Skessuhorn - 06.07.2005, Side 10
10
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 2005
áktsaunuui
S
Margt góðra atriða á Irskum dögum
Á síðasta ári mættu um 10 þús-
und gestir á Irska daga á Akranesi
og er allt útlit fyrir að þeir verði
jafnvel fleiri í ár. Hátíðin hefur fest
sig vel í sessi, er nú haldin í sjötta
skiptið og það er gríðarleg stemn-
ing hér í bænum fyrir helgina,"
sagði Sigrún Osk Kristjánsdóttir,
framkvæmdastjóri hátíðarinnar í
samtali við Skessuhom.
Meðal dagskráratriða í ár má
nefha að Eurovisionsystkinin ffá Ir-
landi, þau Donna og Joseph
McCaul, hafa nú slegist í þann
stóra hóp listamanna sem fram
kemur á hátíðinni. Systkinin em
landsþekkt á Irlandi eftir að hafa
sigrað í keppni sem ber heitið
„You're a star“ og kepptu þau fyrir
írlands hönd í Eurovision í vor.
Auk þeirra mætir til landsins þekkt-
asti útvarpsmaður Irlands, Derrek
Mooney og tekur upp útvarpsþátt
um keppnina „Rauðhærðasti Is-
lendingurinn," sem er árviss við-
burður á Irskum dögum. Mikill
fjöldi rauðhærðra Islendinga hefur
þegar skráð sig til keppni og vom
sl. mánudag á 6. tug þátttakenda
skráðir. Irskir dagar hafa vakið
verðskuldaða athygli á Irlandi, enda
ekki á hverjum degi sem þúsundir
manna utan Irlands safnast saman
til þess að fagna landnámi Ira í bæj-
arfélagi sínu.
„Þeir íslensku listamenn og
skemmtikraftar sem leggja leið sína
á Akranes um helgina era m.a.
Selma, Hildur Vala, Maggi Eiríks
og KK, Sálin hans Jóns míns, Pap-
amir, Birta og Bárður, Þorgeir Ást-
valds, Raggi Bjama, South River
Band og fleiri. Hápunkmr helgar-
innar er vafalítið Lopapeysan 2005
sem haldin verður í Sements-
skemmunni við höfhina á laugar-
dagskvöldið en um er að ræða risa-
vaxna skemmtun þar sem Papamir,
Sálin, Raggi Bjarna og
Þorgeir Ástvaldsson spila
auk Eurovisionsystkin-
anna. I fyrra mættu þang-
að 2000 manns og ef
marka má viðtökur við
forsölu sem hófst á
fimmtudaginn var verður
ballið eitt það stærsta sem
haldið hefur verið frá því
land byggðist," sagði Sig-
rún Osk.
Skagamótið í knatt-
spyrnu fer fram sömu
helgi og Irskir dagar sam-
kvæmt venju. Um 1000
ungir og upprennandi
knattspyrnumenn í 7.
flokki reyna þar fyrir sér
en mótið er hið
langstærsta á landinu í
þessum aldursflokki.
MM
Hér marserar hópur knattspymufélaganna eftir Jaðarsbrautinni áleiðis á setningu mótsins ájaðars-
bökkum ífyrra. Þessi hópur og aðstandendur krakkanna setjajafnan sterkan svip á „Þjóðhátíð“
Skagamanna; Irska daga.
Veiðihomið er styrkt af:
OaCSilwinuS
Mokveiði í borgfirskum ám
Umsjón: Gunnar Bcnder
Baulan er stadsett í hjarta Borgarfjarðar
við þjóðveg nr. 1
Verslun - Veitingar. Grill
og grillvörur í úrvali, gas, / ... ... A . . , ,
, , ,, ,, .. Isvelin voknuð ur vetrardvalanum
bensin, olia og ohuvorur.
- OPIÐ ALLT ÁRH
Barnv®^’ '
Það erfallegt við veiðiámar eins og í Hrútafjarðará við Réttarfossinn, þn'r laxar hafa veiðst í ánni síðan hún opnaði l.júlí.
Ljósm: Gunnar Bender.
„Við vorum að koma úr Norð-
urá en við vorum bara í einn dag
og veiðin gekk vel hjá okkur
bræðram. Einn úr hópnum, vanur
fluguveiðimaður, veiddi 15 laxa
bara fyrir hádegi í gær,“ sögðu þeir
bræður Jón og Omar Sigurðssynir
en þeir vora að koma úr Norðurá í
Borgarfirði, en biússandi gangur
hefur verið í ánni síðustu daga og
næstum mokveiði.
Veiðin hefur gengið feiknavel í
Norðurá og núna era komnir
næstum 1000 laxar úr ánni og
veiðitíminn er rétt að að byrja.
Fyrir hádegi í fyrradag veiddust í
ánni 60 laxar og fannst sumum
veiðimönnum nóg um veiðiskap-
inn. Einn úr hópnum hafði veitt
vel, svo hann ákvað að hætta veið-
inni um hádegi og fá sér sæti í
brekkunni við veiðihúsið og virða
fyrir sér dýrðina um stund. Hann
var einfaldlega búinn að moka svo
á land fiski að honum varð nóg um.
Svipaðar sögur era að berast úr
Þverá, en þar er mikill lax og ágæt
veiði.
6 laxar eru komnir úr Andakílsá
og veiðimaður sem við hittum og
var að koma af silungssvæði árinn-
ar veiddi 4 bleikjur. Hann sagði
þetta vera allt í lagi en mest af fisk-
inum hefði legið við klappirnar.
Þetta vora tveggja punda bleikjur
þær stærstu.
Holl sem var að koma úr
Gljúfurá veiddi 7 laxa og það er
víst töluvert af fiski að ganga í ána
þessa dagana.
Á bökkum Hítarár hitti blaða-
maður fulltrúa úr kvennaholli sem
var að hefja veiðar sl. laugardags-
eftirmiðdag. Þá vora komnir um
33 laxar á land og mikið af fiski að
stökkva bæði við veiðihúsið og í
fossinum undir brúnni þar sem
nær látlaust mátti sjá fisk berjast á
móti straumnum og reyna við foss-
inn.
„Þetta var skemmtilegt, fyrstu
tveir laxarnir úr ánni á sumrinu
vora Maríulaxar og veiddust fyrir
tveimur dögum. Það er eitthvað af
fiski komið í ána,“ sagði Sæmund-
ur Kristjánsson á bökkum Miðár í
Dölum, en það var einmitt dóttir
hans Sandra Sif, sem veiddi Maríu-
laxinn sinn í ánni, 5 punda fisk.
Ágætur gangur hefur verið í
Haukadalsá og fyrstu tveir laxamir
á land í Laxá í Dölum vora 10
punda fiskar. Fínt vatn er í veiðiám
í Dölum og aldrei að vita hvað ger-
ist á allra næstu dögum á svæðinu.
Þessifallegi lax var að reyna viðfossinn undir Hítarárbrúnni sl. laugardagseftirmið-
dag. Ljósm: MM
Þorstein J Gunnlaugsson með Laxa úr Hítará semfengust um helgina. Þorsteinn er
reyndur veiðimaður þó hann sé aðeins 14 ára gamal, hannfer oft aðfara meðfóður
sínum t lax. Ljósm: Guðlaugur A.