Skessuhorn - 22.06.2005, Page 12
12
MIÐVIKUDAGUR 22. JUNI 2005
^sunu^t:
Þjóðhátíð um bæi og sveitir
Það má með sanni segja að ís-
lendingar eigi ekki að venjast jafa
góðu veðri á þjóðhátíðardaginn og
raunin varð nú í ár. Búið var að spá
hinni hefðbundnu rigningu og því
kom góðviðrið skemmtilega á ó-
vart. Að venju var mikið um að vera
fyrir unga sem aldna um allt Vest-
urland. Ljósmyndarar: Helena
Guttormsdóttir, Eva Sumarliða-
dóttir, Hallgrímur S Sævarsson,
Hilmar Sigvaldason, Þóra Geirlaug
Bjartmarsdóttir og Pétur S Jó-
hannsson.
Borgames
I Borgarnesi var aðaldagskráin í
Skallagrímsgarði eins og tíðkast
hefur þar sem margt hæfileikafólkið
steig á svið og skemmti gestum og
gangandi. Má þar nefna ávarp fjall-
konu, sönghópana Silfurrefina og
Dralon flokkurinn, Ragnar Bjarna-
son sem tók lagið með Steinku Páls
úr Borgarnesi og systkinin KK og
Ellen Kristjánsdóttur tróðu upp.
Að venju var Kvenfélag Borgamess
með kaffisölu og myndaðist sann-
kölluð kaffihúsastemning í garðin-
um í góða veðrinu. Auk þess var
boðið upp á leiki og andlitsmáln-
ingu fyrir þau yngri.
Akranes
Morgunsund gefur gull í mund.
Dagskrá þjóðhátíðardagsins var
einstaklega memaðarfull á Akra-
nesi, en hún hófst í íþróttamiðstöð-
inni á Jaðarsbökkum þar sem sund-
laugin var opin. Skagamenn
skemmtu sér svo í góða veðrinu við
hátíðardagskrá á Akratorgi og við í-
þróttahúsið á Vesturgötu. Búið var
að breyta Garðalundi í allsherjar
skemmtigarð og því var hægt að
finna sér margt til skemmtunar í
skógrækdnni. Um kvöldið var boð-
ið upp á skemmtanir fyrir unga sem
aldna, en hljómsveitirnar Skíta-
mórall og Harmonikkuunnendur
Vesturlands sáu um stuðið.
Stykkishólmur
I Stykkishólmi voru bæjarbúar
hvattir til að taka þátt í samvinnu-
listaverki við gömlu slökkvistöðina
en það er nýbreytni. Hátíðardag-
skrá var í Hólmgarði þar sem flutt
var ávarp fjallkonu og atriði úr Litlu
hryllingsbúðinni ásamt fleiri
skemmtiatriðum. Kvenfélagið
Hringurinn stóð fyrir kaffisölu í
Safnaðarheimili kirkjunnar og
börnin léku sér í góða veðrinu við
grunnskólann.
GG
Logaland
Að venju var 17. júní haldinn há-
tíðlegur í uppsveitum Borgarfjarð-
ar. Söfnuðustu sveitungar saman í
Logalandi og var snæddur þar þjóð-
legur hádegisverður, hangikjöt með
tilheyrandi. Eftir borðhaldið flutti
fjallkonan ljóð eftir Guðmund
Böðvarsson, en að þessu sinni var
það Linda Björk Pálsdóttir sem var
í hlutverki fjallkonunnar en hún
gegnir öllu jafnan starfi sveitar-
stjóra Borgarfjarðarsveitar. Að því
loknu var öllum smalað út og var
þar farið í leiki; kapphlaup á milli
hjóna, sem eiginkonurnar unnu ör-
ugglega, reiptog og pokahlaup.
Einnig kom flugvélin góða og
dreifði karamellum yfir útisvæðið,
við mikinn fögnuð ungra sem ald-
inna.
ÞGB
Ólafsvík
Að venju var 17. júní haldinn há-
tíðlegur í Olafsvík. Skrúðganga frá
Iþróttahúsi Snæfellsbæjar hófst kl.
13:30 og var gengið að Þorgríms-
palli. Þar flutti fjallkonan Helga
Hilmarsdóttir hátíðarljóð og sr.
Ragnheiður Karitas Pétursdóttir
fór með guðsorð. Kristinn Jónas-
son bæjarstjóri Snæfellsbæjar flutti
góða ræðu og Kirkjukór Olafsvíkur
söng á milli atriða. Þá spilaði Val-
entina Kay nokkur lög á harmon-
ikku. Töffamaðtu" kom og sýndi
listir sínar við góðar undirtektir
barnanna og boðið var upp á ýmsar
þrautir fyrir yngri kynslóðina.
Tónleikar voru um kvöldið á
Þorgrímspalli þar sem hljómsveitin
Erotic funeral spilaði. Hið besta
veður var allan þjóðhátíðardaginn
og fjölmargir voru viðstaddir hátíð-
arhöldin.
Um daginn opnaði Aslaug Sig-
valdadóttir myndlistarmaður sýn-
ingu á verkum sínum í Pakkhúsinu
í Ölafsvík og nefnir hún sýninguna
Stórfiskur. Hún ber nafh með réttu
þar sem á öllum myndunum eru
fiskar og fólk við ýmsar aðstæður.
Sýningin er á vegum Lista- og
menningarnefndar Snæfellsbæjar.
psy
Grundarfj örður
Dagskrá þjóðhátíðardagsins var
með hefðbtmdnu sniði í Grundar-
firði. Heimamenn höfðu á orði að
fámennara hefði verið í bænum en
öllu jafhan sökum ferðalaga Grund-
firðinga enda margir sem lögðu
land undir fót í góða veðrinu. Opn-
uð var sýrúngin „Lífsbjörg þjóðar“ í
Eyrbyggju - sögumiðstöð og að
venju var hátíðardagskrá í Þríhyrn-
ingnum. Rósa Guðmundsdóttir
hélt hátíðarræðu, kvenfélagið var
með kökubasar og boðið var upp á
skemmtiatriði fyrir unga og aldna,
svo sem kassaklifur og ýmsa leiki.
Um kvöldið var svo diskótek í Þrí-
hymingi.
imU yr , *• ’w*
Jð| 1... W
L i k\ Wá