Skessuhorn


Skessuhorn - 06.07.2005, Page 13

Skessuhorn - 06.07.2005, Page 13
 MIÐVIKUDAGUR 6 JÚLÍ 2005 13 Ásamt Emi Amarsyni sundkappa eftir sundkeppni þeirra á milli. Gísli beitti öllum brögSum og lét m.a. draga sigyfir laugina. Þaö dugði þó ekki til. við það tilefni. „Auðvitað situr mað- ur líka uppi með að hafa fengið tæki- færi til að taka þátt í Hvalfjarðar- gangaverkefhinu. Það breytti miklu og tókst í alla staði mjög vel.“ Erfiðara að vera toll- heimtumaður Gísli kom að Hvalfjarðarganga- verkefninu úr ýmsum áttum þar sem hann var í senn formaður stjómar Spalar auk þess að sjálfsögðu að vera bæjarstjóri. I seinni tíð hefúr GísH á stundum verið gagnrýndur fyrir að sitja beggja vegna borðsins. „Langstærstur hluti Akurnesinga áttaði sig á því ffá upphafi að þegar á heildina væri litið yrðu göngin til góðs. Svo þegar verkefnið er búið og þarf að fara að borga breytist við- horfið náttúrulega. Það er sitthvað að vera í framvarðasveitinni við upp- byggingu eða vera tollheimtumaður. Hagsmunagæsla varðandi ganga- gjaldið skiptir þó einnig miklu máli, en svona umræðu tek ég ekki nærri mér einfaldlega vegna þess að ég skil hana ekki. Ef einhverjum dettur það í hug að ég sem íbúi á Akranesi beri ekki hagsmuni Skagamanna fyrir brjósti held ég að viðkomandi þekki mig ekki vel og sé á skakkri hillu.“ Mikil félagsvera Auk þess að vera bæjarstjóri hefur Gísli setið í stjóm nærri óteljandi fyrirtækja auk þess að vera virkur í hinum ýmsu félagsstörfum. Hann segist þó eiga frístundir inn á milli. „Það þýðir ekkert fyrir mann að skæla yfir því að það sé mikið að gera. Maður hefúr tíma fyrir það sem maður vill gera, þannig er það nú. Eg hef mikinn áhuga á hverskyns íþróttum. Dunda í golfi eftir atvikum, smnda stangveiði, trimm á morgnana með góðu fólki og svo erum við nokkrir í trillufélagi um bátinn Jón forseta. Svo er það músíkin,“ segir Gísli og bætir því við að þótt hann sé ekkd stórbrotinn veiðimaður, golfari eða tónhstar- maður sé það félagsskapurinn sem gildi. „Meðan menn hafa gaman af því að hafa mig með nýt ég þess að vera með. Svo er það auðvitað afa- hlutverkið sem við Hallbera njótum nú út í ystu æsar,“ en Þorsteinn, son- ur Gísla og Hallbem, varð pabbi þann 4. apríl síðasdiðinn. „Eg held að óhætt sé að fullyrða að við Hall- bera og þau Smári og Lína, foreldr- ar Svölu Yrar, séu einhverjir áhuga- sömusm afar og ömmur sem fyrir- finnast og ekki er það verra að fá nafna með fyrsta bamabaminu - enda er drengurinn yndislegur". Þakkar KR gott uppeldi Knattspyrnan hefur lengi spilað stórt hlutverk í hfi Gísla en hann spilaði bæði körfu- og fótbolta með KR við góðan orðstír á yngri árum. Hann vih þó ekki kannast við að í sér blundi KR-ingur. „Eg er alveg laus við það. Eg á KR gott uppeldi að þakka en eftir að ég kom hingað á Skagann hefúr ekkert þurft að spyrja að því. Maður stendur með sínu heimaliði þótt ég sé ekki í hópi þeirra sem tala um að KR-ingar séu verri en aðrir. Þar er mikil hefð og margt gott fólk. En það er alltaf notalegra þegar Skaginn vinnur KR og þannig á það auðvitað að vera.“ Ræðuhöld í afmælinu bönnuð Það þarf ekki að hitta Gísla nema einu sinni til að sjá að þar fer lífs- glaður maður. „Eg neita því ekki að ég er glaður maður á góðri stundu þó maður hafi nú róast mildð á síð- ustu árum. Eg er bara svona og hef aldrei getað tekið mig eða einstök verkefúi svo alvarlega að ekki sé hægt að finna broslega hlið og ég held að það hafi bara verið til bóta. En ég reyni nú að finna hvað á við hverju sinni og stundum reynir maður náttúrulega að vera virðuleg- ur.“ Irskir dagar verða haldnir á Akra- nesi tun helgina og svo heppilega vih til að Gísh verður ftmmmgur á laug- ardag en meiningin er að halda upp á það á fösmdeginum með heljar- innar gömgrihi á Víðigrund milli kl. 17 og 19. „Það em allir velkomnir, hér verður „opin gata.“ Eg er svo heppinn að eiga einstaka nágranna enda Víðigrandin þekkt fyrir skemmtilegan hóp. Eina reglan er sú að ræðuhöld era stranglega bönnuð. Onnur ffamlög eru velkomin hvort sem tun er að ræða dans, tónhst, söng eða annað,“ segir Gísh og svar- ar spumingunni um hvort honum leiðist formlegheit áþann veg að svo sé ekki endilega. „Eg er bara ekki kominn á þann aldur að ástæða sé til að ræða um mig í þátíð. Það verður vonandi nægur tími til ræðuhalda síðar.“ Forsíða Heimilistímans þann 10. júní árið 1916. Gísli gekk í Menntaskólann íReykja- vík ogsést þama imnum kafmn við að „dimmitera“. Það er gaman að segjafráþvíað hann útskrifaðist ásamt núverandi eiginkonu sinni, Hallberu, sem er lengst til hægri á myndinni. Leiðir þeirra lágu þó ekki saman afturfyrr en nokkrum árum síðar. Tengsl í Bakkatúni á Irskum dögum Frá sýningunni Ahrif t stofunni heima á Irskum dögum á Akranesi 2004. Ljósm: hágé. Munir úr leir, dúkar með silki- þrykki, handgerðar töskur og vatnslitamyndir er meðal þess sem verður á sýningunni Tengsl sem haldin er í stofunni í Bakkatúni 20 á Akranesi á Irskum dögum. Frænkurnar sem standa að Tengsl- um eru þær Olöf Oddsdóttir, Unnur Kristjánsdóttir auk systr- anna Margréti og Jóhönnu Léó- poldsdætra. Þær era allar systkina- börn, mæður eða feður þeirra fædd og uppalin í Hrísdal í Miklholts- hreppi. Þær koma samt dálítið sín úr hverri áttinni. Olöf býr á Suðureyri við Súgandafjörð og er leiðbeinandi í mynd- og handmennt í grunn- skólanum þar. Hún nam leirkera- smíði á Capellagárden á Olandi í Svíþjóð sem Carl Malmsted arki- tekt stofúaði og rak. Hún hefur tek- ið þátt í samsýningum í nokkrum löndum og haldið tvær einkasýn- ingar í Slunkaríki á Isafirði. Er auk þess virkur þátttakandi í Listaskóla Rögnvaldar Olafssonar í Edinborg- arhúsinu á Isafirði. Unnur býr í Sandgerði og kenn- ir við grunnskólann þar. Hún lærði fatahönnun í Kaupmannahöfn og hefur í gegnum árin hannað og saumað hinar ólíkustu flíkur m.a. úr ull, gert búninga fyrir leiksýn- ingar, verið ráðgjafi fyrir prjóna- og saumastofur, kennt myndlist og handmennt í skólum og haldið fjölda námskeiða í hönnun og gerð fata. Töskur hennar að þessu sinni era í „glamúr“ litum, skreyttar perlum og gylltum þráðrnn. Margrét býr í Reykjavík. Hún er læknir og fór í Listaháskólann eft- ir að hafa starfað nokkur ár sem slík. Hún vinnur með ólík form og efúi, hefur til að mynda unnið verkið Hafið með ljósmynda- og glæratækni, sem sýnt var á Suður- nesjum og í Reykjavík, auk þess hefur hún tekið þátt í ýmsum sam- sýningum þ.á.m. í Nýlistasafúinu. I fyrra tók hún þátt í sýningunni Ahrif í stofúnni heima, sem einnig haldin var í Bakkatúni 20. Nú eins og þá verður hún með silkiþrykk þar sem hún notar íslenskar lækn- ingajurtir á dúka. Jóhanna sótti á sínum tíma nám- skeið í vatnslitamálun og hefur undanfarin ár mest fengist við að mála Snæfellsjökul í óteljandi út- gáfum þar sem jökullinn er allt á milli þess að vera mildur og nærri því hlýlegur til þess að vera grimmur og ógnandi. Hún hefur haldið nokkrar sýningar á Vestur- landi og era myndir eftir hana sýndar á kaffihúsinu á Hellnum þessar vikumar. Sýningun verður opnuð föstu- daginn 8. júlí og verður opin til og með sunnudagsins 17. júlí. Opn- unartíminn er frá kl. 13 - 18 alla dagana. Heitt verður á könnunni og allir velkomnir. (fréttatilkynning) TILBOÐ X A ÍRSKUM DÖGUM 20% afsfdttur af: dömufatnaði herrafatnaði snyrtivörum og ilmum Komið, verslið og takið um leið þdtt í spennandi lukkuleik I Irskra daga

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.