Skessuhorn - 22.06.2005, Page 18
18
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 2005
SKESSUIMÖEH
y^e/ininn^, Gamla samlagið í Borgamesi
Nokkur umræða hefur spunnist
um það hvort vernda beri hús það
í Borgarnesi sem hýsti mjólkur-
vinnslu um nokkurra áratuga skeið
en síðar Byggingavörudeild Kaup-
félags Borgfirðinga. Eg veit ekki
til að heildarsaga íslensks mjólkur-
iðnaðar hafi verið skráð en saga
nokkurra samlaga er til á prenti.
Því er vissulega ekki hægt að fletta
í bók og segja, „þetta er merkilegt
hús“ og engin einhlít aðferð tiltæk
svo meta megi hvort tiltekin bygg-
ing þar sem stunduð hefur verið
mjólkurvinnsla, hafi sérstakt
minjagildi. I mjólkuriðnaði hafa
fyrirtæki og starfsstöðvar komið
og farið. Þannig var t.d. um tíma
mjólkursamlag á Akranesi, Grund-
arfirði, Patreksfirði, Hvamms-
tanga, Húsavík, Þórshöfn, Nes-
kaupstað, Djúpavogi, Höfn og að
sjálfsögðu í Borgarnesi, áður á
Beigalda. I skrifum um þetta mál
hefur ekki komið fram að starf-
semin í Borgarnesi hafi verið í
grundvallaratriðum frábrugðin því
sem gerðist í öðrum samlögum.
En hefur húsið í Borgarnesi,
sem kallað er „Gamla Mjólkur-
samlagið“ einhverja þá sérstöðu
sem kallar á verndun þess, aldar-
fjórðungi eftir að mjólkurvinnslu
þar lauk?
Nefnt hefur verið að Guðjón
Samúelsson teiknaði húsið og að
umrædd bygging hafi tilfinninga-
legt gildi fyrir marga Borgnesinga.
Hvort tveggja er rétt en hvar end-
um við ef vernda þarf ca. 800 fer-
metra hús á þessum forsendum
einum? Að mínu mati er ekki verj-
andi að varðveita þessa byggingu á
grundvelli sögunnar einnar. Þá er
það óratmhæft vegna kostnaðar að
endurgera húsið sem minjasafn um
mjólkurvinnslu eins og hún var
stunduð á líftíma samlagsins. Þá er
bæði horft til stofn- og ekki síður
rekstrarkostnaðar því slíkt minja-
samlag yrði að búa vélum við hæfi
og halda öllu við. Það er þá og því
aðeins réttlætanlegt að vernda
húsið ef þörf er á því til annarra og
nýrra nota. Þá er sagan góð ábót
sem gefur byggingunni ákveðið
forskot umfram þann valkost að
byggja nýtt hús. Spurningin sem
sveitarstjórnin í Borgarbyggð
stendur frammi fýrir er því um
þörfina fyrir umrætt hús og sam-
anburð á kostnaði við nýbyggingu
annars vegar og lagfæringu á
Gamla samlaginu hins vegar.
Þórólfur Sveinsson, Ferjubakka II
Hafa undirbúið
íjallkonur í 30 ár
A myndinni eru þær Freyja
Bjarnadóttir, Drífa Mjöll Sigur-
bergsdóttir, fjallkonan 2005 og
Helga Guðmarsdóttir. Þær Helga
og Freyja hafa séð um að undirbúa
fjallkonurnar í Borgarnesi fýrir
ræður sínar í fjölda ára. Freyja æfir
stúlkurnar í framburði en Helga
aðstoðar þær við klæðnað og fram-
göngu. Kyrtillinn, sem er eign
Kvenfélags Borgarness, saumaði
Herdís Guðmundsdóttir og hefur
hann verið notaður síðan árið
1974 en þá var fjallkonan Ingi-
björg Asgeirsdóttir sem las upp
Þjóðhátíðarljóð Guðmundar
Böðvarssonar.
ES
y^e/ininn^^
Jón Bjamason alþingismaðnr veifar stolnumfjöðrwn
Um þessar mundir dreifir
Vinstrihreyfingin grænt framboð
blaði um Norðvesturkjördæmi sem
þeir nefna Norðurstjörnuna. Þar
skrifar Jón Bjarnason alþingismað-
ur grein á baksíðu með yfirskrift-
inni: „Vinstri græn „í takt við tím-
ann“ „Þessi fyrirsögn hlaut að vekja
athygli. Að Vinstri grænir væru í
takt við tímann kallaði á sérstaka
skoðun. Og hvað kemur þarna í
ljós? I greininni fagnar Jón Bjama-
son þingsályktunartillögu um
ferðamál sem Alþingi samþykkti í
vor. Hann vitnar í þingsályktunar-
tillöguna og vísar síðan til þess að
tillagan sé í samræmi við stefhuskrá
Vinstri grænna. Hann getur þess í
engu að þessi tillaga, sem Alþingi
samþykkti, var unnin á vegum sam-
gönguráðuneytis og lögð ffam af
samgönguráðherra sem stjórnartil-
laga. Tillagan hlaut góðar undir-
tektir og var samþykkt sem ályktun
Alþingis. Þingmaðurinn leyfir sér
hins vegar að setja sína frásögn
þannig upp að lesendur halda að
Jón Bjarnason og Vinstri grænir
hafi fengið samþykkta á Alþingi
stefnu sína í ferðamálum. Það er nú
öðra nær. Stefna Vinstri grænna
fær engan hljómgrunn og þar sem
þeir hafa komist til áhrifa stendur
allt fast vegna þvermóðsku þeirra.
Þar má nefha ffamgöngu í borgar-
stjórn þar sem þeir stöðvuðu ffam-
kvæmdir við mislæg gantamót við
Kringlumýrabraut svo ekki sé talað
um ffamgöngu þeirra í samstarfi við
Sjálfstæðismenn í Skagafirði.
Framganga þeirra í málefnum
orkuffeks iðnaðar er þannig, eins
og þekkt er, að undrun sætir. Þessi
ffamganga þingmannsins að skreyta
sig með stolnum fjöðrum er mjög
tmdarleg. Auðvitað veit hann að
það var samgönguráðherra sem
flutti þessa tillögu og það var sam-
gönguráðherra sem er með henni
að móta stefhu okkar Islendinga í
ferðamálum.
Undirbúningur þessarar stefhu-
mótunar hafði staðið í nokkurn
tíma í samgönguráðuneytinu. Til
þess að styrkja þessa stefnumótun í
ferðamálum enn ff ekar lagði ég til-
löguna fram í ríkisstjórninni og síð-
an fýrir Alþingi og fékk hana sam-
þykkta. Eg fagnaði því auðvitað
þegar ljóst varð að tillagan fengi svo
öflugan stuðning á Alþingi sem
raun bar vitni um. En það var ekki
vegna þess að hún væri runnin úr
vopnabúri Vinstri grænna. Hvað þá
að ég ætti von á því að Jón Bjarna-
son gerði tilraun til þess að eigna
sér þingsályktun um ferðamál, sem
hann kom hvergi nærri, nema að
hann talaði ekki gegn henni í þing-
inu eins og harm gerir jafnan við
umræður um öll mál sem ráðherrar
ríkisstjórnarinnar flytja. Til fróð-
leiks fyrir lesendur þá læt ég álykt-
unina í heild sinni fýlgja hér með
eins og hún var samþykkt á Alþingi
3. maí 2005 þannig að lesendur geti
kynnt sér hana:
Sturla Böðvarsson
samgönguráðherra
Þingsályktun
um ferðamál
Alþingi ályktar að fela sam-
gönguráðherra að stefna að eftirfar-
andi meginmarkmiðum í ferðamál-
um á tímabilinu 2006-2015 í sam-
ráði við ráðherra viðkomandi mála-
flokka:
1. Náttúra Islands, sterk byggð,
menning þjóðarinnar og fag-
mennska verði ráðandi þættir í þró-
un íslenskra ferðamála.
2. Tryggð verði samkeppnishæfni
ferðaþjónustunnar sem stuðli að
hámarksafrakstri í greininni.
3. Alagi vegna ferðaþjónustu
verði jafnað á landið og íbúa þess og
verði innan þolmarka í samræmi við
niðurstöður rannsókna.
4. Imynd Islands sem ferða-
mannastaðar verði byggð upp og
varin.
Enn fremur verði unnið að effir-
farandi markmiðum:
1. Ferðaþjónustunni verði sköp-
uð rekstrarskilyrði sambærileg við
rekstrarskilyrði í samkeppnislönd-
unum.
2. Island verði í forusm í um-
hverfisvænni ferðaþjónustu.
3. Fylgt verði eftir uppbyggingu
þjóðgarða með því að stuðla að
ferðaþjónustu sem samþættir útivist
og náttúruvernd.
4. Abyrgð ferðamanna og fýrir-
tækja í ferðaþjónustu verði aukin í
umhverfismálum.
Til að ná markmiðum í ferðamál-
um verði m.a. beitt eftirfarandi að-
gerðum:
I. Rekstrarumhverfi ferðaþjón-
usmnnar.
1. Opinber gjöld af aðföngum og
búnaði til ferðaþjónusm verði sam-
bærileg við gjöld í samkeppnislönd-
um.
2. Leitast verði við að fé til sam-
eiginlegrar markaðssetningar verði
tryggt til lengri tíma.
3. Unnið verði markvisst gegn
leyfislausri starfsemi og skattsvik-
um.
4. Opinberir aðilar raski ekki
samkeppnisstöðu einkarekinnar
ferðaþjónustu.
5. Opinbert eftirlit með ferða-
þjónusmfýrirtækjum verði lág-
markað og einfaldað og eftirlit á
vegum einstakra aðila sameinað þar
sem hægt er.
II. Kynningarmál.
1. Affam verði unnið að upp-
byggingu ímyndar Islands og hún
varin með því að leggja áherslu á
eftirfarandi þætti í kynningarstarfi
ferðaþjónustunnar:
a. einstaka og fjölbreytta náttúra,
b. umhverfisvernd,
c. menninguna og þjóðina,
d. fagmennsku,
e. gæði og öryggi,
f. heilsu og hreinleika,
g. gestrisni,
h. myndræn auðkenni (lógó),
i. slagorð.
2. Megináhersla í öllum kynning-
armálum verði áfram lögð á Island,
Norður-Ameríku, Bretland, nor-
ræn lönd og meginland Evrópu.
3. Aðgengi einkaaðila að opin-
berum ffamlögum til kynningar- og
markaðsmála verði háð eigin ffam-
lögum þeirra til vel skilgreindra og
vænlegra verkeftia.
4. Samræmis verði gætt í allri
kynningu á landinu í heild, sem og í
aðlögun kynningarefnis og skila-
boða fýrir einstaka markhópa eða
markaðssvæði.
5. Aðferðafræðin sem notuð hef-
ur verið við „Iceland Naturally“ í
Norður-Ameríku (þ.e. sameiginleg
kynning vöru og þjónustu) verði
notuð við aðkomu opinberra aðila
að kynningu Islands á öðrum mark-
aðssvæðum.
III. Nýsköpun og þróun.
Stjórnvöld taki virkan þátt í ný-
sköpunar- og vöruþróunarstarfi
ferðaþjónustunnar í samræmi við
stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar.
IV Menntun.
1. Aukið tillit verði tekið til
kostnaðar fýrirtækja í tengslum við
starfsnám.
2. Námsbrautir ffamhaldsskóla
og sérskóla tengist svo sem kostur
er þannig að ekki myndist blindgöt-
ur eða óþörf skörun námsbrauta og
skólastiga.
3. Háskólanám í ferðamálum
byggist í vaxandi mæli á þeim
grunni sem lagður er á ffamhalds-
skólastigi þannig að við inntöku
nemenda verði tekið tillit til
menntunar og/eða reynslu á sviði
ferðamála.
4. Tryggt verði aðgengi að há-
hraðaneti við fjarnám.
V. Rannsóknir.
1. Starffækt verði gagnamiðstöð
er vinni að söfnun, úrvinnslu og
túlkun gagna til hagnýtingar bæði
fýrir opinbera aðila og einkaaðila
innan greinarinnar.
2. Hlúð verði að hvers kyns
grunnrannsóknum og hagnýtum
rannsóknum í ferðamálaffæði.
VI. Grunngerð.
1. Umferðarmiðstöðvar verði
nýttar til að tengja og samræma all-
ar tegundir almenningssamgangna
og bættrar þjónustu við ferðamenn.
2. Upplýsingar um löggæslu,
heilsugæslu, almenningssamgöngur
og almannavarnir verði aðgengileg-
ar á erlendum tungumálum auk ís-
lensku.
3. Við gerð almannavamaáætlana
sé tryggt að upplýsingar um hættu-
ástand og viðbrögð nái til fólks á
ferð um landið.
4. Merkingar í samgöngukerfmu
verði bættar og þess gætt að þær séu
auðskiljanlegar fýrir erlenda ferða-
menn.
5. Aðgengi að skilgreindum
„seglum" verði tryggt allt árið, sbr.
skýrsltma Auðlindin Island.
6. Skilgreindar verði lágmarks-
kröfur til upplýsingamiðstöðva sem
lúta opinberu eftirliti.
7. Upplýsingamiðstöðvar sem
lúta opinberu eftirliti verði auð-
kenndar sérstaklega.
VII. Fjölþjóðasamstarf.
1. Alþjóðlegt samstarf beinist sér-
staklega að vestnorræna svæðinu
öðrum norrænum löndum, megin-
landi Evrópu og OECD-löndum.
2. Affam verði haldið sérstöku
samstarfi við önnur norræn lönd.
3. Kynning og aðstoð verði veitt
við aðgang að fjármagni erlendis til
verkefna í ferðaþjónustu.
4. Samstarf við erlenda ferða-
þjónustuaðila verði aukið og því
viðhaldið.
5. Þátttaka í fjölþjóðlegu tengsla-
neti verði aukin og því haldið við.
VIII. Gæða- og öryggismál.
1. Rekstrarleyfi verði höfð sýni-
leg, bæði á íslensku og fleiri tungu-
málum og útlit þeirra verði sam-
ræmt.
2. Áfram verði vmnið að eflingu
flokkunarkerfis gististaða og það
kynnt ffekar fýrir rekstraraðilum og
neytendum.
3. Unnið verði að því að koma á
flokkunarkerfi ráðstefnuaðstöðu.
4. Unnið verði að því að koma á
flokkunarkerfi fólksflutningabif-
reiða.
5. Ferðamönnum sem ferðast um
Island verði gert ljóst að þeir beri
fulla ábyrgð á eigin gjörðum og
þeim beri að fýlgja leiðbeiningum
sem þeir fá eða eru settar ffam á
viðkomustöðum þeirra.
IX. Umhverfismál.
1. Ferðamönnum verði gerð bet-
ur grein fýrir ábyrgð sinni varðandi
vemdun umhverfisins.
2. Skilgreindum „seglum“ til að
dreifa álagi á landið verði fjölgað og
þeir gerðir aðgengilegir árið um
kring.
Samþykkt á Alþingi 3. maí 2005