Skessuhorn - 22.06.2005, Side 19
MIÐVIKUDAGUR 22. JUNI 2005
19
Fomleifavarsla á fslandi
Menntamálaráðuneytið hefur
falið Fornleifavernd ríkisins um-
sjón með stefnumótun á sviði
fornleifavörslu á Islandi. Forn-
leifavarsla er umfangsmikið starfs-
svið sem snertir, auk minjavörslu
og fornleifarannsókna, fram-
kvæmdir ýmiss konar, landbúnað,
skógrækt, samgöngur, menningar-
tengda ferðaþjónustu og ffæðslu-
mál, auk kirkju og kirkjugarða, svo
eitthvað sé nefnt.
Fornleifavernd ríkisins býður til
umræðufundar um málefni forn-
leifavörslu á Vesturlandi og Vest-
fjörðum dagana 27. - 29. júní n.k.
Fundirnir verða sem hér segir:
Landbúnaðarháskóla Islands,
Hvanneyri 27. júní kl. 9.00, Ráð-
húsinu í Stykkishólmi 27. júní kl.
15.00, Stjórnsýsluhúsinu í Búðar-
dal 28. júní kl.9.00, Bæjarskrifstof-
unum á Patreksfirði 28. júní kl.
15.00, Stjórnsýsluhúsinu á Isafirði
29. júní kl. 9.00 og Félagsheimil-
inu á Hólmavík 29. júní kl. 15.30.
Fundarefni er m.a. kynning á
lagaumhverfi fornleifavörslu og
umræður um ýmis málefni sem
tengjast minjavörslu og fram-
kvæmd hennar. A fundinum gefst
einnig tældfæri til að ræða áhrif
minjaverndar og minjavörslu á
svæðinu og aðrar aðstæður sem
þarf að hyggja sérstaklega að.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku
til Fornleifaverndar ríkisins, í
síma 555 6632 eða á netfangið
fornleifavernd@fornleifavernd.is.
Fastráðinn starfsmaður Fornleifa-
verndar ríkisins á yðar svæði eru
Magnús A. Sigurðsson minjavörð-
ur Vesturlands- og Vestfjarða,
Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi,
s. 438-1880 / 895-1880, netfang:
magnus@fornleifavernd.is.
('fréttatilkynning).
Fyrirlestur um fomleifa-
rannsóknir í Reykholti
Snorrastofa stendur fyrir opn-
um fyrirlestri um fornleifarann-
sóknir í Reykholti þriðjudaginn
28. júní kl. 20.30 í Bókhlöðusal
Snorrastofu. Guðrún Sveinbjarn-
ardóttir, fornleifafræðingur, mun
fjalla um stöðu rannsóknanna, en
erindið er liður í röð Fyrirlestra í
héraði. Fornleifauppgröfturinn í
Reykholti er afar áhugavert við-
fangsefni, ekki síst vegna frægðar
staðarins og þeirra fornminja, sem
hingað til hafa dregið fjölda ferða-
manna í Reykholt, þ.e. Snorralaug
og þau göng sem tengja hana og
gamla bæinn. Ohætt er að fullyrða
að uppgreftinum hafi miðað vel á-
frarn og hefur komið í ljós fjöldi
merkilega minja, ekki hvað síst í
þeim kirkjugrunni, sem nú er ver-
ið að grafa upp.
Fólki gefst einstakt tækifæri til að
spyrja Guðrúnu um gang rann-
sóknanna. Aðgangseyrir er 500 kr.
og eru allir sem tök hafa á eindreg-
ið hvattir til þess að koma. Boðið
verður upp á veitingar.
('fréttatilkynning).
Eitt verka Láru Gunnarsdóttur í Stykkishólmi.
Handverksfólk býður í
bæinn á laugardaginn
Handverksdagurinn 2005 er
næstkomandi laugardag, 25. júní.
Þá verða opnar vinnustofur, söfn,
sýningar og sölustaðir um allt land.
Fjölmargt handverks- og hstiðnað-
arfólk opnar vinnustofur sínar
og/eða sölustaði og býður gestum
og gangandi að koma og kynnast
vinnsluferli handunninna verka.
Einnig munu nokkur minja- og
byggðasöfn taka þátt og kynna
safnaeign sína í handverki og list-
iðnaði. Markmiðið með handverks-
deginum er að auka skilning og
þekkingu almennings á vinnu
handverks- og listiðnaðarfólks. Það
er Handverk og hönnun sem skipu-
leggur og stendur fyrir Handverks-
deginum 2005. Meðal þess sem
hægt er að kynna sér hér á Vestur-
landi nk. laugardag er starfsemi
Sólu (Snjólaugar Guðmundsdótt-
ur) á Brúarlandi en hún mun hafa
vinnustofu sína opna, sem jafn-
framt er gallerí. Hún sýnir fólki
hvaða vinnuaðferðir hún notar og
leyfir gestum að gera lítinn hlut úr
flóka.
Lára Gunnarsdóttir í Stykkis-
hólmi hefur vinnustofu sína opna
en hún vinnur í tré.
Hjónin Rita Freyja og Páll í
Grenigerði við Borgarnes sýna
hvernig þau vinna úr kinda- og
hreindýrahornum og úr fiðu.
Ullarselið á Hvanneyri verður
opið og þar gefst fólki færi á að sjá
fjölbreytt handverk og listiðnað.
I Norska húsinu í Stykkishólmi
stendur yfir sýning Astþórs Jó-
hannssonar „Horfnir veðurvitar,“
eins og greint hefur verið ffá hér í
blaðinu. Þar verður einnig tálgað í
birki og kynning á íslenskum kven-
búningum á handverksdaginn.
I Pakkhúsinu í Olafsvík verða
sýningarnar „Alþýðumenning á
fyrrihluta 20. aldar“ og „Pakkhús-
loffið". Einnig verður krambúðin
opin í Pakkhúsinu. MM
Skógrækt í Grundarfirði
Björg Agústsdóttir í skóginum þar sem elstu trén eru 17-18 ára gömul.
Starfsemi Skógræktarfélags Eyr-
arsveitar hefur verið öflug á liðnum
árum. A árunum 1987-88 var byrj-
að að planta í svæðið þar sem nú er
kominn nokkuð myndarlegur skóg-
ur á Fellsásnum, svæði undir Fell-
unum fyrir ofan Hjaltalínsholt.
Plantað hefur verið í svæðið fyrir
ofan byggðina undir Fellunum, fyr-
ir neðan vatnstankinn, í Olkeldudal
og nánast allt að spennistöð. Nú
nýverið var á vegum bæjarins útbú-
ið aðkomusvæði fyrir Skógræktina
ffá nýja veginum um Olkeldudal.
A fundi Bjargar Agústsdóttur,
bæjarstjóra með stjóm Skógræktar-
félagsins fyrir skömmu var farið yfir
þetta svæði og plönturnar skoðaðar
og rætt um frágang og frekari upp-
byggingu á svæðinu.
Ætlunin er að ganga ffá aðkomu-
svæði Skógræktarinnar við Ol-
kelduveg með þrifalagi á næstunni
og mun Skógræktarfélagið síðan
gróðursetja í og við svæðið. Rætt
var um að setja þar upp aðstöðu til
áningar, bekki og borð og hugsan-
lega útigrill, þar sem fólk gæti kom-
ið og grillað en á vegum bæjarins er
verið að skoða möguleika á því að
setja upp útigrill með aðstöðu á 1-2
stöðum innanbæjar í sumar.
I skóginum á Holtinu hefur
Skógræktarfélagið unnið að því að
grisja skóginn, leggja þar göngu-
stíga og auðvelda aðkomu að svæð-
inu. Grandarfjarðarbær mun setja
upp bekk við svæðið og ennfremur
er ætlunin að endurbæta og ffíska
upp gönguleiðina að svæðinu frá
Holtinu. Ætlunin er að skoða
möguleika á merkingum á svæðinu
og aðkomuleiðum að því.
A íbúaþinginu í Grundarfirði í
mars sl. voru skilaboð íbúanna
mjög skýr um að þeir vilja meiri
gróður í bæinn, útivistarsvæði og
aðstöðu fyrir fjölskyldur til að
koma saman og vera saman. Þetta
er haft í huga með því að styðja við
uppbyggingu og ffágang á skóg-
ræktarsvæðinu. A Grundarfjarðar-
vefnum verður svo á næsmnni sagt
ffá ffekari vinnu við snyrtingu bæj-
arins, frágang svæða og átak í gróð-
ursetningu.
(Af grundarfjordur.is)
i
GÖNGUM TIL HEILBRIGÐIS
Jónsmessuskemmtun
við Akrafjall föstudaginn 24. júní 2005
Dagskrá
21:00 Létt stemning í litlu réttinni við rætur Akrafjalls.
(Ekið upp með Berjadalsá og safnast saman við réttina).
Varðeldur og grill, fríar pylsur og drykkir á staðnum.
22:00 Jónsmessumiðnæturganga á Akrafjall.
Gengió verður upp Selbrekkuna,
yfir nýju brúna á Berjadalsá og upp á Háahnjúk.
Þátttakendur eru beðnir að koma vel útbúnir,
sérstaklega hvaó skófatnað varðar.
Göngustjórí verður Jóhannes Guðjónsson.
Á eftir er Jaðarsbakkalaug opin til kl. 01:30
(hefóbundinn aðgangseyrir).
íþróttabandalag Akraness
Akraneskaupstaður
Ath. Hver og einn er á eigin ábyrgð og dagskrá er með fyrirvara um gott gönguveður.