Skessuhorn - 22.06.2005, Side 17
MIÐVIKUDAGUR 22. JUNI 2005
17
Glaðbeittir ferðalangar veifa til Ijósmyndarans.
Hrafnistufólk í heimsókn
Laugardaginn 11. júní sl. var 160
manna hópur frá Hrafnistu á ferð á
Akranesi og víðar á Vesturlandi.
Ferðin var í boði Kiwanis hreyfing-
arinnar á Islandi og var þetta í 40.
skipti sem Kiwanis býður gamla
fólkinu í slíka ferð um landið.
Fyrstu árin sem Kiwanis menn
buðu í slíkar ferðir var farið á
einkabílum í lögreglu- og hjálpar-
sveitarfylgd, en núorðið er ferðast á
rútum. Ekið var um Hvalfjörð,
stoppað í Saurbæjarkirkju þar sem
Sr. Kristinn Jens Sigurþórsson tók
á móti hópnum. Síðan var farið á
Akranes, í skoðunarferð í boði
Kiwanis og loks þegið kaffi á
Barbró. Ferðin gekk í alla staði vel
og naut fullorðna fólkið veðurblíð-
unnar og fagurs útsýnis. MM
Hópurinn á leið inn í Hallgrímskirkju í Saurbte.
Ldgfótaflýr
Þegar Bjöm Theodórsson, starfsmaður Veiðimálastofnunar á Vesturlandi var áferð með-
fram Langá á Mýrum sl. fimmtudag varð á vegi hans rejur einn sem aðgangsharðar
kríur höfðu gert að harða hríð og var hann því áflótta undan þeim. Eflaust hefur mel-
rakkinn verið að geeða sér á eggjum eða ungum sem nógframhoð er afþessa dagana.
Nánar tiltekið er þessi mynd tekin milli Sólvangs og Brœðrasels. Ljósm: BT
Alft á hreiðri
Þessi myndarlega álft lá
á hreiðri á norðanverðu
Snæfellsnesi fyrir
skömmu. Þrátt fyrir að oft
verji þær hreiður sín með
miklum fyrirgangi leyfði
þessi ljósmyndara að
smella einni mynd í
hreiðrið þar sem fjögur
egg fóstruðu unga hennar.
Þrátt fyrir að álfrin virðist
róleg á myndinni þá fékk
ljósmyndari að heyra að
hans tími væri senn kom-
inn. Þá var líka vissara að forða sér
því „god morgen" ffá álft getur
hæglega þýtt síðasta rothöggið.
Viku síðar var þessi sami ljósmynd-
ari á ferð og viti menn, ungarnir
voru komnir í ljós og farnir að æfa
sund með foreldrum sínum.
Ljósm: GA
Islensldr búningar, tálgnn í
birld og kaffiboð
N.k. laugardag, þann 25. júní,
verður Handverksdagurinn 2005
haldinn hátíðlegur en markmiðið
með handverksdeginum er að
auka skilning og þekkingu al-
mennings á vinnu handverks- og
listiðnaðarfólks. I samfélagi sam-
tímans er einnig mikilvægt að
gamalli verkþekkingu og hand-
verki sé haldið við og það gleym-
ist ekki. Það eru margir, karlar
sem konur, sem áhuga hafa á
handverki af ýmsu tagi og æ fleiri
afla sér þekkingar á starfsháttum
horfinna alda.
I Norska húsinu í Stykkishólmi
verður haldið upp á daginn með
því kynna gestum tvær tegundir af
íslensku handverki, á milli klukk-
an 14.00 og 16.00.
I krambúðinni mun Trausti
Tryggvason sýna gestum hvernig
skal bera sig að við tálgun í birki
og þau verkfæri sem notuð eru við
tálgun á ýmsum skemmtilegum
hlutum. Tréskurður og tálgun
hefur tíðkast á Islandi frá fyrstu
tíð og enn er haldið á lofti nöfn-
um hagleiksmanna í íslenskri al-
þýðulist tréskurðar og tálgunar
sem haldist hefur órofin til okkar
tíma.
A efri hæð sýnir Ingibjörg A-
gústsdóttir handverk sem tengist
íslenskum þjóðbúningi kvenna,
faldbúningi og sýnir tvo faldbún-
inga. Faldbúningurinn dregur
nafn sitt af höfuðbúnaðinum, svo-
nefndum faldi sem gerður var úr
samanbrotnum klútum sem vafðir
voru um höfuðið. Búningurinn
mótaðist í tímans rás og á 19. öld
var hann einkum notaður sem
sparibúningur og á seinasta fjórð-
ungi 19. aldar lagðist notkun hans
af. Það er því mikils um vert að
konur fari að gefa þessum gamla
íslenska búningi gaum.
I tilefhi dagsins er ókeypis inn á
safnið og einnig er öllum konum
sem klæðast íslenskum þjóðbún-
ingi þennan dag, boðið í kaffiboð
í stássstofunni hjá frú Onnu
Magdalenu í Norska húsinu á
milli kl. 14.00 og 16.00.
Konur sem eiga eða hafa afnot
af íslenskum búningi eru hvattar
til að bera hann þennan dag og
mæta í Norska húsið og allir aðr-
ir eru hvattir til að koma og kynna
sér íslenskt handverk.
Þorgeir og Helgi hf. / Smellinn á Akranesi óskar eftir fólki til framtíðarstarfa
Smiður á trésmíðaverkstæði
Markmið starfsins: Vinna við móta- og gluggasmíði vegna framleiðslu fosteyptra eininga.
Menntun, reynsla og hæfni sem starfið kallar á:
• Húsasmiður með sveinspróf og starfsreynslu.
• Ahugi á byggingariðnaði og tengdum sviðum.
• Góðir samskiptahæfileikar gagnvart samstarfsfólki og viðskiptavinum.
Vinnutími:
Vinnutími er frá 7:30 á morgnanna til 17:00 á daginn, mánudag til föstudags. A vinnustað er mötuneyti
þar sem starfsmenn hafa aðgang að heitum mat í hádegi. Starfsmenn geta fengið far til og frá vinnu sé
þess óskað. Um framtíðarstarf er að ræða.
Umsóknum skal skila á skrifstofu fyrirtækisins að Höfðaseli 4. Upplýsingar veitir Alfreð
Þór Alfreðsson verkstjóri í síma 840 6607.
Byggingaverkamenn
Markmið starfsins: Vinna við framleiðslu forsteyptra eininga.
Menntun, reynsla og hæfni sem starfið kallar á:
• Reynsla af byggingavinnu.
• Ahugi á byggingariðnaði og tengdum sviðum.
• Réttindi á brúkrana æskileg en ekki skilyrði.
• Góðir samskiptahæfileikar gagnvart samstarfsfólki og viðskiptavinum.
Vinnutími:
Um er að ræða vaktavinnu þar sem unnir eru 6 dagar og síðan 3 dagar í fríi. Vinnutími er frá 7:30 á
morgnanna til 17:00 á daginn. A vinnustað er mötuneyti þar sem starfsmenn hafa aðgang að heitum
mat í hádegi. Starfsmenn geta fengið far til og frá vinnu sé þess óskað. Um framtíðarstarf er að ræða.
Umsóknum skal skila á skrifstofu fyrirtækisins að Höfðaseli 4. Upplýsingar veitir Alfreð
Þór Alfreðsson verkstjóri í síma 840 6607.
Lagermaður/sendill
Markmið starfsins: Byggja upp og þróa lager fyrirtækisins og almenn lagerstörf í kjölfarið. Annast
sendiferðir og innkaup.
Menntun, reynsla og hæfhi sem starfið kallar á:
• Bílpróf er nauðsynlegt, meirapróf æskilegt.
• Word og Excelkunnátta einnig æskileg.
• Góðir samskiptahæfileikar gagnvart samstarfsfólki og birgjum.
• Viðkomandi þarf að vera reglusamur, vera sjálfstæður í vinnubrögðum og hafa
frumkvæði.
Vinnutími:
Vinnutími er virkir dagar kl. 7:30-17:00. A vinnustað er mötuneyti þar sem starfsmenn hafa aðgang
að heitum mat í hádegi. Starfsmenn geta fengið far til og frá vinnu sé þess óskað. Um framtíðarstarf er
að ræða.
Umsóknum skal skila á skrifstofu fyrirtækisins að Höfðaseli 4. Upplýsingar veitir Alfreð
Þór Alfreðsson verkstjóri í síma 840 6607.
I Góð laun í boði fyrir góða starfsmenn
1 Fyrirtœkið Þorgeir og Helgi hf. var stofnað órið 1963.Árið 2000 hófst framleiðsla forsteyptra húseininga
undir nafninu Smellinn og er J>að í dag aðalstarfsemi fyrirtœkisins. Starfsmenn nú eru um SS talsins. Sjú
núnarú www.smellinn.is.
inwllÉju
FORSTEYPT EININGAHÚS