum okkur út í slíka um-
ferð, að aðstoða lögreglu við
störf sín og taka höndum sam-
an um að bæta umferðarmenn-
inguna, því annars verður
slysaaldan eins og um liðna
helgi einungis forsmekkurinn
að skelfilegu slysasumri.
MM
Tilfaoðsverð 1286
Tilboðsverð
Veró áður 159
afsláttur á kassa
Verð áður 639 kr/kg
atslattur a kassa
Verð áður 1864 kr/kg J
Lambaframhryggja- / /
sneiðar þurrkryddaöar V \
Grilisagaður
lambaframpartur Goði
vatnsmelónur
Tilboö 23 - 26. i
Verð ádur 219
Samkaup I u,n/ai
Hafnarfjöröur • Njarövík • ísafjöröur • Akureyri • Dalvik • Siglufjöröur • Olafsfjöröur • Húsavík • Egilsstaðir • Selfoss • Borgarnes • Blönduós • Skagaströnd • Bolungarvík